Vikan - 16.01.1986, Blaðsíða 43
Lögreglumenn
að störfum
Skuggahliðar Hollywood
(The Glitter Domel
Leikstjóri: Stuart Margolin
Aðalhlutverk: James Garner,
Margot Kidder og John Lithgow.
Sýningartimi: 97 min.
Joseph Wanbaugh er sjálfsagt ein-
hver besti reyfarahöfundur sem
starfandi er í dag. Sögusvið hans er
yfirleitt skuggahverfi Los Angeles og
hetjur hans, ef hetjur skal kalla, eru
annaðhvort einkennisklæddir eða
óeinkennisklæddir lögreglumenn.
I Skuggahliöum Hollywood eru
lögreglumennirnir óeinkennisklædd-
ir. Fjallar myndin aðallega um tvær
leynilöggur sem starfa saman, A1
Mackey og Marty Welborn. Báðir
eru fráskildir og gramir út í lifið.
Annar leitar á náðir flöskunnar, hinn
í guðstrú. Sá trúaði, Marty, er farinn
að þjást andlega af öllum viðbjóðin-
um sem hann þarf að horfa upp á.
Þeim er falið að rannsaka morð á
kvikmyndaframleiðanda nokkrum.
Fljótlega komast þeir á snoðir um að
framleiðandinn hafi verið viðloðandi
klámmyndagerð og það sem verra
er, bamaklám. I leit sinni að morð-
ingjanum veröur á vegi þeirra
annars flokks leikkona sem A1 hrífst
af. Smám saman komast þeir á slóö
manna sem stunda klámkvikmynda-
gerð og er það hald þeirra aö sam-
keppnisaðilar hafi drepiö framleið-
andann...
Skuggahliðar Hollywood er ágæt-
lega gerð sakamálamynd þótt ekki
nái hún jafnvel að lýsa þeirri skugga-
veröld sem myndin gerist í og bókin.
James Garner og John Lithgow fara
vel meö hlutverk sín tvo lögreglu-
menn sem svo sannarlega hafa
fengiö yfir sig nóg af hrottaskapnum
og mannvonskunni.
Þrjár góðar
GÆSAHÚDI
(Tales from the Darkside)
Sýningartími: 90 mín.
Gæsahúð er safn sjónvarpsþátta
sem allir fjalla um það óútskýran-
lega. Þetta eru aðeins hálftíma þætt-
ir hver en bera þaö með sér aö vera
gerðir af vandvirkni og kunnáttu.
Fyrsti þátturinn nefnist Rit-
vinnslukerfi guðanna. Fjallar
myndin um kennara einn sem erfir
eftir ungan frænda sinn, er haföi lát-
ist í bílslysi, gamlan og fornlegan
tölvubúnað. Álit kennarans er lítið á
þessum tækjum í byrjun en þegar
hann kemst aö því að hann getur í
gegnum tölvuna óskað sér ýmislegs,
svo sem að semja metsölubækur eða
skipta um eiginkonu, svo eitthvað sé
nefnt, breytist álit hans á þessum
hugbúnaði... Þessi þáttur er byggður
á smásögu eftir Stephen King.
Annar þátturinn, Upplyfting,
fjallar um ungan og áhugasaman
töframann sem verður fyrir von-
brigðum með sýningu hjá einum
mesta töframanni sem uppi er og
lætur það í ljósi upphátt á sýningu
hjá honum. Það kemur samt í ljós að
það borgar sig ekki að móðga mikinn
töframann. . .
Þriðji þátturinn, Veðmangarinn,
sem jafnframt er sá besti, fjallar um
veðmangara einn sem kominn er á
gamals aldur en er trúr hugsjónum
sínum og hikar ekki við aö fara í veð-
mál um líf sitt viö þokukennda veru
sem komin er til aö hefna sín á hon-
um..
Þessar stuttu en vel gerðu myndir
eru draumamyndir fyrir þá sem
unna spennandi myndum með smá-
hryllingsívafi. Leikur er allur til
fyrirmyndar.
Leitað hefnda
Ekki er allt gull
sem glóir
Metorðastiginn (A Married Man)
Leikstjóri: Charles Jarrot.
