Vikan


Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 11

Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 11
Á gamalli altaristöflu frá Uröum i Svarfaðardal má sjá þessa hebresku áletrun sem táknar nafn Guðs, Jehóva. Sambærilegar áletranir má oft finna á gömlum kirkjulegum munum. fyrir rúmum 110 árum. Þá jtölluðust samtök- in Biblíunemendurnir. Til íslands kom fyrsti trúboðinn um 1920 og dvaldist hann hér um 20 ár. Síðan fjölgaði trúboðunum og komu þeir frá hinum ýrnsu löndum. Söfnuður mynd- aðist hér á landi urn 1950 og hefur hann stækkað mikið síðan. Til að ganga i söfnuðinn þarf fólk að stunda svokallað Biblíunám í allt að tvö ár. Þegar því er lokið geta menn gengið í söfnuðinn með því að taka skírn. Skírnin er stór ákvörð- un. Til að vígja líf sitt Jehóva þurfa menn að hafa skilning og þekkingu á þeirri ábyrgð sem þeir taka á sig. Sú ákvörðun er því yfirleitt vel ígrunduð. Skírnin fer fram með niðurdýf- ingu. Enginn getur gengið inn af götunni og verið gripinn inn í söfnuðinn á augnablikinu. Allt tekur þetta sinn tíma. Vottar Jehóva leggja mikla áherslu á að trúa aðeins því sem stendur í Biblíunni. Þeir reyna að sía það frá sem komið er úr heiðnum sið og þau atriði sem búin hafa verið til af seinni tíma mönnum. Skoðun þeirra er sú að aðeins það sem stendur í Biblíunni sé inn- blásið af anda.Guðs. Vegna þessa hafa vottar Jehóva lagt niður hátíðir á borð við jól og páska. Jólahald er lagt niður á þeim forsend- um að jólahátíðin sé komin úr heiðnum sið. Þetta má styðja með einföldum rökum. Ef flett er upp í íslenskri orðabók Menningar- sjóðs rná sjá að fyrst eru jól skilgreind sem ein aftrúarhátiðum kristinna manna, til minn- ingar um fæðingu Jesú Krists. Síðan kemur önnur skýring sern segir að jól séu miðsvetrar- blót i heiðnum sið. Vegna þess að jólin eru upprunnin úr heiðni telja vottar Jehóva þau ekki vera kristna há- tíð. Meðlimir safnaðarins halda aðeins eina trúarlega hátíð því hún er sú eina sem getið er í Biblíunni. Það er minningarhátíð urn dauða Krists, síðasta kvöldmáltíðin. Vottar Jehóva halda trúarlegar samkomur eða fyrirlestra á sunnudögum. Þar halda ýmsir meðlimir safnaðarins ræður unt trúarleg málefni. Eftir predikunina fer fram Biblíu- nám. Þá tekur söfnuðurinn þátt í umræðum um ákveðnar Biblíugreinar, menn fræðast um heilræði Biblíunnar og kynnast kenningum votta Jehóva. Þetta fyrirkomulag minnir helst á skóla. Samkomunni lýkur svo með söng og bæn. Einnig er starfandi svokallaður ræðuskóli. Þar fá meðlimir tilsögn í ræðumennsku til að verða hæfari til að tala við aðra um boðskap- inn og halda ræður á borð við þær.sem minnst er á hér á undan. Allir meðlimir safnaðarins þurfa að taka þátt í trúboði en eins og gefur að skilja hafa menn misgóðar aðstæður til þess. Sumir vinna því meira fyrir söfnuðinn en aðrir. Taka verð- ur tillit til fjölskylduaðstæðna, veikinda og annars sem getur gert það að verkum að rnenn geti ekki fórnað miklum tíma fyrir söfn- uðinn. En reglan er sú að enginn getur kallað sig vott Jehóva nema hann beri nafni Guðs vitni. Allir vottar Jehóva verða því að leggja eitthvað af mörkum til trúboðsstarfs. í söfn- uðinurn eru menn sern hafa trúboðið sern fullt starf en vinna hlutastarf annars staðar til að geta framfleytt sér. Þeir eru kallaðir brautryðjendur. Erlendir trúboðar gegna sama hlutverki en þeir fá húsnæði hjá samtök- unum, frítt fæði og vasapeninga fyrir persónu- legum nauðsynjum. Þess er þó vandlega gætt að enginn sæki í slíkt starf peninganna vegna, framfærslueyrir þessara manna dygði fæstum fyrir brýnustu nauðsynjum. Þó er ekki um meinlætalíf að ræða. Einnig eru útnefndir öldungar í hverjum söfnuði. Fjöldi þeirra fer eftir stærð safnaðar- ins. Ef einhver sækist eftir því að verða öldungur er tekið tillit til lífsskoðunar hans, lífsstefnu og fordæmis. Til öldunganna eru gerðar kröfur um ýmiss konar þjónustu við söfnuðinn. í raun veita þeir söfnuðinum for- stöðu. Þeir sem sinna þessum embættum eru ekki launaðir heldur verða þeir að sjá sér far- borða sjálfir. Þessi störf eru því unnin af einskærum áhuga. Vottar Jehóva hafa fjóra söfnuði starfandi á íslandi. Einn er á Akureyri og annar starfar i Keflavík. Söfnuðurinn í Keflavík er ekki í tengslum við bandaríska herliðið því vottar Jehóva gegna ekki herþjónustu. Það hefur að sjálfsögðu engin vandræði í för með sér hér á landi en getur komið mönnum af öðru þjóð- erni í alvarlegan vanda ef um herskyldu er að ræða i heimalöndum þeirra. Tveir söfnuð- ir eru starfandi í Reykjavík. í höfuðborginni er félaginu skipt í tvennt vegna þess hversu fjölmennt það er orðið. Húsrúm leyfir ekki að allir séu á samkomum á sama tíma. Söfn- uðirnir hafa aðskildan fjárhag. Meðlimirnir greiða enga ákveðna upphæð á mánuði til safnaðarins heldur styðja þeir félagsskapinn eftir efnum og ástæðum. Þannig hefur félagið ávallt verið rekið og engar aðrar fjáröflunar- leiðir verið farnar. A íslandi eru nú rúmlega 200 manns sem uppfylla þær kröfur sem gerð- ar eru til fólks sem vill kalla sig votta Jehóva en mun fleiri sækja samkomur. Vottar Jehóva nota hvorki eiturlyf né tóbak en áfengis neyta þeir í hófi. Ef urn áfengissýki er að ræða verða safnaðarmeðlimir að leggja notkun þess algerlega á hilluna. Áður en fólk tekur skírn þa f það að aðlaga lífshætti sína þessum reglum ásamt háum siðgæðiskröfum. T.d. er kynlíf utan hjónabands ekki viður- kennt. Að lokum má geta þess að vottar Jehóva trúa því að nú fljótlega taki við guðsríki hér á jörðu. Þá verður þeim sem trúað hafa af öllu hjarta og virt hafa orð Guðs gefið eilíft líf. Þá verða engar styrjaldir háðar, sjúk- dómar munu ekki þekkjast og enginn þarf að líða skort. 33. TBL VIKAN 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.