Vikan - 05.11.1987, Side 38
Bamið í sínu eigin
rúmi á nóHunni
Hvert setur
mamma
Lesendur mega
gjarnan senda
okkur stuttar,
skemmtilegar
frásagnir af
börnum sínum -
eða góð ráð.
Skrifið til: Vikan
„Allt um börn“
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík.
Flest börn vilja fá að koma upp í rúm til
pabba og mömmu á nóttunni, sem getur
verið ósköp notalegt stundum en þreytandi
þegar það er orðinn fastur liður á hverri
nóttu. Hér er ráð frá móður sem tókst að
venja dóttur sína af þessu, án þess að það
kostaði leiðindi:
Hún merkti tvær krukkur: „Mömmu rúm-
tölur“ og „Siggu rúmtölur" og setti síðan 25
tölur í hvora krukku. Fyrir hverja nótt sem
Sigga svaf í eigin rúmi þá borgaði mamma
henni eina tölu og ef Sigga kom upp í til
mömmu sinnar þá borgaði hún eina tölu í
mömmu krukku.
Þegar Sigga væri búin að vinna allar töl-
urnar af mömmu sinni þá ætluðu þær að
fara saman og gera eitthvað skemmtilegt:
fara á skauta, út að borða, niður á tjörn eða
í bíó. Þetta ráð heppnaðist mjög veí og eftir
nokkurn tíma hætti Sigga alveg að koma
upp í nema ef eitthvað mikið amaði að.
Hvernig á að fá börnin til að hætta
að slást og rífast í aftursætinu
Án efa kannast flestir við bíl-
ferðir með börnunum þar sem
bfllinn er varla kominn út úr
götunni áður en úr aftursætinu
heyrist: „Hvað er langt eftir",
„Hann potaði í mig!“, „Hún er
með fæturna mín megin!“ Og
fleira í þeim dúr.
Fjölskylduföður datt það
snjallræði í hug að láta hvert
barna sinna fá góðan skammt af
smápeningum áður en lagt var
af stað í langa bílferð. Á leiðinni
urðu börnin að borga honum
einn pening í hvert sinn sem
þau gerðu eitthvað sem gerði
ferðina leiðinlega fyrir hina, en
peningarnir voru þeirra eign og
á leiðarenda máttu þau kaupa
sér það sem þau vildu fyrir
þá...og þeir sem voru þægastir á
leiðinni áttu auðvitað mest af
peningum til að eyða...
Með bros í hönd
sokkana?
Pabbinn var að klæða tveggja
ára dóttur sína — sem hann var
alls óvanur að gera. Hún sat á
gólfinu og hann fór að leita í
kommóðuskúfíunum hennar að
sokkum. í örvæntingu spurði
hann litlu dóttur sína: „Hvert
setur hún mamma þín sokkana?"
Barnið leit á hann með undrun-
arsvip. Beygði sig fram og greip
um báða fæturna og sagði:
„Hér!“.
Mamma
veit
best
• Besta láglaunastarfið: Móð-
urhlutverkið
• Besta við sumarið: Börnin
eru lieima allan daginn
• Besta við það að hafa börn-
in heima: Þau fara aftur í
skólann í september
• Besta ráðið til að fá börnin
til að hjálpa til í garðinum:
Taka sér hrífu í hönd og til-
kynna að nú ætli maður
EINN út í garð og tala við
arfann.
• Besta ráðið til að fá ærslafull
börn til að fara út að leika
sér: Slökkva á sjónvarpinu
og segja þeim að fara að
lesa bók.
• Besta sem þú getur gefið
börnunum þínum: Tíma
með þér.
• Besta sem þú getur gefið
manninum þínum: Tíma
með þér, ÁN BARNANNA.
Bestu árin þín: Þessi.
Eins og flest börn (og fullorðnir líka) var Kalli dálítið
smeykur í umhverfi sem hann þekkti ekki vel. Mamma
hans fann upp ágætisráð sem hjálpaði honum í þannig
kringumstæðum, t.d. fyrsta skóladaginn. Með tússpenna
teiknaði hún brosandi andlit í lófann á honum og þegar
hann þurfti á vingjarnlegu brosi að halda þá þurfti hann
ekki annað en líta í lófann til að muna eftir brosi mömmu
sinnar, sem hjálpaði honum við að vinna bug á hræðslunni.
Legpokinn
Börn spyrja oft um það
hvaðan þau koma og sumir
foreldrar skýra þeim írá því á
nákvæman hátt og nota rétt
heiti yfir viðkomandi líkams-
hluta. Dag einn var lítill strák-
ur á gangi með mömmu sinni,
en hún taldi sig vera búna að
útskýra þessi mál vel fyrir
honum. Litli strákurinn kom
auga á konu sem bar barn sitt í
burðarpoka framan á sér. Með
undrunarsvip spurði strákur-
inn mömmu sína: „Er þetta
legið?“.
38 VIKAN