Vikan - 21.04.1988, Blaðsíða 49
I**a ifsgl
Travemunde er systurborg Liibeck. Hvít sandströndin og hlýtt Eystrasaltið gera hana að vin■
sælum sumardvalarstað - og ekki skaðar að þarna er myndarlegt spilavíti og útileikhús.
1
Rl> •
...
Á nokkrum stöðum í borginni eru lítil hús eins og þessi. Þarna er rólegt og gott að búa enda
eru íbúarnir flestir komnir nokkuð til ára sinna.
ir að borgarbúar séu sérlega kirkjuræknir
og að hún og fjölskylda hennar hafl sótt
kirkju á hverjum sunnudegi og auðvitað
alla hátíðisdaga. Meira að segja er nafn föð-
ur hennar og móðurbróður greipt í kirkju-
kfukkur einnar kirkjunnar, Jacobikirche
sem byggð var árið 1227, en þeir voru
hringjarar í kirkjunni áður en rafmagnið
var látið sjá um að hringja klukkunum.
Þýska ferðamálaráðið bauð nokkrum ís-
lenskum blaðamönnum í skoðunarferð
um þrjár nágrannaborgir Hamborgar í
vetur, einkum til að opna augu ferðalanga
fyrir því hversu auðvelt væri að gera
Hamborgarferðina enn betri með því að
ferðast stutta stund með lest og kynnast þá
öðru en stórborgarhliðinni á Þýskalandi.
Fyrsti viðkomustaðurinn var semsagt
Lúbeck, sem greinarhöfundi fannst falleg-
ust af borgunum þrem, en hinar tvær voru
Bremen og Múnster. Og þó við fengjum
ágæta innsýn í borgarlífið þann stutta tíma
sem við dvöldum þar í góðu yfirlæti þá er
ekki verra að fá nánari upplýsingar um
borgina frá innfæddum borgarbúa og Elise
Lexau eins og hún heitir að skírnarnafhi,
féllst á að vera „leiðsögumaður" við grein-
arskrifin. Lisa, sem gift er Bjarna Tómas-
syni málarameistara, hefur búið á íslandi
síðan árið 1949 og fór alltaf áður fyrr ár-
lega á sínar heimaslóðir til að halda tengsl-
unum eins sterkum við borgina sína og
fólkið og mögulegt er, en nú fara þau
Bjarni sjaldnar.
Gott að versla í Lubeck
Við vorum komin til Lúbeck seinni
hluta dags og áttum í erfiðleikum með að
yfirgefa lestarstöðina vegna mikils mann-
fjölda sem þar var og fólkið tróð á hvert
öðru til að komast sem fyrst inn í lestina.
Skýringuna á þessum mikla mannfjölda
fengum við þegar við hittum leiðsögu-
mann okkar í Lúbeck, sem sagði okkur að
þetta væri allt fólk sem kæmi annars staðar
frá til að versla í Lúbeck sem þykir afar
hagkvæmt. Reyndar var þetta um jólaleyt-
ið og fólk í jólagjafahugleiðingum, en þeg-
ar við vorum á ferð um borgina þá rákust
við á marga Norðurlandabúa sem koma
mikið með ferjunni ffá Danmörku til
Lúbeck, versla þar og fara síðan heim aftur
að kvöldi.
Lísa sagði að það væri ekkert undarlegt
þó Danir og aðrir fjölmenntu til borgar-
innar til að versla því verðlagið væri þar
eins hagkvæmt og af er látið og sagðist
hún sjálf alltaf versla eitthvað þar í hvert
sinn sem hún færi. Helstu verslanir sagði
hún að væru Kaarstadt, sem er stórt vöru-
hús á mörgum hæðum, en þar væri dýrara
að versla en í C&A í Múllenstrasse, sem
hún sagði að sér þætti mjög gott að versla
í og einnig væri mjög gott að versla í Ann-
ie Friede sem er staðsett rétt við ráðhúsið,
á móti Kaarstadt. Og ekki má gleyma
þekktustu verslunarvöru borgarinnar:
Niederegger marsipani, sem ffamleitt hef-
ur verið í meira en 100 ár. Marsipanið er
reyndar fáanlegt á íslandi nú en það er
ekki hægt að neita því að það er miklu
skemmtilegra að kaupa marsipanið í
Niederegger búðinni sjálfri, auk þess sem
úrvalið þar er ótrúlegt því úr marsipaninu
eru búin til heilu listaverkin sem öll
bragðast afbragsvel. Og Lísa fræðir okkur á
því að þarna sé einnig skemmtilegur kaffi-
staður sem hún og Bjarni fari alltaf á þegar
þau eru í borginni og með kaffinu er auð-
vitað gætt sér á marsipantertu.
VIKAN 47