Vikan - 23.04.1987, Blaðsíða 10
NAFN VIKUNNAR: GUÐMUNDUR PÁLL GÍSLASON
Fótboltínn er númer
eitt, tvö og þrjú
Með vorkomunni hýrnar yfir mannanna
börnum. Krakkarnir fara að hlakka til að
losna úr skólanum og þeir sem eru eldri eru
farnir að bíða eftir sumarfríunum sín-
um.
Á mótum vors og vetrar fannst Vikunni
ekki úr vegi að spjalla við ungan og upprenn-
andi íþróttamann, fótboltastrákinn Guð-
mund Pál Gíslason, sem félagar hans í Fram
kalla dags daglega Gralla.
Guðmundur er á íjórtánda ári og leikur
með fjórða flokki Fram.
Það fyrsta sem við spurðum hann um var
hvenær hann hefði byrjað að spila fótbolta.
„Ég man varla eftir mér öðruvisi en ég
væri að sparka bolta. En þegar ég var fimm
eða sex ára byrjaði ég að æfa reglulega og
þá með sjötta flokki. Þá voru litlu vellirnir
ekki komnir og við vorum látnir æfa á stór-
um velli. Seinna breyttist þetta og það var
fækkað í liðunum, í stað ellefu voru hafðir
sjö í liði á minni velli. Fyrsta sumarið mitt
lékum við einn og einn leik og unnum þá
alla. Árið eftir lék ég með sama flokki. Þá
lenti ég með strákum sem voru tveimur árum
eldri en ég. Þá var 7 manna reglan komin.
Það sumar tókum við þátt í mótum og gekk
vel.“
1984 lék Guðmundur bæði með sjötta
flokki og fimmta flokki en var svo fluttur
niður í þann fimmta. „Það ár var fimmta
flokki skipt upp í A-lið og B-lið. Ég lék með
A-liðinu. Þá tókum við þátt í íslandsmótinu,
Reykjavíkurmótinu og svo haustmótinu.
Þetta voru sigursæl ár því við urðum Islands-
meistarar bæði 1984 og ’85. Þjálfarinn okkar
á þessum árum var Magnús Einarsson. Svo
hætti hann með okkur en nú er hann tekinn
við okkur aftur og vonandi verðum við
íslandsmeistarar undir hans stjórn í
ár.“
- Hvaða stöðu spilar þú?
„Þegar ég byrjaði var ég bakvörður. Þeir
minnstu eru alltaf notaðir í það. En 1982
varð ég center og er nú kominn á miðjuna
og stjórna miðjuspilinu.”
- Var einhver ástæða fyrir því að þú gekkst
í Fram?
„Nei, engin sérstök. Félagið var í hverfmu,
og það var svo stutt að fara á æfingar hjá
þeim.“
Hvenær byrjuðuð þið að æfa fyrir ís-
landsmótið í ár?
„Við erum löngu byrjaðir að æfa. I allan
vetur höfum við spilað einu sinni í viku á
gervigrasinu inni í Laugardal. Við höfum
líka æft einu sinni í viku innanhúss auk þess
sem við tókum þátt í innanhússmóti í fót-
bolta. í mars fórum við að æfa kerfisbundið
og núna erum við farnir að æfa á fullu á
mölinni. í Reykjavíkurmótinu leikum við
alltaf á möl, svo og í haustmótinu, en í Is-
landsmeistaramótinu fáum við að spila stöku
leik á grasi.
Það er búið að skipta fjórða flokki upp í
A- og B-lið og við erum farnir að leika æf-
ingaleiki fyrir nokkru enda fyrsti leikurinn
nú í lok apríl.“
- Hvað æfið þið oft í viku?
„Á sumrin æfum við 3 í viku og leikum
einn leik. En ef við komumst í úrslit í þeim
mótum sem við tökum þátt í æfurn við fimm
daga vikunnar. En það eru ekki erfiðar æf-
ingar heldur létt spil.“
- Erfiðustu andstæðingarnir?
„Fyrir tveimur árum voru það KR-ingarn-
ir. Þá lékum við úrslitaleikinn við þá í
íslandsmeistaramótinu og unnum þá 1-0.
Úrslitamarkið skoruðum við aðeins 10 sek-
úndum fyrir leikslok. Ég veit ekki hvernig
þeir eru núna. En ég held samt að við séum
betri."
-_Áttu þér einhver uppáhaldslið erlend?
„í ensku deildinni er það Liverpool, en mér
finnast ítölsku liðin Juventus og Napólí líka
skemmtileg. Hins vegar finnst mér Pele ein-
hver skemmtilegasti leikmaður sem uppi hefur
verið en hann er fyrir löngu hættur að leika.
Af þeim sem eru á hátindinum núna er Plat-
ini uppáhaldsleikmaðurinn minn."
- Þú ert ekki í öðrum íþróttum en fót-
boltanum?
„Fótboltinn er númer eitt, tvö og þrjú. Ég
fór einu sinni á handboltaæfmgu en lét þar
við sitja. Ég held að það sé ekki sniðugt að
blanda saman mörgum íþróttum, ein nægir
alveg."
- Áttu þér einhver önnur áhugamál en
fótboltann?
„Ég hef mikinn áhuga á tölvum. Ég á eina
Lacertölvu sem er 640 k. Hana nota ég rnik-
ið í skólanum, í sambandi við ritgerðir og
önnur verkefni sem ég þarf að gera heima.
Ég á nokkur forrit, bæði ritvinnslu- og
teikniforrit og mér fmnst mjög gaman að
finna út alla þá möguleika sem þau bjóða
upp á. Ég hef einu sinni farið á tölvunám-
skeið en fannst það ekkert sérstakt. Maður
lærir miklu meira rneð því að prófa sig áfram
og lesa enskar tölvubækur og blöð. En í
þeim finnur rnaður flestallar þær upplýsingar
sem maður þarf á að halda."
Hvað með sumarvinnuna?
„Ég verð að vinna í sjoppu á Laugardals-
vellinum í surnar og ætli ég verði svo ekki
hálfan daginn í unglingavinnunni."
- Ætlar þú að taka þér eitthvert sumarfrí?
„Frá 18. júlí-2. ágúst verð ég á keppnis-
ferðalagi með íjórða fiokki í Wales og
Skotlandi. í Wales tökum við þátt í Jan
Russ International Soccer Tournament en í
Skotlandi tökurn við þátt í The Aberdeen
International Football Festival, auk þess sem
við spilum vináttuleiki við Glasgow Rangers
og Celtic. Þetta er nú ekki eiginlegt sum-
arfrí því við verðum allan tírnann að spila
fótbolta. En okkur gefst líka einhver tími til
að fara i skoðunar- og verslunarfcrðir. Ég
veit ekki alveg hvernig þessu verður háttað
en ég veit að í Aberdeen komum við til með
að búa í mjög góðurn heimavistarskóla. Inn-
an veggja hans er boðið upp á góða tóm-
stundaaðstöðu.
En ef ég fæ fríhelgi úr fótboltanum býst
ég við að ég noti liana til að skreppa upp í
sumarbústað nteð ljölskyldunni."
Texti: Jóhanna Margrét Einarsdóttir
Mynd: Valdís Úskarsdóttir
10 VIKAN 17. TBL