Vikan - 21.04.1988, Blaðsíða 56
Pamela Des Barres hitti Don þegar hann var 22 ára
hann síðan til Meianie.
og missti
Melanie var ekki nema 14 ára þegarþau Don hittust fyrst. Þau giftu
sig þegar hún hafði aldur til, en hjónabandið stóð stutt.
Hann tók öllu sem bauðsf
og það sem bauðst voru
eiturlyf, áfengi og konur.
kvenfólksins. Eftir að Don gerðist leikari
flyktust þær til hans. Þegar hann var 16 ára
bjó hann um stund með 26 ára gamalli
þjónustustúlku og 18 ára gamall fluttist
hann inn hjá leiklistarkennaranum sínum
sem var 29 ára.
Árið 1968 fór Don með nokkrum félög-
um sínum til San Francisco þar sem þeir
hugðust leita gæfunnar og innan tveggja
vikna eftir að hann kom þangað fékk hann
hlutverk í leikriti þar Your Own Thing og
fékk 150 dollara á viku sem voru ágætis
laun fyrir skólastrák. Og þarna kvæntist
hann í fyrsta sinn. Brúðkaupið fór ffam
með leynd og entist í tvo mánuði.
Snemma á næsta ári hélt hann aftur til Los
Angeles og fékk þar strax hlutverk í nokkr-
um myndum, en þegar ein þeirra, sem
hann lék aðalhlutverkið í, gekk ekki eins
vel og til var ætlast þá sneru allir við hon-
um bakinu og honum fannst sem starfsferli
sínum væri lokið og þá var hann ekki
nema tvítugur.
Don Johnson gaf þó lystisemdir lífsins ekki
upp á bátinn. Hann tók öllu sem bauðst og
það sem bauðst voru eiturlyf, áfengi og
konur. Hash frá Líbanon og Nepal, kókaín
frá Suður-Ameríku og maríjuana frá Mex-
ikó og partý sem stóðu yflr dögum saman,
þar sem enginn vissi hver gestgjafmn var
eða hver borgaði fyrir allt saman. Don tók
einnig öllum tilboðum sem buðust um
kvikmyndaleik, hversu smá sem þau voru,
en „neiin“ sem hann fékk voru miklu fleiri.
„Þegar ég var að vinna snerti ég hvorki vín
né vímuefni, en um leið og starflnu var
lokið var haldið á vit vímunnar," segir
Don.
Konurnar
„Ég hef alltaf haft orð á mér fyrir að vera
kvennamaður", sagði Don nýlega í viðtali.
„En ég hef alltaf farið fínt í hlutina og geng
ekki um og kjafta frá. Þegar konu tekst að
vekja áhuga minn þá fer ég í gang. Fái hún
54 VIKAN
mig til að hlægja þá er ég fallinn. Ég reyni
þá strax að stofna til fúndar, býð henni út
að borða og held áffam að reyna að fá hana
til mín þar til hún að lokum segir já.“
Ein af þeim sem sagði já var Pamela Des
Barres sem hitti Don þegar hann var 22
ára. Vinkona hennar hafði sagt henni frá
æðislegum ungum leikara sem byggi við
hliðina á einum vina hennar. Þær tóku sig
til stöllurnar og bönkuðu upp á hjá Don
og þegar hann opnaði dyrnar þá varð Pam-
ela ástfangin: „Það var á mánudegi sem ég
sá hann fyrst og hjartað hætti að slá.“ Þeim
var boðið inn og Pamela segist hafa gert
vesældarlega tilraun til að vera fyndin og
skemmtileg. Henni hlýtur að hafa tekist
vel upp því þegar þær stöllurnar ætluðu að
kveðja þá sagði Don við hana: ,,/F.tlarðu
ekki að koma aðeins nær mér áður en þú
ferð?“ Hún settist þétt upp að honum í sóf-
anum og hann kyssti hana á hálsinn og
renndi fingrunum í gengum hárið á henni
— og hún var fallin.
