Vikan - 23.04.1987, Blaðsíða 24
STÆRÐ: 36
EFNI: 1) 300 g af Fili Di Casa Fendi. Band-
ið haft tvöfalt. 2) 200 g af Fili Di Casa Fendi
Palatjno. 24 stykki 15 mm tautölur.
PRJÓNAR: Hringprjónar nr. 3'/2 og 5 eða
tveir prjónar nr. 3 '/2 og 5. Heklunál nr. 2 14.
BOLUR: Bolurinn er prjónaður í 3 stykkjum,
2 framstykki og I bakstykki. Prjónið frant
og aftur.
TÖLUR: Heklað er fastahekl utan um tautöl-
urnar með garni nr. 2.
HNAPPAGÖT: Hnappagöt eru búin til
þannig að fyrst er gerð 1 loftlykkja, þ.e. band-
inu snúið einn vafning um prjóninn. Næstu
tvær lykkjur prjónaðar saman. Þegar umf. er
prjónuð til baka er loftlykkjan prjónuð þann-
ig að lykkjufjöldinn á prj. helst óbreyttur.
HÆGRA FRAMSTYKK.I: Fitjið upp 70 1.
•á prjóna nr. 5 með garni nr. 1 og prj. I sm.
(3 umf. = I sm). í 4. umf. eru gerð hnappa-
göt. Prjónið 2 lykkjur og gerið því næst
hnappagat. Prjónið 24 lykkjur og gerið þá
annað hnappagat, prjónið út prjóninn. Gerið
hnappagöt með 4'A sm millibili.
Þegar bolurinn mælist 31 srn er komið upp
að höndum. Fellið af 3 1. undir handvegi og
takið síðan lxl 1. saman tvisvar sinnum og
eru þá eftir 66 1. á prj. Prjónið síðan áfram
2014 sm. Fellið nú af fyrir hálsmáli þannig:
Fellið af 30 1. Prjónið síðan öxlina, 314 sm,
og 2x2 1. saman til þess að fá hálsmálið hring-
laga. Endið með 34 1. á öxl.
VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 80 1.
á prjóna nr. 314 nteð garni nr. 2. Prjónið á
sama hátt og hægra framstykki nema hnappa-
götum er sleppt. Rendur eru prjónaðar
þannig. Prjónið fyrstu 11 sm með garni nr.
2, því næst 2 sm með garni nr. 1, síðan 4 sm
nteð garni nr. I, þannig að alls verða 4 rend-
ur með garni nr. 1 upp að handvegi. Frá
handvegi er prjónað nteð garni nr. 2. Fellið
341. affyrir hálsmáli ogendið með 38 I. á öxl.
BAKSTYKKI: Fitjið upp 110 I. með garni
nr. 1. Prjónið rendur. Prjónið fyrstu 13 sm
nteð garni nr. 1, 4 sm með garni nr. 2, 2 snt
með garni nr. I, 4 sm nteð garni nr. 2, 2 sm
með garni nr. 1, 4 sm með garni nr. 2 og að
lokum 2 sm með garni nr. 1 og e.' þá komið
upp að handvegi. Fellið af undir handvegi
eins og á framst. og prjónið áfram með garni
nr. 1. Þegar bakstykkið frá handvegi mælist
2014 sm eru 30 miðlykkjur felldar af og til
að fá hálsmálið hringlaga eru 2x2 I. teknar
saman. Prjónið hvora öxl fyrir sig, 314 sm.
ERMAR: Vinstri ermi er höfð einlit. Prj. með
garni nr. I. Á hægri ermi eru rendur sem eru
prjónaðar á sama hátt og á bakstykki.
Fitjið upp 44 1. á prjóna nr. 5 og prjónið slétt
fram og aftur, alls 46 sm, og aukið út um 2
1. með 2 sm millibili eða þar til 1. eru orðnar
88. Fellið af.
FRÁGANGUR: Saumið saman hliðar á bol.
saumið ermar saman. Heklið síðan kant neð-
an á bolinn, í hálsmálið og framan á ermar
þannig: Heklið fastahekl, 2 umf. i þriðju
hverja lykkju með tvöföldu garni nr. 1. Hekl-
ið síðan I umf. með garni nr. 1 en hafið það
einfalt og farið í hverja lykkju.
Hönnun: Valdís .Harrýsdóttir
Ljósmynd: Valdís Óskarsdóttir
24 VIKAN 17. TBL