Vikan


Vikan - 05.11.1987, Blaðsíða 16

Vikan - 05.11.1987, Blaðsíða 16
Senclir lögreglunni tveggja milljón króna reikning - eftir að 70 m^nidböndum var skilað aftur Undanfarna mánuði hefur verið hljótt um myndbanda- mál þau sem komu upp um síðustu áramót er lögreglan fór inn á allar myndbanda- leigur borgarinnar og tók alls tæplega 15000 vafasöm myndbönd í sína vörslu. Máiin eru nú komin til rann- sóknarlögreglunnar sem vinnur að rannsókn þeirra. Nýlega skilaði lögreglan einni myndbandaleigunni, Videovali, 70 myndböndum sem gerð voru upptæk í aðgerðunum um áramótin...,þeir laumuðu þeim inn á leiguna til mín á sunnu- degi..“ segir Björgvin Ólafsson eigandi Videovals en hann hefur í framhaldi af þessu útbúið reikning á hendur lögreglunni upp á rúmar 2 milljónir króna sem hann telur vera það tjón sem hann varð fyrir þar sem hann gat ekki haft þessi mynd- bönd til útleigu og er lög- firæðingur hans nú með reikn- inginn. Þetta er ekki fýrsti reikning- urinn sem Björgvin sendir lög- reglunni því skömmu eftir að- gerðirnar var honum skilað 200 myndböndum og rukkaði hann lögregluna fýrir sólarhrings- leigu á þeim en hefur ekki feng- ið það borgað. Björgvin segir að með þess- um 70 myndböndum hafi verið skýrsla sem segir að myndbönd- unum sé skilað eftir að kvik- myndaeftirlitið hafi skoðað þau. Hann skilur ekki þessi vinnu- brögð því 10 mánuðir eru liðnir síðan myndböndin voru gerð upptæk og er hann að íhuga málshöfðun gegn lögreglunni ef hann fær ekki greitt leigugjald af þessum myndböndum fyrir þetta tímabil. Þórir Oddsson vararannsókn- arlögreglustjóri ríkisins segir að staða mála hjá þeim sé sú að þeir hafi rannsakað eitt þessara mála og sent það síðan ríkissak- sóknara til ákvörðunar. Þaðan kom málið aftur með beiðni um frekari rannsókn og gagnasöfn- un og væri nú verið að vinna að því. Á meðan svo er bíða hin málin. Og þá er vert að geta þess að samkvæmt heimildum Vikunnar mun koma ffam fyrirspurn á Al- þingi til dómsmálaráðherra um þetta mál í heild sinni í vetur. FRI. Ólafur Guðmundsson einn af eigendum Bergvíkur. Uppsveifla á myndbanda markaði íslenski myndbandamark- aðurinn er nú í uppsveiflu eftir að hafa dalað mikið með tilkomu Stöðvar 2 fyrir rúmu ári. Eigendaskipti á myndbandaleigum eru nú ekki tíðari en þau voru fyrir tilkomu Stöðvar 2 og nú eru gefnir út á milli 45 og 55 nýir titlar á myndböndum á mán- uði. Magnús Kjartansson fram- kvæmdstjóri Sambands rétthafa á myndböndum segir að hér á landi hafi sama sagan endurtek- ið sig og gerst hafi allsstaðar er- lendis með tilkomu sjónvarps- stöðva á borð við Stöð 2. Tíma- bundinn samdráttur á mynd- bandamarkaðinum í nokkra mánuði en síðan réttir markað- urinn aftur úr kútnum og nær fyrri fótfestu og telur Magnús markaðinn á uppleið núna. Ólafur Guðmundsson einn af eigendum Bergvíkur sfi, sem sér um að fjöifalda stóran hluta þeirra myndbanda sem koma á markaðinn, segir að það sé eng- in spurning að markaðurinn sé á uppleið og aukning á útleigum. „Myndirnar sem verið er að gefa út núna eru stöðugt yngri og yngri og við höfúm það ffam- yfir Stöð 2 að vera með nýrri myndir, enda líða 12 til 18 mán- uðir ffá því að mynd er sett á myndband þar til sjónvarpstöð á borð við Stöð 2 má taka þær til sýningar," segir Ólafur. f máli Ólafs kemur ffam að samkeppnin við Stöð 2 hefúr ekki aðeins leitt til þess að nýrri myndir eru settar á markaðinn heldur hafa gæði myndanna batnað til muna enda sé það besta leiðin fyrir myndbanda- leigurnar til að mæta samkeppn- inni. „Við höfúm alveg staðist sam- keppnina við Stöð 2 og má benda á í því sambandi að allar 16 VIKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.