Vikan - 01.11.1990, Blaðsíða 15
HRINGARNIR HAFA
FLOGIÐ í VETUR
Agöngu um skólann
rakst blaðamaður á
Stefán Pál Magnússon
nemanda. Við settumst að
spjalli og spurði ég hann hvað
hann vaeri að gera í FB.
Ég er á viðskiptasviði og
stefni á að klára stúdentinn
þaðan í vor. Hvað tekur við
eftir það veit ég ekki, tek mér
kannski frí. Annars er það að
mestu óráðið. Væntanlega fer
ég þó í Háskólann. I hvað veit
ég ekki.
- Hefur þú tekið virkan
þátt í félagslífinu hér?
Já, ég hef reynt að vera virk-
ur frá upphafi. Ég er reyndar
gjaldkeri skólafélagsins núna
og hef alltaf verið með puttana
í einhverju tengdu félaginu.
- Er gott félagslíf hér í
skóianum?
Ég held að það sé óhætt að
segja það. Þær fáu gagnrýnis-
raddir sem við heyrum koma
frá fólki sem er utangátta og
óvirkt. Þeir kvarta mest sem
engu nenna og ekkert gera.
- Hvað höfðar mest til nem-
endanna hér?
Ég held að busavígslan hafi
ótvírætt komið best út enda er
það atburður sem fer ekki fram
hjá neinum. Busaballið er líka
vinsælasta ballið á önninni.
Margt sniðugt gerist í öllum
látunum á busadaginn. Þegar
ég var busaður fyrir nokkrum
árum voru tveir krakkar límdir
saman með límbandi og látin
leika einhverjar listir þannig.
Þau þekktust ekkert fyrir en
um kvöldið á ballinu byrjuðu
þau saman og hafa verið sam-
an síðan!
- Hvernig er mórallinn í
skólanum?
Mórallinn er mjög góður. Að
sjálfsögðu skiptist þessi stóri
hópur fólks upp í smáhópa
eða.kllkur en þær skiptast
gjarnan eftir aldri og á hvaða
bylgjulengd fólk er. Annars eru
það meðmæli með fjölbrauta-
skólum .hversu mikil blönd-
un verður á fólki. Hér hefur
stundað nám fólk komið með
börn á unglingsaldri. Margir
hafa kynnst krökkunum og
blandast ágætlega inn í
hópinn. Ég las grein í skóla-
blaðinu um konu sem farin var
að skilja son sinn miklu betur
eftir aö hafa stundað nám f
dagskólanum, með fólki á
svipuðum aldri og hann. Ég
myndi segja að hér væri
minna kynslóðabil en í öðrum
skólum, sennilega vegna þess
að hér er fólk á svo ólíkum
aldri.
- Nú er mikið af íðilfögr-
um stúlkum hér við skólann.
Er ekki blómlegt ástarlíf?
Jú, svarar Stefán, sérstak-
lega hefur verið mikið um trú-
lofanir í ár. Þær endast þó
misjafnlega lengi. Fólk virðist
vera að henda hringunum
hvort í annað í tíma og ótíma!
FYRSTIKVENFORMAÐUR
NEMENDAFÉLAGSINS
Svava Helga Carlsen var
í vor kosin formaður
Nemendafélags Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti,
fyrst kvenna! Hún er þó enginn
nýgræðingur í félagsmálum,
hefur verið ritstjóri skólablaðs-
ins Grjúpáns, leikið í leikritum
og stjórnað leikfélagi skólans
ásamt annarri stúlku.
Þrátt fyrir mikið annríki, sem
fylgir starfi formanns NFB,
tókst blaðamanni að ná tali af
henni í matartímanum einn
daginn. Við settumst niður í
notalegu horni í nemenda-
aðstöðunni Undirheimum.
- Er ekki mikið starf að
vera formaður Nemenda-
félags FB?
Jú, geysilega mikið enda
erum við ekki svo fá hér við
skólann, fjórtán hundruð
stykki! Það má eiginlega líkja
nemendafélaginu við fyrirtæki
sem við rekum í frítíma okkar.
Starf mitt felst í því að fylgjast
með öllu í daglegum rekstri,
sjá til þess að hjólin snúist eins
og vera ber. Að auki er ég í
heilmörgum nefndum og ráð-
um á vegum skólans. Það má
nefna skólastjórn, skólanefnd,
miðstjórn, félagsstarfsráð og
ég er ritari Félags framhalds-
skólanema.
- Hvaða uppákomum
stendur NFB fyrir?
Árshátíðin er náttúrlega
stærst. Hún er haldin í febrúar
og er feikilega skemmtileg. Þá
er heill dagur tekinn algerlega
undir skemmtanir, skemmtun,
partí og ball. Busavígslan og
busaballið er það stærsta hjá
okkur hingað til í vetur. Það
eru afstaðnar hátíðir sem tók-
ust mjög vel í alla staði. Nú er
nýliðin menningarvika í tilefni
Frh. á bls. 27