Vikan - 06.09.1990, Blaðsíða 42
BINNI OG PINNI
ANDRÉS ÖND
\
42 VIKAN 18..TBL 1990
It is , named ANTAÍ and makes Mondays
PINK, Tuesdays RED and Wednesdays PURPLE.
5 tjörnuspá
HRÚTURINN
21. mars -19. apríl
Þú hefur Iag á því að gera
ýmsa hluti vel svo að það er engin
ástæða til að láta hugfallast þótt á
móti blási um skeið. Ef allt gengur
að óskum geturðu tekið það ró-
lega um helgina.
NAUTIÐ
20. apríl - 20. maí
Taktu betur eftir því sem
gerist í kringum þig. Láttu til
dæmis umhverfisvernd ekki liggja
milli hluta. Reyndu að spjara þig í
fjármálunum og þá geta aðrir hlut-
ir einnig farið eins og þú vilt.
TVfBURARNIR
21. maí - 21. júní
Þetta var nú ansi klaufa-
legt hjá þér þarna um daginn. En
héðan af er ekkert hægt að gera.
Berðu þig vel og láttu sem ekkert
sé næst þegar þú hittir fólkið.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Það stoðar ekkert að
betrumbæta sig ef þú reiðir þig
um of á aðra. Stattu á eigin fótum
og sæktu í þig veðrið. Taktu síð-
an til óspilltra málanna og láttu
hendur standa fram úr ermum.
UÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Heppnin er stundum með
þér en þú getur ekki treyst á
hana. Stundum gerjast ástin eins
og gamall ostur en stundum er
hún þröng eins og lífstykki feitrar
konu.
tMEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Það gengur ekki að hlæja
eins og hestur sem hefur gleypt
kjötbein þótt þér sé sagt til synd-
anna. En það er eins og með ást-
ina: ef þú tekur hana létt er gam-
an - ef þú tekur hana alvarlega
erfiðar hjartað.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Vogun vinnur, vogun
tapar. Sumir segja að hjónaband-
ið sé eins og að verða sköllóttur —
ekki hægt að skipta. Vertu samt
ekki að hlusta á úrtöluraddir, láttu
slag standa.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21. nóv.
Það er allt í lagi að taka
hlutunum létt en þú þarft ekki að
vera laus í þér eins og alkalí-
steypa! Vertu ekki með svip eins
og viljaföst belja - gættu að
mennsku hliðunum.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Ef þú hefur áhyggjur af
línunum skaltu bara borða minna
og hreyfa þig meira. Það þýðir
ekkert að gína yfir öllum mat eins
og sorpgat í blokk. Fáir geta þó
haft vöxt eins og rússneskt stríðs-
minnismerki.
STEINGEITIN
22. des. - 19. janúar
Ef þú vilt hafa eitthvað
upp úr þér þýðir ekki að vera reik-
ull eins og veðurhani. Gakktu um
götur með reisn en ekki eins og
flóðhestur með gikt.
VATNSBERINN
20. janúar - 18. febrúar
Sumir geta ekki verið
snarir í snúningum, til dæmis
flugur í sírópi. Reyndu að flýta
þér að afgreiða þau mál sem þú
tekur aö þér. Mundu samt að állur
er varinn góður.
FISKARNIR
19. febrúar-20. mars
Stundum eru góðu ráðin
annarra eins og að tyggja stóra,
mjúka karamellu. Samt sem áður
þarftu ekki að taka þeim eins og
matvandur snjótittlingur. Láttu
skynsemina ráða.
18. TBL. 1990 VIKAN 43