Vikan - 01.11.1990, Side 39
TEXTI OG MYNDIR: GUNNAR H. ARSÆLSSON
ÞETTA ERU ALLT SAMAN
MORÐINGIAR
- VIÐTAL VIÐ SNIGLABANDIÐ -
Sniglabandið er hljóm-
sveit sem hefur verið
starfandi f fimm ár, átti
reyndar afmæli 17. október.
Þegar nafn sveitarinnar er
nefnt detta fólki gjarnan í hug
leðurklæddir mótorhjólatöff-
arar en tengslin þarna á milli
eru þau að Sniglabandið er
hljómsveit Bifhjólasamtaka
lýðveldisins. Um þessar
mundir er Sniglabandið hús-
band á Fimmunni í Hafnar-
stræti og það var þar sem
undirritaður hitti þá félaga.
Hljómsveitina skipa Skúli
Gautason, söngvari og gítar-
leikari, Björgvin Ploder
trommuleikari, Friðþjófur Sig-
urðsson bassaleikari, Einar
Rúnarsson hljómborðsleikari
og nýjasti „limurinn" er Þorgils
Björgvinsson sem spilar á
gítar. Vegna þess að vetur er
genginn í garð lá beinast við
að spyrja þá félaga um vetrar-
starfið.
GÓÐUR VINAHÓPUR
í BULLANDI MÍNUS
„Stefnan er sú að spila sem
allra mest, sem allra vfðast,
fyrir sem flesta og fyrir sem
allra minnst!" svöruðu þeir
félagar og hlógu sem hross
væru.
Sniglabandið að leik. „Við höfum
segja þeir.
„Okkur þykir óskaplega
gaman að spila og peningar
skipta okkur ekki öllu máli.
Hljómsveitin virkar best þegar
við erum í sem mestum
mínus. Við höfum verið starf-
andi í fimm ár og skuldum ein-
mitt fimm hundruð þúsund. En
okkur líður samt ákaflega vel.
Við höfum spilað mjög þétt
núna að undanförnu og þetta
hefur allt gengið vel en hefði
ekki gert það nema af því að
við erum mjög góður vinahóp-
ur.“
- Hafið þið æft stíft
að undanförnu?
sjaldan eða aldrei verið betri,“
„Já, við höfum æft töluvert
vel núna upp á síðkastið en
fram að því var reyndin sú að
við æfðum ekki mjög stíft,
reyndar mjög „laust" ef svo
má að orði komast. Við höfum
æft svona í skorpum, stundum
hefur enginn tími verið til æf-
inga sökum þess hvað við höf-
um verið að spila mikið. Síð-
ustu helgina í september átt-
um við reyndar alveg frf og
það eru margir mánuðir síðan
það hefur gerst.“
- Hvernig verður pró-
grammið uppbyggt?
„Við erum núna á kafi í rokki
sem var framsækið á árunum í
kringum 1970 þó við setjum
eiginlega byrjunarpunktinn við
árið 1972, sem er uppáhalds-
ártal hljómsveitarinnar."
- Hvers vegna?
„Það gerðist bara svo margt
þá, til dæmis voru veiðar á
langreyði bannaðar, lyftulögin
voru samþykkt, listaverkið á
Tollhúsinu var gert árið 1972,
Jimi Hendrix dó 72 og okkar
besti bíll, svarti bíllinn, kom til
landsins 72. Samanlagður
aldur Sniglabandsins er líka
72 ár þannig að það sér hver
lifandi maður að 72 er upp-
áhaldstala Sniglabandsins."
SJALDAN EÐA ALDREI
VERIÐ BETRI
„Við höfum sjaldan eða aldrei
verið betri en nú,“ svara með-
limir Sniglabandsins aðspurð-
ir. „Gæðin hafa verið í bylgjum
í gegnum árin. Það hafa verið
vandræði með sólógítar-
leikara, andsk ... vesen með
þessa menn, en núna erum
við sennilega dottnir
niður á ►