Vikan - 01.11.1990, Side 6
„GÓDIGUD,
GEFÐU MÉR
SKIÐASKOI
JOLAGJOF“
Vikan rœðir við Árna Pétur
Guðjónsson, sem fer með
aðalhlutverkið í Fló ó skinni
Hann hefur girt
buxnaskálmarnar
ofan í hvíta sokk-
ana og taskan
hangir hirðuleysis-
lega yfir öxlina.
Andblœrinn, sem
hann ber með sér,
er ferskur, hlýr og
talsvert kíminn.
Árni Pétur Guðjóns-
son, nýja stjarnan
í Fló á skinni,
snarast inn úr
dyrunum. Bláu
augun brosa þeg-
ar hann réttir fram
höndina um leið
og hann sest.
Ósjálfrátt hlýtur
maður að hugsa:
„Nú verður sko
gaman!"
' ■.>:■»." ■
6 VIKAN 22. TBL1990
Hann byrjar strax að segja frá Flónni
eftir Georges Feydeau, þetta
óskabarn Parísar aldamótanna.
Fló á skinni er að margra áliti einn
besti gamanleikur allra tíma.
Kannski er styrkur leiksins ekki síst fólginn í
því að persónurnar eru ekki ýkjukarakterar
heldur fólk sem áhorfendur geta mjög auðveld-
lega samsamað sig við. Flóin er hreint útúrfull
af misskilningi og allt sem getur farið úrskeiðis
fer það.
- En sögusviðið, hvert er það?
„Leikurinn gerist í París aldamótanna og fer
fram annars vegar á heimili Chandebise, for-
stjóra líftryggingafélags, og hins vegar á eins
konar gistihúsi þar sem gift fólk hittist til að
eiga gleðifundi, þó ekki með þeim sem það er
gift heldur maka einhvers annars. Þetta eru að
sjálfsögðu laumulegir fundir og má segja að
þarna haldi allir við alla! Á gistihúsinu vinnur
drykkfelldur þjónn og hann leik ég, ásamt því
að vera í hlutverki forstjórans. Svo það er bara
sæmilegt að gera hjá mér á sýningum! Annars
gengur meginflétta leikritsins út á rugling sem
skapast af því hvernig fólki virðist þjónninn
drykkfelldi og forstjórinn sífellt skipta um ham
og vera síbreytilegir. Skyndilega er forstjórinn
orðinn grófur ruddi og þjónninn miklu fágaðri
en hann er vanur og enginn skilur neitt í neinu.
- En sko, sjáðu til,“ Árni Pétur hallar sér fram
og glottir, „upphaf óskapanna eru ein axla-
bönd sem Chandebise forstjóri gaf frænda sín-
um en sá gleymdi þeim á gistihúsinu og þá
fara atburðirnir að gerast býsna hratt."
- Ein axlabönd?
„Já, þessi stórkostlegí farsi veltur af stað út
frá þeim og fólk er nú búiö að hlæja sig mátt-
laust að blessaðri Flþnni áratugum saman og
á vonandi eftir'áð gera lengi enn."
- Hver er hin eina rétta skilgreining á því
hvað er gamanleikur eða farsi og hvað
ekki?
„Hin eina rétta skilgreining getur nú varla