Vikan - 21.04.1988, Blaðsíða 36
Nautabuff meö rjóma-
soðnum sveppum
Kjöt
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími: 20 mín.
Eldun: 2-6 mín.
Höfundur: Sverrir Halldórsson
INNKAUP:
800 gr nautaframfillet
250 gr sveppir
4 dl rjómi
2 tsk franskt sinnep
salt, pipar
2 cl olía
2 cl koníak
HELSTU ÁHÖLD: Panna, steikarspaði
Ódýr □ Erfiður □ Heitur a
Kaldur □ Má frysta □ Annað...
ADFERD:
■ Kjötstykkið sinahreinsað og skorið í fjögur jafnstór buff og slegið létt á
þau í sárið.
■ Krydduð með salti og pipar og steikt á vel heitri pönnu, tíminn fer eftir
því hvernig þau eiga að steikjast. Þegar þau eru rétt steikt þá eru buffin
færð af pönnunni og geymd á volgum stað.
■ Sveppirnir léttsteiktir og koníakinu hellt yfir og látið leysa upp steikar-
skófina, þá er rjómanum hellt út á og soðið niður þar til rjóminn byrjar að
þykkna, bragðbætt með sinnepinu, salti og pipar.
■ Steikurnar settar út í og hitað í gegn. Borið fram með fersku grænmeti
og steiktum eða bökuðum kartöflum.
Gin og Limefrauð
Fyrir 8
Áætlaður vinnutími: 10 mín.
Geymt í 4—5 tíma
Höfundur: Sverrir Halldórsson
INNKAUP:
1 egg
2 eggjarauður
75 gr flórsykur
4 dl rjómi
2 blöð matarlím
4 cl gin
safi úr 2 Lime
HELSTU ÁHÖLD: Skál, þeytari.
Ódýr □ Erfiður □ Heitur □
Kaldur Má frysta □ Annað ...
Eftirréttur
AÐFERD:
■ Eggin og sykurinn þeytt saman.
■ Rjóminn hálfþeyttur og blandaður saman við eggjamassan.
■ Matarlímið brætt og blandað rólega saman við massann.
■ Bragðefnunum bætt í og blandað vel saman við. Hellt í glös og sett í
kæli og látið stífna í 4-5 tíma.
■ Skreytt með ferskri Limesneið og súkkulaðiskrauti.