Vikan - 12.01.1989, Síða 19
Ofnbakaðurlax
í eigin safa
Fiskur
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími: 30 mín.
Eldun: 10 mín.
Höfundur: Guðmundur Halldórsson
INNKAUP:
680 gr lax (170 gr á mann)
1/2 laukur
3 gulrætur
1 lítill blaðlaukur
2-3 stönglar sellerý
6-8 sveppir
1 teningur fiskkraftur
smjörpappír, olía, smjör
Sósan:
1/2 laukur, saxaður smátt
1 dl hvítvín
1 V2 dl rjómi
250 gr smjör (mjúkt)
1 brúskur steinselja (söxuð)
salt, pipar
HELSTU ÁHÖLD: Panna, eldfast mót.
Ódýr □ Erfiður H Heitur x
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
AÐFERÐ:
■ Laxinn er flakaöur og skorinn í ca 170 gr stk.
■ Allt grænmetiö er skoriö í julienne. Grænmetiö er aöeins hitað í smjöri
þar til þaö er orðið mjúkt.
■ Laxinn er settur á smjörpappír sem er 3 sinnum stærri og smurður meö
olíu. Roðhliöin er látin snúa niöur og grænmetið er sett ofan á laxinn. Fisk-
krafturinn er leystur upp í 2 dl af vatni og 1 msk sett yfir laxinn. Kryddið meö
salti og hvítum pipar.
■ Pappírnum er vafið vel og lokað utan um stykkin. Setjið í eldfast mót,
(grænmetishliöin snýr niður).
■ Bakaö í 160° C heitum ofni í 8-10 mínútur.
■ Sósan: Laukurinn er hitaður í smjöri þar til hann er orðinn mjúkur, þá er
hvítvíninu hellt út á og afganginum af fisksoðinu, látið sjóða niður, þá er
rjómanum bætt út í og einnig látinn sjóða niður. Síðan er mjúka smjörinu
bætt smám saman út í án þess að sósan sjóði. Sósan má ekki sjóða, því
þá er hætta á að hún skilji.
■ í lokin er saxaðri steinselju bætt út í. Krydduð með salti og pipar.
i
MYND: MAGNÚS HJORLEIFSSON
Reykt laxapaté með salati
Fyrir 6
Áætlaður vinnutími: 30 mín.
Höfundur: Guðmundur Halldórsson
Forréttur
INNKAUP:
200 gr reyktur lax
4—5 franskbrauðssneiðar
1 dl mjólk
1/2 I rjómi
1 sítróna (safi)
4 blöð matarlím, eða aspik
dill
salt, pipar
Meðlæti:
1/2 haus icebergsalat
1 tómatur
1 sítróna
1 pera
dill eða steinselja.
HELSTU ÁHÖLD: Form fyrir paté,
blandari, skál, sleif.
Ódýr H Erfiður □ Heitur □
Kaldur m Má frysta □ Annað:
AÐFERÐ:
■ Laxinn er beinhreinsaður og gerður að mauki í blandara. Kryddað.
■ Franskbrauðið er skorið i bita, án skorpu, og sett út í mjólkina og látið
mýkjast upp í þykkt deig.
■ Rjóminn er stífþeyttur og síðan geymdur í kæli.
■ Laxinum er blandað saman við mjólkurmaukið og síðan er því blandað
varlega saman við rjómann þá er matarlíminu sem búið er að bleyta upp í
vatninu og bræða með sítrónusafanum sett út í. Bragðbætt með salti og
pipar.
■ Sett í form og látið standa í kæli í 4-6 tíma.
MYND: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON