Vikan - 28.12.1987, Blaðsíða 40
Leynilögregluþraut
Erl þú nútíma
Sherlock Holmes?
Mannrán í San Francisco
í einu dagblaðanna í San Francisco birtist
eftirfarandi frétt: „Kona, sem sagði lögregl-
unni að hún væri fórnarlamb mannræningja,
skaut mannræningjann á móteli snemma á
miðvikudagsmorgun og lést hann af skotsár-
inu. Konan, sem heitir Mary Thomas og er
38 ára, sagði að hún hefði verið numin á
brott úr matvöruverslun og að sá sem það
gerði hafi verið James Johnson, en hann
neyddi hana síðan til að koma með sér á
mótel í Oakland.
Mary Thomas sagði að Johnson hafi verið
orðinn þreyttur eftir ferðalagið og á því að
fylgjast stöðugt með henni hafi hann að lok-
um sofnað um miðnættið. Á meðan hann
svaf tókst Mary að ná byssunni sem hann
var með undan koddanum hjá honum og
skaut einu skoti í fáti þegar hún hélt að
Johnson væri að vakna. Hann lést samstund-
is.
Konan, aðeins íklædd náttkjól, fór þegar í
stað í gestamóttökuna og bað um að hringt
yrði á sjúkrabíl og lögregluna. Lögreglan í
San Francisco sagði að Mary Thomas hefði
horfið á mánudagsmorgni. Yfirgefinn bíll
hennar fannst fyrir framan matvöruverslun.
Alríkislögreglan hafði verið kölluð til að
rannsaka málið og verið var að leita að
Johnson þegar hann var skotinn. Mary
Thomas sagðist þekkja Johnson vegna þess
að hann og fjölskylda hans hafi eitt sinn
búið við sömu götu og hún og fjölskylda
hennar."
Þú leggur blaðið frá þér og kemst að
þeirri niðurstöðu að þarna hafi alls ekki ver-
ið um mannrán að ræða. Á hverju byggirðu
þennan grun þinn?
(Lausnina er að finna á bls. 51.)
40 VIKAN
J