Vikan - 01.11.1990, Blaðsíða 27
ÞAÐ NYJASTA FRA CLARINS:
SNYRTIVÖRUR BLANDAÐAR
GINSENGIFYRIR BÆÐIKYNIN
FJOLBRAUT
Frh. af bls. 15
afmælisins og framundan er
ferö til Vestmannaeyja þar
sem við munum etja kappi við
Eyjamenn. Keppt verður í
mælsku og (þróttum enda er
þetta íþróttaferð.
f febrúar setur leikfélagið
upp leikrit og er það árviss við-
burður. Svo verður haldið í
mikla skíðaferð til Akureyrar í
vor. Sú ferð er alltaf ógleym-
anleg öllum sem fara. Þeir
sem koma hingað í skólann
þurfa ekki að kvíða því að
hafa ekkert að gera í frístund-
um, svo mikið er víst.
Sviðin hafa líka haft öflugt
félagslíf innan sinna vébanda.
Til dæmis hefur verið farið í
ferðir vítt og breitt um landið
og fleira mætti nefna.
- En nú ert þú í námi
hér samhliða því að vera
formaður. Hefurðu einhvern
tíma til að læra?
Ég er á almennu bóknáms-
sviði, náttúrufræðibraut, og lýk
stúdentprófi ( vor. Það hefur
gengið ágætlega að sameina
námið og félagsmálastússið.
- Hvað um háskólanám?
Ertu búin að ákveða hvað þú
leggur fyrir þig?
Ég bara veit ekkert hvað ég
geri. Ef til vill fer ég í lækninn.
Hver veit? Framtíðin er að
mestu óráðin, sagði Svava að
lokum.
Snyrtivörufyrirtækið Clar-
ins hefur lengi sérhæft
sig f að framleiða vörur
sem hafa virku efnin sín úr
jurtum. Það var stórt stökk
fram á við þegar fyrirtækið
setti Eau Dynamisante vörurn-
ar á markaðinn.
Ilmvatnið (Eau de Toilett) (
þessari vörulínu vann til verð-
launa en það sameinar þrjú
hlutverk og er það fyrsta sinn-
ar tegundar á markaðnum
sem er gætt þessum eigin-
leika. (fyrsta lagi gefur það lík-
amanum ferskan ilm sem er
fenginn úr ýmsum plöntum og
er hann mjög frískandi. í öðru
lagi viðheldur það raka húðar-
innar, mýkir hana og græðir.
Þau efni sem sjá um það síð-
astnefnda eru meðal annars
unnin úr aloe og ispahgul jurt-
unum. Þriðja hlutverkið er að
veita almenna vellíðan og eru
efnin sem stuðla að því meðal
annarra ginseng, harpagop-
hytum og eleutherocoque. Ilm-
vatnið er óhætt að nota í sól.
Ný vara, svokölluð sturtu-
froða, er einnig komin á mark-
aðinn. Hún hreinsar húðina
eins og sápur gera en gefur
henni um leið ferskan ilm og
mýkir hana. Sápuefni froðunn-
ar og áhrif þeirra hafa verið
mjög vel rannsökuð í samráði
við húðsjúkdómalækna, þeim
verið breytt og þau fullkomnuð
með tilliti til niðurstaðna rann-
sóknanna. Þessi efni eiga
hvorki að þurrka né erta húð-
ina. Mörg efnanna, sem prýða
fyrrnefnt ilmvatn, eru einnig í
froðunni og má þar meðal
annarra nefna ginseng og fleiri
sem eiga að veita almenna
vellíðan.
Þriðja nýjungin í Eau Dyn-
amistante línunni er svitalykt-
areyöir. Hann hefur sótthreins-
andi áhrif, ásamt því að mýkja
húðina. Hann hjálþar til við að
uppgufun svita sé eðlileg en
grípur að öðru leyti ekki inn í
það ferli. Hann á að henta öll-
um húðgerðum, jafnvel þeim
allra viðkvæmustu og litar ekki
fatnað. Ekki þarf að minnast á
það að ilmurinn er mjög góður
og frískandi eins og af hinum
vörunum í þessari línu. □
• Og í desember kemur matarblað
með spennandi hátíðaruppskrift-
um meistarakokkanna I
matreiðsluklúbbnum Framandi.
• Völvuspáin birtist síðan I blaðinu
þar á eftir. Allt blöð sem hafa
bókstaflega verið rifin út á undan-
förnum árum og selst upp.
• Hvernig væri nú að þú tryggðir
þér Vikuna með áskrift? í áskrift
kostar blaðið vart meira en
sígarettupakki.
Áskriftarsíminn er 83122.
KÖKUBLAÐ VIKUNNAR KEMUR
Á SÖLUSTAÐI
15. NÓVEMBER
TEXTI: ÞORSTEINN ERLINGSSON