Vikan


Vikan - 16.03.1939, Síða 20

Vikan - 16.03.1939, Síða 20
20 VIKAN Nr. 11, 1939 Salómonsdómur. I Tngfrú Jóhanna var veik, og bekkurinn hafði fengið nýja kennslukonu í henn- ar stað. Hún var mjög ung. Litlu stúlk- umar í bekknum voru allar búnar að koma sér saman um að verða vinir hennar, og hún fyrir sitt leyti var ákaflega ánægð með nemendur sína. — Þetta er skemmtilegur bekkur, sagði hún við ungfrú Svanhildi, sem kenndi þar líka. — Finnst yður það, ungfrú Þórunn, sagði ungfrú Svanhildur og brosti hæðnis- lega, — jæja, vonandi verðið þér ekki fyrir vonbrigðum. Engu er fulltreystandi. • Það var ekki talað meir um þetta, því að skólabjallan hringdi, og þær fóm hvor til sinnar vinnu. — Jæja, stúlkur, hafið þið komizt í nokkur æfintýri síðan á laugardaginn. Stúlkurnar réttu allar upp hendurnar, og þegar þær vom einu sinni byrjaðar að segja frá æfintýrunum, var hér um bil ómögulegt að stöðva þær. Það var ekki hægt að sitja kyrr í sætinu, þegar maður þurfti að segja frá skemmtilegri kvik- mynd. Og þegar ein þeirra var komin alveg upp að kennaraborðinu, leið ekki á löngu áður en allur hópurinn stóð þar, svo að ungfrú Þórunn varð að reka þær í sætin aftur. Ósjálfrátt datt henni í hug: — Engu er fulltreystandi. Allt í einu varð henni litið á kennara- borðið, þar sem bækur hennar lágu. Litla hvíta taskan hennar með pening- unum var horfin. Hún eldroðnaði af reiði, og það vom miklir peningar í töskunni. Gat það verið, að einhver stúlkan hefði notað tækifærið og stungið henni á sig, án þess að hinar hefðu tekið eftir því? 1 miklu fáti tók hún upp bækurnar og leitaði allsstaðar, en árangurslaust. Hún vissi, að hún gat hvergi hafa lagt töskuna nema á borðið. Hún sagði hörkulega um leið og hún leit yfir bekinn: — Heyrið þið, stúlkur. Þið hafið líklega tekið eftir litlu, hvítu töskunni, sem lá héma ? Einhver ykkar hlýtur að hafa tek- ið hana í gamni, en ég ætla að biðja hana að skila henni strax aftur. Ungfrú Þórunni fannst, að með þessu gæfi hún þeirri seku möguleika til að kom- ast hjá því að vera kölluð þjófur, en tónn- inn, sem hún sagði þetta í, var nægilegur til að stúlkumar gláptu allar steinþegjandi á hana. Engin þeirra svaraði. Kennslukonan roðnaði meira. Henni fannst ástúð sín vera illa launuð. — Ef engin gefur sig fram, verð ég að álíta, að stúlkan hafi alls ekki gert það að gamni sínu, heldur ætlað að stela tösk- unni. Á meðan hún talaði horfði hún frá einni stúlkunni til annarrar. Þær voru allar for- BAENASAGA viða. Hún sá, að einni telpunni var um og ó. En ungfrú Þórunn lét sem ekkert væri. Hún hugsaði, að hún skyldi fá eitt tækifæri enn til að skila töskunni. — Nú segi ég í síðasta skipti: Stúlkan, sem tók töskuna, verður að leggja hana á borðið. Nú fer ég fram stundarkorn, og ef taskan verður á borðinu, þegar ég kem inn aftur, skal ég ekki minnast á þetta framar. Hún fór út, gekk eftir ganginum, stað- næmdist við gluggann og horfði út í garð- inn. Síðan gekk hún rólega til baka og inn í bekkinn. Þar ríkti óvenjuleg