Aðalhlutverk: Anthony Hopk-
Ins, Ciaran Maddon og Lise
Hllboldt.
Sýningartími: 3 klst. 20 mín. (2
spólur).
John Strickland (Anthony Hopk-
ins) er lögfræðingur á uppleið. Hann
býr meö eiginkonu og tveimur böm-
um. Hann er fertugur og ekkert ætti
að vera í vegi fyrir því að hann lifi
áhættulausu lífi það sem eftir er.
Hann er þó ekki ánægður og ákveður
að hella sér út í stjórnmál. Þetta
mun þýöa tekjulækkun og það þolir
eiginkonan ekki. Hún er kaþólsk og
vel snobbuð. Veröur þetta til að
hriktir í hjónabandinu.
I gegnum starf sitt kynnist Strick-
land ungri auömannsdóttur sem
hrífst af honum bæði sem manni og
sem efnilegum stjórnmálamanni.
Ekki líður á löngu þar til þau eru
komin í eldheitt ástarsamband.
Strickland lætur þó ástkonu sína vita
að hann hyggi ekki á skilnað. Daginn
sem hann er valinn til að vera fram-
bjóðandi til þings sendir hann eigin-
konuna í sumarbústað svo hann geti
átt helgi með ástkonu sinni. Þegar
eiginkonan skilar sér ekki til aö ná í
bömin fer hann aö leita hennar.
Hann finnur hana myrta í sumarbú-
staðnum ásamt elskhuga.. .
Metorðastiginn fer rólega af stað
og má halda aö hér sé eingöngu
f jallað um hinn klassíska þríhyming,
en við morðið tekur myndin óvænta
stefnubreytingu og verður að spenn-
andi þriller sem er virkilega gaman
aðhorfaá.
Anthony Hopkins fer í kostum í
hlutverki Stricklands. Hann er meira
og minna á skjánum allan tímann og
sýnir stórbrotinn leik.
Ekkjurnar II (Widows II)
Lalkstjóri: Paul Annett.
Aðallelkarar: Ann Mltchall,
Mauraan O'Faral, Flona Hendley
og Dabby Blshop.
Sýnlngartfml: 6 klst. og 16 min. (2
spólur).
1 lok kvikmyndarinnar Ekkjumar
var skilið við ekkjumar fjórar þar
sem þær voru komnar meö ránsfeng
sinn til Rio De Janeiro og virtist lífið
blasa við þeim. Eitt var þó sem geröi
þær órólegar, eiginmaður einnar
þeirra er lifandi og hann er ákveðinn
í aö hefna sín á þeim. I byrjun
myndarinnar Ekkjumar II kemst
hann af tilviljun á slóð þeirra og
ákveöa þær þá að fara aftur til Eng-
lands til að gera upp sakirnar við
hann.
Þær ná sambandi við hann og
bjóða honum hlut í hinum mikla
ránsfeng. Hann þiggur boðiö en ætlar
sér um leið aö koma fram hefndum.
Eiginmaðurinn, sem er þekktur
undirheimaforingi, hefur í leiðinni
lagt á ráðin um að ræna þekktum og
verömætum gimsteinum. Hann fær
til liðs viö sig nokkra þjófa.
Ekkjumar komast aö því hvað
stendur til og eru ákveönar í að láta
lögregluna hirða erkióvin sinn.
Ekki fer nú allt samkvæmt áætlun
hjá báöum aöilum og veröur mikið
blóðbað áður en yfir lýkur.
Eins og fyrri myndin um ekkj-
urnar er Ekkjurnar II virkilega vel
gerð mynd og spennandi, þótt ekki sé
laust viö að efniö sé aðeins farið að
þynnast út þær rúmar fimm klukku-
stundir sem tekur að sýna myndina.
Góður leikur og spennandi atriði
gera það þó að verkum að aldrei er
leiöinlegt á að horfa. I endann standa
aðeins tvær af ekkjunum f jórum eftir
lifandi og önnur þeirra á yfir höföi
sér fangelsisvist.
Vikan 3. tbl. 43