Vikan - 06.09.1990, Blaðsíða 10
LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
að sniglast um ísland
Moskvubúinn
Alexander
Valentínovitch
kom hingað til
lands til að spila
með Sniglunum.
Sigldi hingað með
íslensku fiskiskipi
og sá þá hafið í
fyrsta skipti.
Ihugum okkar er Rússinn
kauðalegur og sveita-
mannslega til fara. Af stífni
og þrjósku fer hann sínu fram.
Hann drekkur mikið vodka,
hlær rosalega, er grófur og
hrjúfur í framkomu og teflir
skák af miklum móð. Rúss-
neskar konur eru gjörsamlega
lausar við að vera lekkerar,
þær eru kubbslegar og feitar,
klæðast yfirleitt svörtu og eru
með slæðu á höfði. Svo er allt
þetta fólk kommúnistar í ofan-
álag.
Þessa ýktu mynd af rúss-
nesku fólki eða ímynd þess
fáum við héðan og þaðan,
sennilega fyrst og fremst úr
bíómyndum (amerískum),
þegar slæmsku samfélags
kommanna í austri er lýst
beint eða óbeint. Snefil af
þessari fmynd höfum við
kannski kynnst í einhverjum
mæli þegar sést hefur til rúss-
neskra sjómanna á gangi í
Reykjavík á þeim stöðum þar
sem (búar höfuðborgarinnar
hafa varla nokkurn tíma stigið
fæti. Þeir leggja leið sína (
hópum í ólíklegustu verslanir
og safna plastpokum, kaupa
túttur og bleyjur fyrir börnin
eða aðra hluti sem ekki draga
landann að í hópum til að
versla. Stundum höfum við
líka séð í svírann á háalvar-
legum frakkaklæddum fulltrú-
um sovéska sendiráðsins
gegnum afturgluggann á Volg-
unni á ferð um bæinn (ábyggi-
lega útsendarar KGB) og
íþróttaliðin, sem hingað koma
frá Sovét, eru undir miklum
heraga og þjálfarar þeirra yfir-
leitt þumbarar af kerfiskalla-
ætt. Þetta er sem sagt þraut-
fúlt fólk.
Auðvitað er það eitthvað f
fari Rússa sem býður þessari
Frh. á næstu opnu
10 VIKAN 18. TBL.1990
TEXTI: ÞORGEIR ÁSIVALDSSON