Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 38
TIMASOUN
Lífið er bara tímasóun, segja sumir. í sumum tilfellum
getur það verið rétt. Ef þú lítur þannig á þitt líf eða ef þú
heldur að þú getir nýtt tímann betur væri ekki vitlaust að
renna yfir þessar spurningar og merkja síðan við þær sem
þér fínnst helst eiga við um þitt eigið líferni. Þetta er bara
til gamans gert en hér geturðu fengið vísbendingu um hvort
þú nýtir tímann vel eða illa.
Tölurnar í svigunum eru miðaðar við að meðalævi fólks
sé sjötiu ár. Þær eru að sjálfsögðu gróflega ályktaðar.
1. SVEFN (25 ár).
- Þarftu örugglega að sofa jafnlengi og þú gerir?
a) Já, vissulega.
b) Sennilega ekki.
c) Nei, alls ekki.
2. SAMRÆÐUR (6 ár).
- Hversu stór hluti daglegra samræðna þinna við aðra er
nauðsynlegur að þínu áliti?
a) Næstum allt.
b) Stór hluti.
c) Sennilega mjög lítill hluti.
3. SKEMMTANIR, allt frá barnaleikjum til annars tíma
sem fer i afþreyingu, svo sem sjónvarps- og kvikmyndagláp,
leikhúsferðir, spilamennska og þess háttar (8 ár).
- Gætir þú eytt minni tíma í skemmtanir og afþreyingu með
því að helga þig einhverju gagnlegra en samt notið lífsins
til fulls?
a) Ekki viss.
b) Já.
c) Nei.
4. MÁLTÍÐIR (8 ár).
- Eyðir þú að jafnaði miklum tíma í neyslu matar og drykkj-
ar, jafnvel þótt þorsti eða svengd angri þig ekki?
a) AIls ekki.
b) Já.
c) Stundum.
5. SNYRTING, til dæmis böð, rakstur og hárklipping (5 ár).
- Gætir þú dregið úr þessum þætti án þess að líta verr út
eða líða illa?
a) Vildi það gjarnan.
b) Mjög sennilega.
c) Nei.
6. FERÐALÖG, ferðir til og frá vinnu eða vegna annarra
nauðsynja, viðskiptaferðir og einkaferðalög, einnig mjög
stuttar ferðir sem tilheyra hinu daglega amstri, til dæmis
labb upp og niður stiga eða inn og út úr herbergjum (5 ár).
- Hve oft hugsarðu þig um áður en þú leggur af stað og
spyrð: Er ferðin örugglega nauðsynleg?
a) Aldrei.
b) Þegar ég er þreytt(ur).
c) Mjög sjaldan.
7. BIÐ (3 ár).
- Hvernig liður þér þegar þú þarft að bíða?
a) Leiðist alltaf og þjáist af óþolinmæði.
b) Bíð róleg(ur) og er oft upptekin(n) við eitthvað annað.
c) Bið gerir mig alltaf mjög skapvonda(n).
8. VEIKINDI, meðal annars hefðbundnir barnasjúkdómar
(3 ár).
- Hversu mikið af veikindum þínum á lífsleiðinni hefur staf-
að af eigin kæruleysi?
a) Mjög lítill hluti.
b) Ekkert.
c) Stór hluti.
9. VINNA (14 ár).
- Eyðir þú stundum of miklum tíma í smáatriði í vinnunni
í stað þess að snúa þér rakleitt að efninu?
a) Já, ég gæti trúað því.
b) Kannski, hef aldrei hugsað um það.
c) Nei, aldrei.
10. AÐ SPEGLA SIG (70 dagar).
- Eyðir þú of miklum tíma fyrir framan spegilinn?
a) Ég vona ekki.
b) Já.
c) Ég veit ekki.
nuiiEiu i
QBAIJ1J13 QB npuXs^ BQCJS Uiæ|S Sofui J3 BJJScJ 'lACj JIJJ3
B>[EJ QB SS3Cj UB BUIIJ Uin|>(IUI JO JBQS UcJ !§IJS 09 JjPUfl
•si[|ids [ij ijbj ‘BQBJUin [ij Jnjsq ncj
mss ‘sunmij ;jn[i[ J3Aqu;3 qb ocj QJ3AS|Bjmn líjqs J3 uicj un
-QSBmjX '§3A[BQ3UI BU[[n§ UUIIJ JBJBJ llcj :§IJS 08 09 IIIIIÓI
•Qtjcj JlUUaqjnQIA §0 (jn)§3[JBQI3l[
njjs ijsoq bjsuuiui qb us uinuicj euiij jbos ncj :§ijs 08 JIJA
Z.Ö) 8(q) 9(u) 01
9(3) b(q) 6(u) '6
é(3) e(q) 900 ‘8
6(3) 9(q) 8(b) 'L
8(3) zXq) 6(u) '9
9(3) 9(q) 8(b) '9
9(3) 6(q) L(v) 'P
8(3) 9(q) 900 '£
8(3) 9(q) b00 T
b(3) 9(q) 8(B) I
:DITS
38 VIKAN 33. TBL