Vikan - 30.04.1987, Page 4
18. tbl. 49. árgangur. 30. apríl-6. maí 1987. Verð 150 krónur.
FORSÍÐAN ' RÖDD RITSTJÓRNAR B í ÞESSARI VIKU
Þinghúsið í Kaupmannahöfn
prýðir forsíðuna. Valdís Óskars-
dóttir, Ijósmyndari Vikunnar, brá
sér til Kaupmannahafnar á dög-
unum, til myndatöku meðal
annars. Afraksturinn er forsíðan
og Líf og lyst.
ÚTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf.
RITSTJÓRI: Þórunn Gestsdóttir.
BLAÐAMENN: Guðrún Alfreðs-
dóttir, Fllynur Örn Þórisson,
Jóhanna Margrét Einarsdóttir,
Unnur Úlfarsdóttir.
LJÓSMYNDARI: Valdís Óskars-
dóttir.
ÚTLITSTEIKNARI:
Hilmar Karlsson.
RITSTJÓRN ÞVERHOLTI 11,
SlMI (91) 2 70 22.
AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R.
Andersen.
AFGREIÐSLA OG DREIFING:
Þverholti 11, sími (91) 2 70 22.
PÓSTFANG RITSTJÓRNAR,
AUGLÝSINGA OG DREIFINGAR:
Pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verð
í lausasölu: 150 kr. Áskriftarverð:
500 kr. á mánuði, 1500 kr. fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega eða
3000 krónur fyrir 26 blöð hálfsárs-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar nóvember, febrúar, maí
og ágúst. Áskrift í Reykjavík og
Kópavogi greiðist mánaðarlega.
Andleg sverð
Alþýðumenn um allan heim
vinna ekki með hörðum hönd-
um, heldur hug og hjarta, smíða,
ekki verkfæri og vélar, heldur
andleg sverð í sannleikans og
frelsisins þjónustugerð.
Á þessa leið segir í Alþýðu-
blaðinu daginn eftir fyrstu
verkalýðsgönguna sem fram fór
hér á landi. Sú ganga fór fram
1. maí 1923. Þá krafðist verka-
lýðurinn þess að fá átta stunda
vinnudag, mannsæmandi laun
og að óhæfir menn væru látnir
víkja úr embættum. Sum
áhersluatriðin, sem menn börð-
ust fyrir á þriðja áratugnum, eru
enn á oddinum, þó þjóðfélags-
gerðin sé töluvert breytt.
[ fyrsta maí göngum er annars
vegar verið að berjast fyrir
augnablikssigrum og hins vegar
fyrir langtímamarkmiðum, segir
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, í stuttu
spjalli hér í Vikunni. Hann
minnist á árdaga verkalýðsbar-
áttunnar hér á landi og ýmsa
áfangasigra. Auk viðtalsins við
formann Dagsbrúnar er stutt
samantekt um 1. maí 1923 sem
er merkisdagur í sögu verkalýðs-
baráttunnar.
Augnablikssigrar verkalýðsins
hafa verið margir í langri sögu.
Fjölmörg langtímamarkmið eru
líka að baki en önnur fram und-
an. Þó að sömu baráttumálin séu
enn á oddinum hafa þau ugg-
laust aðra merkingu í dag en í
upphafi. Það verður að hafa í
huga að baráttuaðferðir gær-
dagsins geta úrelst. Með hug og
hjarta verður að brýna hin and-
legu sverð í takt við tíðarandann
svo þau bíti í þágu sannleikans
og frelsisins.
6
Björg Árnadóttir, blaðamaður Vik-
unnar í London, fór á heimilissýningu
í Earls Court nýlega. í Lundúnapistli
segirhúnfrá þeirri gönguför.
10
Hvernig nær fólk árangri í starfi
-með linnulausri vinnu, óeðlilegri
nákvæmni eða skipulagi? Svarið er á
bls.tíu ogellefu.
12
Nei, ráðherra er ekki nýr sjónvarps-
þáttur. Nokkur nýleg skyndiatriði úr
fjármálaráðuneytinu.
14
Kvikmyndaleikarinn Richard
Chamberlain, í hugum margra alltaf
dr. Kildaire úr þekktri sjónvarps-
spítalaseríu, hefur gengið hægt og
bítandiuppframastigann.
18
Veröld, kostaboð og listamenn. Sagt
fráSinger.
20
Grillaður fiskur á teini, lostæti í eld-
húsi Vikunnar.
22
Leikstjórinn Ken Russell vinnur nú
að gerð kvikmyndarinnar Gothic um
Byron lávarð og Ijóðskáldið Shelley.