Vikan


Vikan - 04.06.1987, Qupperneq 12

Vikan - 04.06.1987, Qupperneq 12
Eftir Hrafii E. Jónsson Meðal menntamanna í Frakklandi gengur sú munnmælasaga að ísland sé sérstaklega dularfullt land, þar hvíli oftast lýsandi þoka yfir jöklum og glóandi eld- fjöllum og þetta útsýni hafi menn út um stofugluggana hjá sér. Sagt er að fólkið sé elskulegt og uni sér glatt við að draga fisk úr sjó og þessi atvinna gefi svo mikið af sér að enginn viti aura sinna tal og þess vegna sé fólkið áhyggjulaust. Sumum finnst þó ef til vill athyglisverðast að stúlk- urnar eru sagðar óvenju fagrar og svo ástfúsar að þær láta hjartað leiða sig frem- ur en veraldlega hagsmuni hjónabandsins endá giftast þær ekki nema til að halda veglega veislu og þá er sérstaklega lagt á borð fyrir börnin sem þær hafa áður átt með ástmönnum sínum. Bernharður hafði heyrt þessa munn- mælasögu á stúdentsárum sínum í París. Hann hafði innra með sér tekið þá ákvörð- un að einhvern tíma skyldi hann fara til íslands og sannreyna þessa sögu. Hann hafði lokið námi við verkfræðiskólann og vann nú á skrifstofu nálægt miðborginni. Honum hafði tekist að komast yfir litla íbúð í úthverfi borgarinnar. Á hverjum degi tók hann neðanjarðarlestina frá stöð skammt frá heimili sínu og lét sig dreyma á meðan lestin brunaði inn í borgina. íbúðin gleypti nær alla peninga sem hann vann sér inn og frístundirnar fóru að mestu í heimsóknir til móður hans. Bern- harður hafði verið mjög háður henni en reyndi þó að lifa sjálfstæðu lífi. Hann var með dökkt og hrokkið hár sem hann lét klippa snöggt þvi honum fannst hann ekki snyrtilegur öðruvísi. Þetta fannst móður hans líka. Hann var með stór dökk augu og allt að því feimnislegt augnaráð en samt hreinlegt eins og í forvitnu barni. Hann minntist aldrei á Island við móður sína. Dag nokkurn dó móðir hans fyrirvara- laust og honum áskotnaðist dálítill peningur í arf. Hann ákvað að nú skyldi hann láta verða af ferðinni til íslands. Margur maðurinn hefði í hans sporum útvegað sér bækur og aðrar upplýsingar um land og þjóð en það gerði ekki Bern- harður. Hann pantaði sér flugfar og fyrr en varði var hann staddur um miðjan dag í Reykjavík. Hann gaf sig allan á vald þessu landi með öllu sem það bauð upp á. Hann sinnti ekki um að verða sér úti um hótelherbergi og fór langar leiðir gang- andi niður í miðbæ með þunga ferðatösku. Hann vippaði sér inn á fyrstu ferðaskrif- stofu sem hann sá. Það var ferðaskrifstofa á vegum ríkisins og þar uppi á vegg, fyrir aftan ljósan koll afgreiðslumannsins, var stórt kort af íslandi og á kortið var merkt leið umhverfis landið með rauðri línu sem eins og skaust á milli staða, frá firði til íjarðar, yfir í eyjar og áfram í svigum umhverfis landið á bláum fleti Norður- Atlantshafsins. Kortið var umkringt Ijósmyndum af fólki á siglingu, hlæjandi fólki, fallegum stúlkum og skínandi bárum sjávarins. Hann starði hugfanginn á kortið. Hann sá brosandi andlitin og blikandi augu sem horfðu til hans af veggnum. Vangi hjúfr- aði sig að vanga með sól og mjúkar öldur í baksýn. Hann fann unaðslega tilfinningu streyma um sig allan. Ljóshærði maðurinn ávarpaði hann á ensku og Bernharður hikaði við. Hann var ekki sterkur í ensku en benti á kortið og orðin stóðu í honum. Þarna var það; landið sem hann hafði dreymt um, ægi gyrt, land elds og ísa, land ljóshærðra yngismeyja sem horfðu til hans svo innilega og hlýlega af veggnum að hann fann til klökkva innra með sér. Hann benti cnn á kortið. „Þetta hentar mér einmitt einkar vel,“ sagði hann við afgreiðslumanninn sem leit með undr- unarsvip yfir öxlina á sér, á kortið. „Eg vil sigla umhverfis landið og þannig kynþ- ast landi og þjóð, koma á alla markverða staði, eiga ánægjustundir um borð með samferðafólkinu, hvort sem er í sólstólum á dekki eða um sumarnótt i matsalnum þar sem barþjónusta er í einu horninu.“ Reyndar er ég ekki alveg viss um að hann hafi tekið svona til orða. Þetta er öllu heldur nokkuð senr ég ætla af kynnum mínum við Bernharð og hans eigin frá- sögn. Leiðir okkar lágu saman á strand- ferðaskipinu Heklu. Hann var túristi, ég dagmaður í vél og Jón háseti. Eg sá hann fyrst ganga upp landganginn skömmu fyrir brottför. Hann horfði mikið í kringum sig með þessum fallegu augum 12 VIKAN 23. TBL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.