Vikan - 28.12.1987, Síða 38
Björn Borg
lítils virði?
Þegar Bjöm Borg fluttist
búferlum heim til Svíþjóðar
kættist Kjell Olof Feldt fjár-
málaráðherra ákaflega.
Töldu sérfræðingar fjármála-
ráðuneytisins að tennis-
stjarnan fyrrverandi og nú-
verandi viðskiptajöfúr ætti
minnsta kosti 500 milljónir
sænskar krónur sem skattur-
inn gæti nú tekið sinn toll af.
Vonbrigðin urðu yfirþyrm-
andi þegar Borg kvaðst ekki eiga
nema tæplega 50 milljónir.
Hvað hefur orðið af þessum 450
milljónum spurðu menn í for-
undran. Flestir hallast að því að
Björn Borg hafi duglega fjár-
málasérfærðinga á sínum snær-
um sem hafi tekist að koma
summunni undan.
— Það er engin vandi að gera
500 milljónir að 50 milljónum á
pappírunum, er haft eftir John
Larsson sem er skattaséní í
Svenska Handelsbankanum.
—SG.
Langþráðir jólapakkar
Þegar forseti þýska
Alþýðulýðveldisins, Eric
Honecker, sótti Sambands-
lýðveldið Þýskaland heim
nú fýrir stuttu, færði hann
með sér þá gleðifregn, að
auðveldar yrði nú fýrir Vest-
ur-Þjóðverja að færa ættingj-
um og vinum austan megin
gjaflr. Fyrir Austur-Þjóðverja
eru brevtingarnar sem
gengu í gildi 1. nóvember
síðastllðinn nánast byltinga-
kenndar.
Hingað til hafði allur innflutn-
ingur sem vakið gat pólitískar
efasemdir verið stranglega
bannaður, svo og varningur sem
óttast var að braskað væri með.
En nú eiga þessi viðhorf að víkja
fyrir þeim manneskjulegu. Með
breytingunum má nú flytja inn í
landið allt prentað mál; ffétta-
tengt og annað (t.d. dagatöl,
sem vegna „rangra" frídaga
mátti ekki áður). Að sjálfsögðu
má efnið ekki vera andróður
gegn friði eða „mæla gegn sann-
feringu sósíalíska ríkisins og
borgara þess.“ Aðrar skaðlegar
saur- og æsingabókmenntir
skulu einnig verða eftir fyrir
utan. Óáteknar kassettur og tón-
bönd má flytja inn og úr landi
og áteknar aðeins ef innihaldið
mælir ekki gegn „sannferingu
sósíalíska ríkisins og borgara
þess.“ Gert hefúr verið greiðara
fyrir innflutningi á tæknilegum
neysluvarningi (kassettutæki,
reiknivélar, kvartsúr) en ef
vídeótæki og tilheyrandi spólur
fylgja með í farangrinum, verð-
ur það að fara með út úr landinu
aftur. En allir eru ánægðir í bili:
Stjórnmálamenn —• vegna
mannúðlegrar eftirgefni, Vestur-
Þjóðverjar sem nú eiga auðveld-
ar með að uppfylla óskir systra
sinna og bræðra í Austrinu og
Austur-Þjóðverjar sjálfir sem
fengu Ioks langþráðar óskir upp-
fylltar um þessi jól.
AusturþýskJr
unglingar hafa
ástæðu tll að
fagna, því nú
eru engar
hömlur á því
hvað flutt er til
landsins, svo
fremi...
Sérfræðingar sænska fjármálaráðu-
neytisins nudduðu saman lófún-
um af ánægju er þeir endurhelmtu
Björn Borg og bjuggust við að hann
ætti sem svarar til rúmra þrlggja
milljarða tslenskra króna. Myndin
er frá íslandsför Bjöms Borg og
Jannike í síðasta mánuðl.
- Ljósmynd: Páll Kjartansson.
SVÍÞJÓÐ:
Myndum
Vidoriu
Benedictsson
Sænska sjónvarpið vinnur
nú að gerð heimUdarmynd-
ar um líf sænsku skáldkon-
unnar Victoriu Benedicts-
son. Myndin verður send út
á komandi páskum.
Victoria Maria Benedictsson
skrifaði oft undir dulnefnum og
hennar þekktasta höfúndarnafn
var Ernst Ahlgreen og hún var
jörðuð undir því nafhi í Vestre
Kirkegárd í Kaupmannahöfn.
Hún og Georg Brandes hitt-
ust þann 1. apríl árið 1887 á
járnbrautarstöðinni í Malmö.
Skáldkonan var á leið til Parísar
en hann til Rússlands. Þessi
fundur var kveikjan að sam-
bandi þeirra sem talið er hafa átt
þátt í að Victoria framdi sjálfs-
morð árið eftir.
Það er leikkonan Anette Nor-
berg sem fer með hlutverk Vict-
oriu en danski leikarinn Frits
Helmuth kemur fram sem
Brandes. —SG'
38 VIKAN