Vikan - 23.04.1987, Síða 56
r
VIK A N
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA
26. APRÍL-2. MAÍ
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Reyndu að vera sjálfum þér sam-
kvæmur. Ekki geturðu ætlast til að
aðrir undirgangist það sem þú
treystir þér ekki til að samþykkja. Á
þetta mun trúlega reyna og nokkru
varðar að þú valdir engum von-
brigðum. Þú bjargarekki fjárhagn-
um í neinu snarhasti.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Láttu ekki það sem þú sættir þig við
venjulega koma þér úr jafnvægi. Þú
getur auðveldlega æst þig upp út af
smámunum en slíkt verður til ills
eins. Þú munt eiga fullt í fangi með
að afgreiða hversdagsleg viðfangs-
efni þótt þú farir ekki að reyna að
breyta öllu og bæta í kringum þig.
LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst
Talsvert umrót verður hjá þér á
næstunni en ekki líklegt að þú látir
það raska því sem afráðið hefur ver-
ið. Greiddu eins hljóðlega úr ágrein-
ingsefnum og þér er unnt. Takist það
kemur í ljós að þú hefur slegið vopn-
in úr höndum þeirra sem hyggjast
ruglaþigíríminu.
VOGIN24.sept.-23.okt.
Þú sérð sennilega fyrir endann á all-
löngu tímabili sem einkennst hefur
af togstreitu um peninga og fjár-
hagsskuldbindingar. Flýttu þér
hægt, enn eru ýmis atriði ófrágengin
sem nauðsynlegt er að taka tillit til
og miklu varðar að engir endar séu
lausir þegar upp er staðið.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des.
T rúlega reynir hver að ota sínuni
tota og vera má að þér ofbjóði
heimtufrekja og sjálfselska einhverra
sem þú umgengst daglega. Hags-
munir þínir eru þó ekki í hættu og
þú hefur gott svigrúm til að leiða
menn í allan sannleika um eðli þeirra
hluta sem um er að ræða.
VATNSBERINN 21. jan.-19. febr.
Gefðu þér tíma til að sinna þeim sem
þurfa á þér að halda en hlífast við
að æskja aðstoðar. Þú skuldar greiða
sem nú er tilvalið að endurgjalda og
enginn verður ánægðari en þú ef þú
lætur verða af því. Ekki er alltaf
auðvelt að gera sér grein fyrir hvar
gleði eraðfinna.
NAUTIÐ21.apríl-21.maí
Þú þarft á hugrekki og staðfestu að
halda. Að því mun reka að þér finn-
ist freistandi að sýna hvar Davíð
keypti ölið. Láttu það ógert vegna
þess að við það fer enginn út af spor-
inu nema þú og þú hefur nú þegar
lagt niður fyrir þér hvernig hyggileg-
ast sé að haga hlutunum.
KRABBINN 22. júní-23. júlí
Sitthvað óvænt kann að bera við og
ef til vill finnst þér sem ekki sé ein
báran stök. Það er þó til bóta að
öðlast færni í að bregðast við breytt-
um aðstæðum. Þér fer fram en gættu
þess að vera ekki of tortrygginn
gagnvart nýjungum þótt ástæðulaust
sé að gína við hverju sem er.
MEYJAN 24. ágúst-23. sept.
í þér er ferðahugur og þér finnst
tímabært að koma á hreint því sem
til stendur í þeim efnum. Þú ættir
fremur að krefja þá sem málið varð-
ar svara um óskir þeirra og fyrirætl-
anir en láta aðgerða- og áhugaleysi
ergja þig. Búðu þig undir að þurfa
að sætta ólík sjónarmið.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Breyting gæti orðið á tekjum þínum
á næstunni. Það tengist valkostum
sem þú stendur frammi fyrir og ert
sennilega á báðum áttum um.
Reyndu að vinna tíma ef þér finnst
þú ekki tilbúinn að ákveða þig. Að
því kemur að þú verður ekki í vafa
um hvaðgeraskuli.
STEINGEITIN 22. des.-20.jan.
Á næstu dögum kemur í ljós hversu
haldgóð sú vinátta er sem þú hefur
gert þér allmiklar vonir um að und-
anförnu. Orðið gætu verulegar
breytingar í vinahópnum en hvernig
sem allt veltist verður andrúmsloftið
mun betra eftir að ákveðið uppgjör
hefuráttsérstað.
FISKARNIR 20. febr.-20. rnars
Þér vegnar betur en á tímabili var
útlit fyrir og ef til vill má segja að í
næstu viku verðir þú heppnari en
þú átt skilið. Ekki skaltu samt
treysta eingöngu á lukkuna. Þú
verður, hvort sem þér líkar betur eða
verr, að hafa samráð við þína nán-
ustu varðandi það sem að þeim snýr.
Karlmenn í nautsmerkinu eru rólegir og hagsýnir. Þeir eru
þó mun rómantískari en í fljótu bragði virðist líklegt. Þetta
eru hinir dæmigerðu verndarar og kunna vel að meta kvenleg-
an yndisþokka þótt ósennilegt sé að þeir hafi mörg orð unt
slíkt. Ennfremur eru þeir manna líklegastir til að færa unn-
ustunni eða eiginkonunni blóm að tilefnislausu og gefa henni
dýrargjafir. Þegar konureru annars vegareru nautskarlar
lengi að ákveða sig en stefna hægt en örugglega að settu
marki þegar þeir eru orðnir sannfærðir um að sú útvalda verð-
skuldi þá. Þeim er eiginlegt að leggja drög að öruggri framtíð
og telja tæplega tímabært að festa ráð sitl fyrr en þeir eru
komnir í framtíðarvinnu, með öruggar tekjur ögjafnvel búnir
að komast yfir húsnæði. Þeir eru scm sagt það sem kallað er
fyrirmyndareiginmenn. Ekki er þó sambúð með nautskarli
eintómur dans á rósum og sitthvað sem eiginkonan þarf að
varast til að halda friðinn. Honum fellur til dæmis ekki að
hún sýni yfirburði sína í viðurvist annarra, jafnvel þótt hann
i hjarta sínu viðurkenni að hún sé honum fremri á einhverju
sviði og kunni að meta það sem hún hefur til síns ágætis.
Aldrei skyldi hún heldur lciðrétta hann vafningalaust, það
þolir hann illa og affarasælla að l'ara krókaleiðir til að koma
honum í skilning urn að hann hall rangt fyrirsér. Hann kann
því vel að fá afog til að sýna karlmennsku sína og þótt henni
þyki hann stundum einum of hégómlegur borgar sig fyrir
hana að bíta ájaxlinn ogþola það. í öllu falli erþað mun
betri kosturen að gagnrýna hann þvi að það þolir hann ekki.
Nautið lætur sér annt um heimili sitt, kann að láta sér líða
vel heima og langar ekkert að þvælast út um hvippinn og
hvappinn. Nautskarlinn umber konu sinni ýmsa galla oger
ekkert að núa henni þvi um nasir þótt hún sé ekki alfullkom-
in. Honum finnst mikilvægt að hafa alla þræði í hcndi sér og
þolir illa óvissu en í rauninni getur eiginkona nauts stjórnað
því sem hún vill og haft ráð nautskarlsins í hendi sér svo lengi
sem henni tekst að láta hann halda að það sé hann sent öllu
ráði. í þvíergaldurinn fólginn í sambúðmeðnauti.
56 VIKAN 17. TBL