Vikan


Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 43

Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 43
Pósturinn MÓDELSAMTÖKIN Kæri og ágæti póstur. Ég ætla að byrja á að þakka fyrir gott blað. Þannig er mál með vexti að mig langar mjög mikið til þess að ganga í Módelsamtökin en veit harla lítið um þann félagsskap. Ég vona því að Helga sé södd um þessar mundir og bið þig að upplýsa mig um allt varðandi Módelsamtökin. Það eru örugglega margir sem hafa gagn og gaman af svörum þínum. Það sem mig langar helst að vita er: 1. Eru haldin námskeið fyrir nýliða? Ef svo er. hvað eru þau þá löng og hvenær byrja þau? 2. Þarf að greiða þátttökugjald og ef svo er hvað er það hátt? 3. Er erfitt að fá inngöngu í þessi samtök? 4. Hvert á ég að snúa mér ef ég vil prófa hvort ég á möguleika á að starfa með þessum samtökum? SÆNSKIR KARLMENN Kæri póstur Ég sé stundum auglýsingar í dagblöðunum, undir dálkunum einkamál, þar sem ameriskir karlmenn óska eftir bréfaskriftum við islensk- ar konur og þá með vináttu eða jafnvel gift- ingu í huga. Ég hef engan áhuga á þessum mönnum heldur þeim sænsku. Getur þú, póst- ur góður, fundið fyrir mig heimilisfang á sænskum bréfaskiptaklúbbi sem stárfar í lík- ingu við þann ameríska. Ef þér er það um megn viltu þá vera svo góður að benda mér á hvert ég get snúið mér. Með þökk fyrir birtinguna. E.H. Nú rakstu póstinn heldur betur á gat því að ekki hefur hann minnstu hugmynd um klúbbastarfsemi afþessu tagi, hvorki í Svíþjóð né öðrum löndum. Ekki þarf þetta að merkja að þeir séu ekki til og væri ráð fyrir þig að leita á náðir sænska sendiráðsins með þessar Ég veit ekki hvers ég á að spyrja fleira svo ég bið þig bara um allar hugsanlegar upplýs- ingar um þessi samtök. Takk fyrir. 696 Módelsamtökin standa fyrir tvenns konar námskeiðum og eru þau yfirleitt haldin í jan- úar og september. Annars vegar eru þetta almenn námskeið þar sem þátttakendum er kennd snyrting, framkoma, limaburður, borð- siðir og ýmislegt sem lýtur að mannlegum samskiptum. Þessi námskeið eru opin öllum sem hafa áhuga á að læra að bera sig vel og kosta fjögur þúsund krónur fyrir tólftil sautj- án ára meðlimi en íjögur þúsund og fimm hundruð fyrir sautján ára og eldri. Hins vegar bjóða Módelsamtökin einnig upp á námskeið fyrir verðandi sýningarfólk og lýkur þeim með fyrirspurnir. Þeir geta ef til vill gert betur en pósturinn og liðsinnt þér. prófi. Þessi námskeið eru lengri en þau al- mennu, eða í skemmsta lagi sex vikur. Kennt er eftir alþjóðlegu keríi og aðaláhersla lögð á göngulag; hvernig á að bera sig þannig að lík- amsburður sé sem bestur og fötin njóti sín hvað best. Snyrting er líka afar mikilvægur liður íþessu námi. I haust er í bígerð að byrja námskeið um litahringinn. Þá mun fólk eiga þess kost að fá leiðbeiningar um hvaða litir fara því best og hvernig hægt er að raða sam- an litun án þess að allt fari í einn hrærigraut. Leiðbeinandinn kemur með þessi fræði frá Bandaríkjunum þar sem þetta hafa verið vin- sælar vangaveltur og þá ekki síst í sambandi við auglýsingar og ræðumennsku. Listin að ná athygli fólks og koma vel fyrir sjónir ann- arra getur verið flókin og ef til vill léttir litahringurinn einhverjum róðurinn. ef einhver, sem les þetta, veit af slíkum klúbbi er hann vinsamlegast beðinn að senda póstin- um línu. FIMMTÁN ÁRA MEÐ ÆÐAHNÚTA Kæri póstur Ég er fimmtán ára strákur og mitt stóra vandamál er æðahnútar á fótum. Ég er þegar búinn að frnna tvo og held að fleiri séu á leið- inni. Hvað er hægt að gera við þessu? Þetta er svo skrambi ljótt. Svo er það annað. Er til íslenskur aðdáendaklúbbur David Bowie? Ef svo er, hvert er heimilisfang hans? Bæ, bæ. Einn í hnút Þú ert nú fullungur til að eðlilegt geti talist að æðahnútar hrjái þig illilega. Sennilega værí réttast að þú litir inn hjá lækni og létir hann skoða fæturna á þér. Æðahnúta er hægt að fjaríægja ef með þarf. Póstinum er ekki kunnugt um íslenskan aðdáendaklúbb til heiðurs David Bowie en PENNAVINIR Póstinum barst bréf frá frönskum áhuga- manni um bréfaskriftir. Hann skrifar skínandi góða íslensku þannig að við birtum bréfið hans hér og ef einhver hefur áhuga á Frakk- landi og franskri menningu er tilvalið að slá til og skrifa honum. Halló, þið sem hafið áhuga á bréfaskriftum. Mig langar mikið til að eignast pennavini frá íslandi. Ég fæddist árið 1954 og langar mig að skrifast á við fólk á svipuðum aldri og ég er sjálfur. Áhugamál mín eru mörg, til dæmis frímerki, póstkort, íþróttir, ferðalög, kvikmyndir, lestur bóka og fleira og fleira. Ég vona að einhver, sem er á svipuðum aldri, skrifi mér fljótlega. Heimilisfang mitt er: Chantal Ricot Le Menoux 36200 Argenton Sur Creuse France 33. TBL VIKAN 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.