Vikan - 05.11.1987, Page 5
THIS NOTE IS LEGAL TENDER
FOR ALL DEBTS, PUBUC AND PRIVATE
02342272 B
Treasn /*rr4tfic//iiitnlStates.
-~> 14 V tifi
mim
kominn hátt á aðra milljón.
Þá var biðlund bankans þrot-
in og reikningunum var lokað,
en samkvæmt áreiðanlegum
heimildum er langt frá því að
Pétur hafí gert upp skuldir sínar
við bankann. Og til að bæta gráu
ofan á svart hélt Pétur áfram að
gefá út ávísanir á reikning sinn.
Innistæðulausar ávísanir
Þartn 18. október gaf hann út
55 þúsund króna handhafaávís-
un, sem reyndist vera inni-
stæðulaus pegar átti að leysa
hana út í Utvegsbankanum. Það
mál hefur nú verið lagt fyrir
Bæjarþing Reykjavíkur.
Um svipað leyti var maður
nokkur sem ári fyrr hafði selt
húseign sína í gegnum Húsa-
miðlun, fasteignasölu Péturs,
með þrjár verðlausar ávísanir í
höndunum. Ákveðið hafði
verið, að fasteignasalan tæki við
um 100 þúsund krónum frá
kaupandanum meðan seljand-
inn væri erlendis. Þegar hann
kom heim og fór að spyrjast fyr-
ir um peningana gaf Pétur þau
svör, að það stæði illa á hjá
kaupandanum og hann hefði
ekki greitt sér.
En fljótlega kom í Ijsó, að
kaupandinn hafði borgað sitt, og
eftir talsvert málavafstur greiddi
Pétur upphæðina í þessum
þremur ávísunum — sem síðan
reyndust innistæðulausar. Verð-
lausir pappírssneplar. Kaupand-
inn fór þegar á fund Péturs og
tókst eftir mikla fyrirhöfn að ná
út andvirði einnar ávtsunarinn-
ar. Eftir standa 65 þúsund
krónur, og að mati Arnmundar
Backmann lögmanns seljanda
eignarinnar er þarna um grófan
fjárdrát að ræða sem nú hefur
veríð kærður til RLR. En það er
afPétri að segja, að hann skrapp
í vikuferð til London!"
Lögmaður sem hefur haft af-
skipti af málum Péturs Einars-
sonar, segist álíta, að þær fjöl-
skyldur skipti tugum, sem hafi
lent í alvarlegum vandræðum
vegna viðskipta við Pétur. „Það
versta er, að hann er svo siðlaus,
að hann ásakar jafhvel fórnar-
lömb sín fyrir að eiga sök á allri
vitleysunni og rekur þau síðan á
dyr með hamagangi. Það er
hreint ótrúlegt, að honum skuli
enn leyft að vaða uppi og stunda
viðskipti," segir viðmælandi Vik-
unnar.
Gloppa í kerfinu
Annar lögmaður sem Vikan
ræddi við, segir það alvarlega
gloppu í kerfinu, að menn geti
haldið áfram í viðskiptalífinu
eftir að búið er að dæma þá fyrir
glæpsamlegt athæfi í viðskipt-
Pétur Einarsson hefur
fengið tugi þúsunda
dollara fyrir að selja
skreið Útvegsbankans
í Nígeríu
um. „Pétur Einarsson bíður ekki
dóms, hann hefúr þegar verið
dæmdur, en honum líðst ekki
aðeins að taka ekki út dóminn,
heldur er það látið ótalið að
hann dembi sér bara út í við-
skipti með milljarðaverðmæti í
eign þjóðarbúsins, án þess að
menn láti það sig nokkru varða.
Þeir menn sem standa á bak við
Pétur Einarsson hljóta að vera
ansi bláeygir, ef ekki eitthvað
þaðan af verra,“ sagði lögmaður-
inn.
VIKAN 5