Vikan


Vikan - 28.12.1987, Side 30

Vikan - 28.12.1987, Side 30
„Fyrstu minningar mínar frá tónlistar- náminu eru þær að ég þótti vita laglaus." Sig and The Bebop Boys sem þenja hljóðfærin af mikilli lyst. Big Sig, höfuðpaur bandsins, er íslendingur í húð og hár, Sigurð- ur Flosason hinn stóri. Ég vind mér að Sigurði þegar hann hætt- ir að blása og nær andanum, ég hef nefnilega hlerað að hann hafi unnið tónskáldasamkeppni kennda við Hoagy Carmichael, hið fræga jazztónskáld, sem ailir þekkja af perlum eins og Stardust, Georgia On My Mind o.fl., en sá var fæddur í þessum sama bæ, Bloomington. ,Jú, það er rétt," segir Sigurð- ur. „Ég vann Jazzhluta þessarar keppni sem er reyndar haldin í fyrsta sinn nú í ár, en aðstand- endur hennar eru WFIU, sem er frjálsiynd útvarpsstöð hér í suðurhluta fylkisins og Indiana University. Keppnisgreinar voru þrjár, jazz, klassík og þjóðlagatón- list eða angar af henni. 1 jazz- hlutanum tóku um 50 manns þátt og ég kom út með sigur- launin, $1000.“ — Nú hlýtur að vera ánægju- legt að sigra í fyrsta sinn sem keppnin er haldin? ,Jú, jú, ég er ósköp ánægður með þetta.“ — Hvað heitir svo lagið? „Það heitir: IM MEMORIAM og er tileinkað minningu Sveins Ólafssonar fiðluleikara, saxófón- sénis og jazzfrumherja sem lést nú í haust. Afhending verðlauna fór fram 5. nóvember í beinni útsendingu í útvarpði og kvart- ettinn minn, Big Sig and The Be- boh boys var húsband í þættin- um. — Nú ert þú að spila hér í JAKE’S fyrir utan að vera í fúllu námi við háskólann. Er eitthvað fleira sem þú unir þér við utan náms? ,Já, ég hef verið að kenna svo- lítið á saxófón í einkatímum. Svo hef ég alltaf spilað svolítið með hinum og þessum hljóm- sveitum með skólanum, oftast með Tony Barron Orchestra sem spilar Big Band tónlist af verri endanum og er stílrænn arftaki Guy Lombardo. Þar er smekkleysið takmarkalaust og öll verstu einkenni swingtíma- bilsins samanþjöppuð í eitt. Við 30 VIKAN spilum sem sagt íklæddir rauð- um jökkum dansmúsík fyrir eldra fólk. Að vissu leyti hef ég mjög gaman að þessu. Ég ferðast stundum með þeim í 5—6 daga og fæ nasaþef af löngu liðinni tíð og hvað það þýddi að vera „on the road“. Við keyrum stundum í 9—10 tíma’og þurfum strax að spila þegar við komuna á áfanga- stað. Þessir fáu dagar sem ég geri þetta í einu finnast mér al- veg nóg, maður getur ímyndað sér hvernig þeim hefur liðið, köppunum sem höfðu þetta fyr- ir atvinnu allan ársins hring. Danshallirnar sem við spilum í hafa margar ekkert breyst síð- an á tímum Big Bandanna það er jafnvel sama fólkið sem kemur á dansleikina. Stundum hef ég á tilfmningunni að ég sé að spila fyrir drauga. Frá faglegu sjónar- miði er gaman að læra nýjan stíl sem gengur í berhögg við það sem mér hefúr verið kennt, en ég vildi ekki þurfa að hafa þetta fýrir atvinnu. - Og með það er hann rokinn af stað, en við notum tímann fram að næsta hléi til að kynnast honum betur: Sigurður Flosason er fæddur í Hlíðunum 22. janúar 1964, son- ur Flosa Hrafns Sigurðssonar veðurffæðings og Huldu Sigfús- dóttur bókasafnsffæðings. Tón- listarnám Sigurðar hófst í Barna- músikskólanum þegar hann var 5 ára gamall, þá tók hann til við að blása í blokkflautu og þver- flautu. Fyrstu minningar Sigurð- ar varðandi tónlistarnámið tengjast því að hann þótti lag- Iaus og foreldrar hans bjuggust ekki við neinum afrekum af drengnum á tónlistarsviðinu. Kennara hafði hann ýmsa til að byrja með, sá fýrsti er hafði mót- andi áhrif á hann var Njáll Sig- urðsson hjá honum fannst Sig- urði gaman að læra og Njáll hafði þau ummæli um hann að

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.