Vikan


Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 52

Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 52
Heba Herbertsdóttir Þegar tilviljun ræður æ Eg hafði verið á heilsubótar- göngu, gleymt mér en rankaði við mér á rauðu ljósi niðri við Laugaveg. Þolinmóðar biðum við nokkrar hræður eftir því að ljósið skipti yfir á grænt svo að tæknin leyfði okkur að halda ferð okkar áfram. Lágvaxin og heldur feit- lagin kona stóð dálítið frá mér, gjóaði á mig augunum og ég sá eitthvað í svip hennar sem gaf til kynna að henni fyndist hún kannast við mig. Ég kom henni ekki fyrir mig, gat ekki yngt upp andlitið, komið á það nafni og staðsett hana í endurminning- unni. Hún færði sig nær mér og spurði í tón, sem var bæði afsak- andi og hikandi í senn, hvort ég héti ekki Jóna. Ég var í hálfgerðu galsaskapi, samsinnti Jónunafn- inu og brosti hið innra með mér því að ég hef alltaf verið hálfgert Jónufyrirbrigði. Ég viðraðist upp, áréttaði hvað langt væri síð- an við hefðum sést. Hún féllst á það, kvað það heilan mannsaldur. Ljósið hafði skipt yfir á grænt og fólkið byrj- aði að færa sig í göngustöðu og steðjaði yfir götuna. Við stóðum tvær eftir, hikandi. Til að þurfa ekki að bíða aðra ljósrás götuvit- ans spurði ég konuna hvort hún væri ekki til í að labba með mér niður Laugaveginn. Hún greip uppástunguna feginshendi og saman flýttum við okkur yfir á meðan tími gafst á ljósi vonar- innar. Við gengum saman niður Laugaveginn, sögðum fátt, virt- um hvor aðra fyrir okkur svo lítið bar á. Hún var klædd popl- ínkápu, rauðleitri, og háir hælarnir gerðu gang hennar álappalegan. Hún var greinilega óvön þeim. Mér fannst ég skessu- leg við hlið hennar, stór, útlima- löng, í flatbotnuðum sjömílna- skónum, úlpu og gallabuxum. Þegar við vorum komnar langleiðina niður Laugaveginn stakk ég upp á þvi að við fengjum okkur hressingu á Mokka. Hún greip uppástunguna eins og hönd sem rétt er drukknandi mann- eskju. Svo fórum við inn á Mokka og fengum okkur súkk- ulaði og rjómatertu en samtalið gekk stirðlega. • Svo spurði konan upp úr þurru hvað ég væri að vinna við núna, hvort ég væri að gera eitthvað sniðugt. Eftir stutta umhugsun svaraði ég því til að ég væri að hugsa um að skrifa sögu. „En SNIÐUGT,“ hrópaði hún í hrifningu og lyfti augnabrúnun- um til áherslu, „og öðruvísi," bætti hún við eftir dálitla þögn. Upphrópununum fylgdi önnur þögn. Við supum á súkkulaðinu og kjömsuðum á rjómatertunni. Hún kláraði kökuna, sleikti út um, tók servíettuna og þurrkaði sér vandlega um munninn. Svo tók hún upp sígarettu, kveikti í, og svo byrjaði hún að tala. Hún fór að tala um það hvað sumt fólk væri naskt við að finna upp á því sniðuga í lífinu. Hún rifjaði upp endurminningar um skólasystur okkar, hana Guggu, sem hafði mætt á skólaballið í óléttukjólnum hennar mömmu sinnar, með blöðru innan undir, allt til áherslu á kaflann í heilsu- fræðinni um getnað sem alltaf var sleppt i kennslunni. Henni Guggu hafði fundist sýnikennsla nauðsynleg hvað varðaði ábyrgðina á að sleppa þessum kafla - að ungar stúlkur yrðu ófrískar allt of ungar vegna þekkingarskorts. Og hún rifjaði upp hvað skólastjórinn hefði orðið æfur af reiði út af þessu. Konan hallaði sér aftur í stóln- um, slengdi höfðinu milli herða- blaðanna og skellihló. Hún hafði mjúkan og þægilegan hlátur, kitl- andi, svo að ég smitaðist og hló með henni. Hún var greinilega mjög snortin af Guggupersón- unni því að hún sagðist ennþá frétta af henni eftir krókaleiðum í gegnum systurdóttur mágkonu sinnar sem væri mikið tengd henni Guggu. 52 VIKAN 33. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.