Eftir fyrsta stefnumótið, þar sem þau
fóru út að borða grænmetissamlokur, þá
fylgdi Don henni riddaralega beinustu leið
í bólið hjá sér. Eftir það hittust þau á
hverju kvöldi og vanalega kom Don til
Pamelu í litla húsið sem hún bjó í. Þau
fóru saman í alls konar partý og samkomur
þar sem hún segist hafa hangið á handlegg
hans og Ijómað. Svo komu þrír dagar sem
Don lét ekki í sér heyra. Þetta var akkúrat
á sama tíma og Who héldu hljómleika í
borginni. Pamela var ákaflega veik fyrir
hljómsveitagæjum og þegar Keith Moon
hringdi og bauð henni á hljómleikana þá
fór hún — án þess að láta elsku Don vita og
hún lét hann ekki heldur vita þegar þau
fóru saman í rúmið eftir hljómleikana. En
Don komst fljótlega að hinu sanna.
Hann sagði Pamelu upp, eins og það
heitir, og sagðist aldrei vilja sjá hana meir.
Pamela var í ástarsorg því Don virtist
meina það sem hann sagði, en fimm dög-
um síðar birtist hann aftur og þau byrjuðu
upp á nýtt. Pamela hætti að vinna til að
geta helgað sig ástinni sinni, en því miður
var Don ekki heldur að vinna þannig að
fljótlega urðu þau að flytja úr stóru pipar-
sveinaíbúðinni hans í Hollywood. Þau
fúndu aðra minni og ódýrari og þegar þau
voru búin að keyra dótið sitt þangað í bíl
pabba Pamelu, þá fór Don því hann hafði
akkúrat fengið hlutverk þann daginn. Pam-
ela varð því ein að taka upp úr kössunum
og koma dótinu þeirra fyrir. Þetta tókst
svo vel hjá henni að Don varð agndofa
þegar hann kom heim aftur.
Nú hófst tímabil húsmóðurinnar hjá
Pamelu. Hún fór á fetur áður en sólin kom
upp til að búa til handa honum morgun-
mat, þvoði honum um hárið og hlýddi
honum yfir það sem hann átti segja. Þegar
Don var ekki heima og hún búin að taka til
þá eyddi hún dögunum í að hugsa um
hann. En þetta var ekki nóg, Don fann allt
að henni og fannst hún vera farin að Iáta á
sjá. Don hafði fengið hlutverki í mynd,
The Harrad Experiment þar sem hann lék
með James Whitmore og Tippi Hedren.
Pamela mátti koma með honum í vinnuna
og fylgjast með og hún var afbrýðisöm út
í alla sem unnu með Don og ef hann hvarf
henni sjónum í smátíma þá fór hún og
opnaði varlega allar dyr, með ótta í hjarta,
því hún átti von á að sjá Don í rúminu með
einhverri konunni á staðnum, en ótti
hennar reyndist ekki á rökum reistur -
þ.e.a.s. þar til litla dóttir Tippi Hedren fór
að koma með mömmu sinni í vinnuna.
Melanie hét hún og var ljóshærð og
freknótt — og 14 ára. Það leyndi sér ekki að
hún var yfir sig hrifin af Don, en hann fúll-
vissaði Pamelu að hann hefði engan áhuga
á barninu. Til þess að geta verið nálægt
Don þá hélt Melanie sig í námunda við
Pamelu, sem átti bágt með að þola opna
aðdáun hennar fyrir Don, en um leið átti
hún erfitt með að vera leiðinleg við Mel-
anie sem sérlega hress og elskuleg stelpa.
En eftir því sem samvistirnar með Melanie
og Don urðu fleiri því erfiðara átti Pamela
með að dylja afbrýðisemina. Melanie var
falleg stúlka sem var að breytast í konu,
með flatan maga og níu árum yngri. Don
sagði henni að lokum að hann þoldi ekki
að hafa hana svona nálægt sér og best væri