Vikan


Vikan - 28.12.1987, Blaðsíða 42

Vikan - 28.12.1987, Blaðsíða 42
JÓLAMYND REGNBOGANS 7 Ishtar - myndin sem rann út í sandinn Texti: Cuörún Alfreðsdóttir Sögusviðið er kameldýra- markaður einhvers staðar í Marokkó. Söguhetjan hafði fengið að vita að hann ætti að spyrja efitir Múhammeð og þegar sá væri fundinn, ætti hannað nefna lykilorð- ið: „Ég ætla að fa eitt blint kameldýr." Of einfalt? Já, maður getur vissulega ímyndað sér að það sé tölu- verður slatti af Múhammeð- um í Marokkó og að fæstir hafl svosem áhuga á að kaupa blint kameldýr. Segjum þá að sagan sé svona: Söguhetjan ætlar að kaupa kam- eidýr með leikhæfileika; sem getur leikið blint kameldýr. í fýrstu tilraun finnur hann rétta dýrið - en fer bakþanka, ákveð- ur að rasa ekki um ráð fram og skoða fleiri. Eftir tvo daga og enn fleiri kameldýr sannfærist hann um að það fýrsta hafi verið hið eina rétta svo hann snýr til baka. — Ég ætla að fá kameldýrið sem ég skoðaði í fyrradag. - Því miður of seint. Við átum það í gær... Báðar þessar útgáfur eru dag- sannar. Sú fyrri er hluti af sögu- þræðinum í splunkunýrri kvik- mynd en hin síðari er blákaldur raunveruleikinn og átti sér stað við undirbúning kvikmyndar- innar í Marokkó. Myndin ber heitið Ishtar en hefúr gjarnan verið kölluð „myndin sem rann út í sandinn." Ástæðan er einfaldlega sú að auk þess að vera tekin í fjúkandi eyðimerkursandi Suður-Mar- okkó fór kvikmyndin langt fram úr tíma- og kostnaðaráætlunum. Þessi létta litla gamanmynd, sem aldrei var ætlað að verða neitt stórvirki, kostaði um 2,4 milljarða er upp var staðið. Leik- stjóri Ishtar og handritshöfúnd- ur er Elain May, framleiðandi er Warren Beatty, sem einnig leik- ur eitt aðalhlutverka ásamt Dustin Hoffman og Isabelle Adjani. Ishtar fjallar um tvo miðaldra, hæfileikalausa og vonlausa laga- höfunda, sem einnig vilja troða upp með afúrðir sínar. í þeirri trú að enginn sé spámaður í eig- in föðurlandi halda þeir frá New York til Mið-Austurlanda í von um ffægð og frarna. Viðkoma í landinu Ishtar (ímyndað) verð- ur þeim afdrifarík - en á nokkuð óvæntan hátt. Þessir fremur mis- lukkuðu kumpánar blandast í átök andstæðra afla; annar gerist liðsmaður bandarísku leyni- þjónustunnar CLA en hinn lætur freistast af frelsisbaráttukonu (Adjani) og aðstoðar við að reyna að koma einræðisherra landsins á kné. Vinirnir taka að vantreysta hvor öðrum all- ískyggilega - og um leið eru þeir hundeltir af andspyrnu- hreyfingunni sem og fjölda njósnara. Elaine May er tiltölulega lítt þekkt, þrátt fýrir þó nokkrar kvikmyndir sem hún hefúr gert og öðlast hafa vinsældir. Og þannig vill hún Iíka hafa það. Hún fest ekki til að ræða opin- berlega um myndir sínar og helst vill hún að nafni sínu sé sleppt á nafnalista kvikmynd- anna. Hún segist hamingjusöm- ust meðan hún er að vinna myndir sínar, t.d. gæti hún hugs- að sér að sitja um eilífið við klippiborðið, en eftirleikurinn skipti sig engu máli. Warren Beatty er meðal dyggra aðdá- enda Elain May og er vinnsla myndarinnar Ishtar þótti hafa dregist heldur á langinn sagði hann: „Elaine er mjög nákvæm- ur leikstjóri og það væri synd að reka á eftir henni. í kvikmynda- gerð verður fólk að fá að vinna eins og því best hæfir.“ Kameldýrið með leikhæfileik- ana var étið, en sem betur fer fannst annað hæfileikadýr. Verra var það með eyðimörkina. Leik- stjórinn vildi í fýrstu endilega kvikmynda ákveðið atriði í úfn- um eyðimerkursandi, með fjölda hæða og hóla. Eftir nokk- urra vikna leit fannst rétti stað- urinn syðst í Marokkó. En þá skipti leikstjórinn snögglega um skoðun og taldi miklu betra að taka atriðið upp í sléttum standi. Var því fenginn heill vinnuflokk- ur til að slétta svæðið. Warren Beatty þykir hafa sýnt vinkonu sinni Elaine May óvenjulega þolinmæði og annaðhvort hafa gleymt vasatölvunni heima eða haft ótakmarkaða trú á fyrirtæk- inu. í miðjum upptökum, með- an sandurinn fauk um eyði- Adjani, Beatty, Iloffman og „blinda“ kameldýrið. 42 VIKAN Tveir vonlausir skemmtikraftar. mörkina og fyllti vit manna og dýra, var May í óðaönn að um- skrifa handritið. Bandaríska kvikmyndapressan tvísté allt um kring í von um viðtöl og krass- andi fréttir, en enginn sagði orð. Ekki heldur meðan upptökur fóru fram í New York. Og þeir Beatty og Hofifman, sem yfirleitt eru ekki taldir með þeim auð- veldustu í stjörnubransanum, létu sér lynda að sum atriðin væru tekin upp allt að fimmtíu sinnum áður en May varð ánægð. Elaine May varð reyndar fræg fyrir „filmueyðslu" þegar hún gerði mynd sína Mickey og Nicky, en þar notaði hún helm- ingi fleiri filmurúllur en notaðar voru við tökur á myndinni Á hverfanda hveli forðum daga. En þrátt fyrir kostnaðar- og tímasprengingar og ýmsa aðra erfiðleika - m.a. áttu Hofifman og Adjani í erfiðleikum með að fá næstu verkefnum sínum frest- að - komst Ishtar loks á hvíta tjaldið. Myndin var nýlega frum- sýnd í Bandaríkjunum og var eftirvænting fólks í fullu sam- ræmi við annað sem hana varð- aði - sem sé gífúrleg. Viðtökur voru hins vegar upp og ofan, sumum fannst myndin ekki merkileg sem sú „stórmynd" sem hún var orðin meðan aðrir glöddust yfir að hún hefði ekki týnt gamanseminni í öllum ósköpunum. En ef til vill fer Elaine May ósk sína uppfyllta um að vera lítt þekkt enn um sinn, því þótt Ishtar komist á síður kvik- myndasögunnar verður það sjálfsagt af annarri ástæðu en þeirri að myndin hafi þótt marka tímamót í bandarískri kvikmyndagerð. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.