kyrrð, en taskan lá ekki á borðinu. — Þá verð ég að leita hjá ykkur öllum, þó að mér sé það þvert um geð. — Líka þeirra vegna, sem saklausar eru. Ungfrú Þórunn gekk að fórnardýrinu og sagði ákaflega vingjarnlega: — Það er alveg sama, hvar ég byrja. Það er bezt, að ég byrji á þér. Stúlkan náfölnaði. — Hvað heitir þú aftur? Stúlkan svaraði ekki, en ein af sessu- nautum hennar svaraði með ákafa: — Hún heitir Helga. — Þú þarft ekki að vera hrædd, Helga mín, því að ef þú hefir ekki tekið hana, verður ekkert gert. En Helga fól andlitið í höndum sér. Sessunautar hennar réðust á skólatösku hennar eins og köttur á mús. Allt í einu var kallað sigri hrósandi: — Hérna er taskan, ungfrú Þómnn, hún var undir bók- unum hennar. Ungfrú Þórunn opnaði töskuna í flýti. Henni létti, þegar hún sá, að allir pening- arnir voru í henni. Síðan sagði hún kuldalega: — Að þú skulir ekki skammast þín, Helga! Þetta var ljótt. Þú máttir vita, að þetta hlaut að komast upp. Því næst sagði Helga, og það var eins og angistaróp: — Ég tók ekki töskuna af borðinu, ég fann hana úti í garði. — Hvaða vitleysa er þetta, barn. Reittu mig nú ekki til reiði. Það hafa áreiðanlega margar séð, að ég lagði töskuna á borðið, þegar ég kom. Stúlkurnar réttu ákaft. upp hendurnar og sögðu hver í kapp við aðra: — Ég sá það, ungfrú. — Ég sá það líka. En aumingja Helga grét í sífellu: — Ég tók ekki töskuna. Nú varð ungfrú Þómnn fyrst fyrir al- vöru reið. — Við verðum þá að tilkynna umsjón- armanninum þetta, sagði hún hátt og snjallt. I sama bili var barið að dyrum, og um- sjónarmaðuirnn stóð í dyrunum eins og hann hefði verið kallaður. — Góðan daginn, ungfrú Þórunn! Góð- an daginn, stúlkur! Mér finnst þið vera nokkuð háværar í dag? — Já, hr. umsjónarmaður. Því miður stóðum við eina stúlkuna að því að stela þessarri litlu tösku, sem lá héma á borð- inu. Stúlkurnar komu allar hingað upp að kennaraborðinu, og á meðan notaði Helga tækifærið og tók töskuna. — Þetta er ekki satt, sagði Helga. — Ég fann hana. Ungfrú Þórunn brosti vandræðalega. — Því miður eru hér mörg vitni að því, að ég lagði töskuna á borðið. Helga hágrét. Umsjónarmaðurinn lagfærði spangar- gleraugun og klóraði sér á bak við eyrað. — Má ég reyna að vera Salómon. Má ég sjá töskuna? ungfrú Þómnn. Hann skoðaði hana í krók og kring, síð- an sneri hann sér að Helgu og sagði: — Má ég sjá skólatöskuna þína, Helga mín? Þegar hann hafði opnað töskuna, tók hann upp úr henni lítinn vasaklút, sem var alveg hreinn öðru megin, en hinumegin var hann allur óhreinn. — Af hverju er klúturinn svona óhreinn, góða mín? spurði hann og brosti blíðlega. Það var eins og lítill vonarneisti hefði kviknað hjá Helgu. Hún horfði á hann og sagði: — Ég þurrkaði af töskunni með hon- um. Umsjónarmaðurinn skoðaði afur tösku ungfrúarinnar, og börnin fylgdust í ákafa með rannsóknum hans. Síðan sneri hann sér að bekknum. — Hver sá töskuna á kennaraborðinu ? Enginn gaf sig fram. Inga, sagði ein-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.