Vikan


Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 32

Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 32
Viðtal: Sigríður Steinbjörnsdóttir Myndir: helgi skj. friðjónsson Hann gekk um götur Akur- eyrar á gúmmískóm og þuldi alþingismannatalið meðan önnur börn dund- uðu sér við leiki. Hann var hrók- ur alls fagnaðar ef svo bar undir en stundum varð hann Helgi Már Barðason er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp fram undir átta ára aldur en þá fluttist hann með foreldrum sínum norður til Akureyrar. Þetta var á þeim árum sem fólk flykktist frá Akureyri suður í leit að gulli og grænum skógum. Fjölskyldan var álitin dulítið sérleg að vera að flana þetta norður í þorpshokrið en áður en langt um leið skaut hún rótum og Akureyri breyttist úr 10.000 manna þorpi í blómlegt bæjarfélag. Helgi óx úr grasi eins og þorpið og lauk stúdentsprófi frá MA vorið 1980. Leið hans lá vestur um haf þar sem hann settist á skólabekk og las bandarískar bókmenntir og leikhúsfræði. Þrátt fyrir ánægjulega dvöl þar vestra tók Helgi saman pjönkur sínar og pinkla og sigldi heim að ári liðnu. Akureyri hafði fóstrað hann vel þannig að hann fór til starfa sem kennari við gagnfræðaskólann eftir heimkom- una. Samstarf Helga og unglinganna reyndist bæði skemmtilegt og árangursríkt. Bryddað var upp á mörgu nýstárlegu eins og unglinga- þættirnir hans frá þessum tíma vitna um. En áhugi Helga á tungumálum var vakinn. Hann hélt suður á vit háskólaakademíunnar og inn- ritaði sig í ensku. Ásamt því að lesa Shake- speare og grúska í málfræði gerðist hann dagskrárgerðarmaður á Rás 2 og vann fyrst í stað við það í lausamennsku. Undanfarin tvö ár hefur hann verið fastráðinn í hálfu starfi á Rásinni. Eftir fimm ára starf hjá út- varpinu hefur Helgi Már í hyggju að söðla um og hætta. Hvað tekur við er ekki auðsvar- að. Ég innti Helga eftir æskuárunum á Akureyri. Helgi varð íbygginn á svip- inn við þessa spurningu þannig að ég ítrekaði hvort hann hefði verið uppi- vöðslusamur óknyttastrákur. Hann þvertók fyrir allt slíkt með miklum þunga. „Ég var afskaplega rólegt barn, svona fram á unglingsárin. Við vorum saman í kompaníi, nokkrir strákar sem þóttust vera sniðugir. Við vorum meira á einka- flippi, út af fyrir okkur, en að við stunduðum „practical joke“. Þetta var mikil gáfumannaklíka þar sem hver og einn var útvalinn. Okkur varð ekki skota- skuld úr að finna lausn á öllum heimsins vandamálum - skildum ekkert í af hverju pólitíkusarnir gerðu ekki þetta og hitt þar sem það lá allt í augum uppi.“ - Veltuð þið pólitík mikið fyrir ykk- ur? „Já, mikil ósköp. Ég held að við höfum lært alla alþingismannarununa fljótlega upp úr fermingu; vissum allt um hver sat á þingi, fyrir hvaða flokk, í hvaða kjör- dæmi.“ - Ríkti pólitísk eining í hópnum? „Það var nú öðru nær. Þegar ég var í gagnfræðaskóla var einn kunningi minn eitilharður kommúnisti. Hann átti eldri systur í Menntaskólanum og smitaðist af henni. Þetta var á þeim árum sem vinstri hreyfingin var mjög öflug meðal mennt- skælinga. Þessi vinur minn var mikill maóisti og rifumst við heiftarlega um póli- tík því að á þessum árum var ég sannfærð- ur sjálfstæðismaður. Síðar gerðist það að hann kúventi en ég týndist, glataði sann- færingunni og áhuga á stjórnmálum. Við vorum metnaðarfullir ungir menn á þess- um árum. Við fórum að bauka við að gefa út blað sem hét Nafnleysinginn þegar við vorum í barnaskóla. Frami okkar varð skjótur í blaðaútgáfunni því að kennar- \ 32 VIKAN 33. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.