Vikan - 28.12.1987, Blaðsíða 18
gengur í hjónaband á árinu. —
Og meira frá Danmörku, eða
réttara sagt frá Svíþjóð: Lítt
þekkt ung kona í Kaupmanna-
höfn gerir óljósa kröfu til
sænsku krúnunnar og hermir
þar loforð upp á Carl Gustaf
Svíakonung frá því hún hitti
hann í Kaupmannahöfn á síð-
asta ári.
í Noregi mun verða lögð
mikil áhersla á að einkavæða
olíuiðnaðinn. Uppi verða há-
værar deilur í þinginu, vegna
kröfu um að norska ríkið losi
sig að fiillu við hlut sinn í
Norsk-Hydro, sem er enn að
hálfu í ríkiseign.
í Noregi koma upp óvæntar
deilur, þegar líður á febrúar,
um mál sem landsmenn héldu
að væri útkljáð. - Þetta er
eitthvað skylt afskiptum hins
opinbera af fjölmiðlarekstri. í
Stórþinginu verða harðar um-
ræður um málið og munu at-
kvæðamiklir þingmenn krefj-
ast þess, að útvarp og sjónvarp
verði sett undir stjórn sér-
skipaðrar nefhdar, þar til sam-
komulag hefur náðst.
Mál Treholts skýtur upp
kollinum á ný og verður krafist
rannsóknar á mikilvægum
þætti þessa mikla njósnamáls.
Til þess að það megi verða,
þarf að kveða til einn fyrrver-
andi ráðherra og yfirmann
Treholts, sem gæti varpað Ijósi
á samskipti þeirra beggja við
tilttekna embættismenn, er
þeir áttu fúnd í Moskvu.
Þessi fyrrverandi norski ráð-
herra verður mjög tregur til
samstarfs, þegar eftir verður
leitað, enda kominn í virðulegt
embætti hjá virtri stofnun.
í Kaupmannahöfn þykir það
tíðindum sæta, að Victor
Borge hinn danski, sem búið
hefúr í Bandaríkjunum ákveð-
ur að snúa til Danmerkur og
búa þar hálft árið. — Borgar-
stjórnin samþykkir að festa
kaup á svítunni númer 100 á
hótelinu d’Angleterre, þar sem
hann gistir alltaf er hann
heimsækir Danmörku.
Óvenju þrálátt milliríkjamál
kemur upp milli Danmerkur
og Póllands í tengslum við
meinta danska njósnara í Pól-
landi. Danir munu krefjast
endurskoðunar á málinu í
heild og setja viðskiptabann á
viðskipti við Pólland til að
árétta alvöru málsins.
Mjög votviðrasamt verður í
Danmörku fram eftir sumri, en
18 VIKAN
Khomeni mun bæði þurfa að
kljást við Bandarikjamenn og
Rússa, sem munu skerast í
leikinn í Persafóastríðinu.
síðan skellur á hitabylgja um
alla Skandinavíu í lok júlí.
Baktería, sem er náskyld
þeirri er veldur sýfilis (ekki
eyðni) herjar í auknum mæli á
dýr og menn, bæði austan hafs
og vestan, þó meira í Ameríku.
— Smitberinn er örlítið
skordýr, sem finnur sér ból-
festu í húðinni. Helsta vörn
manna verður sú, að vera ekki
fáklæddir, þar sem þetta
skordýr er útbreiddast. — Gæt-
ið því vel að, og veljið hreina
sólbaðsstaði í sumar og alls
ekki í námunda við trjágróður
eða mýrlendi.
Friðarhorfúr verða mun
betri í heiminum á næsta ári.
Þó sé ég fyrir vaxandi átök í
Hvað var Carl Gustaf Svíakonungur að gera í Kaupmannahöfh í
sumar sem leið, sem á eftir að valda honum svona miklum erfið-
leikum? Hvaða loforð gaf hann þar?
Völvan segir ríka ástæðu til að
næsta sumarleyfi. . .
ríkjunum kringum Persaflóann
og munu stórveldin tvö þurfa
að skerast í leikinn, til að koma
þar á friði.
Verður síðan komið á fót
eftirliti og sé ég ekki betur en
þar séu enn á ferð Bandaríkja-
menn og Rússar, sem taka nú í
fyrsta sinn þátt í sameiginlegri
friðargæslu.
velja hreinar sólbaðsstrendur í
Ég vil einnig segja ykkur
það, að ég sé núverandi for-
seta, frú Vigdísi Finnbogadótt-
ur í sæti þjóðhöfðingja okkar
næsta kjörtímabil, a.m.k.“
Þegar hér var komið var
knúið dyra hjá völvunni okkar.
Tveir drengir stóðu við dyrnar
og spurðu: „Átt þú þennan
kött... ?“
f Noregi munu verða uppi há-
værar deilur vegna hugmynda
um einkavæðingu í ohuiðn-
aði.. .
Enn á ný mun Treholts-máiið
vekja ólgu í Noregi. Fyrrum
yfirmaður hans kemst í erfiða
aðstöðu.