Vikan


Vikan - 01.06.1939, Blaðsíða 8

Vikan - 01.06.1939, Blaðsíða 8
8 VIKAN Nr. 22, 1939 sinn gáfaðri en sig, og það hefir hann efalaust verið þá. En sorglegt ástaræfin- týri breytti áliti hans á sjálfum sér og sheri öllum vilja hans að listinni, sem gerði nafn hans ógleymanlegt. Til þess að skilja fyrsta ástaræfintýri Turners verðum við að muna eftir því, að þá voru tímarnir mjög ólíkir því, sem þeir eru nú. Hann var sextán ára gamall, hafði unnið fyrir sér sjálfur í fjögur ár og hafði mikið sjálfsálit. Hann kom eitt sinn til Margate, lítils bæjar fyrir utan London, þar sem hann hitti fyrrverandi skólabróð- ur sinn einn, sem átti systur jafngamla Turner. Hann varð ákaflega ástfanginn af henni. Það virtist einnig allt vera í lagi frá hennar hálfu. Að minnsta kosti leit hann á hana sem unnustu sína, þegar hann fór frá Margate til vinnu sinnar í London. Hann sökkti sér þar niður í vinnuna, mál- aði eftir pöntun og kenndi einnig. Hann gekk eftir greiðslunum með fádæma áfergju. Hann missti hylli viðskiptamanna sinna smám saman fyrir nirfilsháttinn. Hann var svo ákafur að spara til þess að geta kvænzt. Það er átakanlega kátlegt að hugsa sér, að hann sparaði líka þau útgjöld að skrifa unnustu sinni. Eftir sex ára látlausa vinnu lagði lista- maðurinn, sem þá var 21 árs gamall, af stað til Margate til að biðja um hönd unn- ustu sinnar. En þá var honum sagt, að hún hefði fyrir skömmu trúlofazt öðrum og ætlaði að gifta sig næsta sunnudag. Hann heimsótti hana og foreldra hennar Turrier 22 ára. Mynd, máluð af honum sjálfum. Á þessum árum ákvað hann að verða mesti mál- ari heimsins. dag eftir dag með látlausum bænum og hótunum, en ekkert dugði. Að lokum sneri hann aftur til London gereyðilagður maður. Kornungur hafði hann hlotið mesta áfall lífs síns. Mönnum má verða ljóst, hve mikið áfallið hefir verið, þegar það er tekið til greina, að hann bjó með ýmsum kon- um og eignaðist sex börn án þess að fást til þess að ganga í hjónaband. En hann ákvað að hefna sín, og það dyggilega. Hann ætlaði að verða mesti málari heims- ins! Allir áttu að beygja sig fyrir honum, en hann ætlaði ekki að beygja sig fyrir neinum. Hvorki konum, prófessorum, listamönnum né aðdáendum. En til þess þurfti tvennt: að komast í listaháskólann og nóga peninga, svo að hann gæti verið sjálfstæður maður. Þeir skyldu verða að sætta sig við, að hann réði sér sjálfur án þess að skipta sér af því, hvað aðrir segðu. Hið djúpa sár fyrstu ástar Turners liggur á bak við öll listaverk hans. Hann hafði verið fyrirlitinn, og ætlaði að sýna henni, hvað hún hefði fyrirlitið. Hann málaði fjölda mynda, sem hann sýndi víða og seldi háu verði. 1 peninga- málum sveifst hann einskis. Hann sveikst um að borga, þar sem hann gat, og neit- aði að standa við skriflega samninga. Hann græddi stórfé, og þegar hann dó átti hann 3 miljónir króna, en það er nú sama sem 10 milljónir. I Lundúnum keypti hann mörg hús. Eitt þeirra, við Queen Anne Street, notaði hann sem bústað sinn í London. Þar voru oft saman komnir mestu listamenn þjóðarinn- ar. En Turnier var svo nízkur, að hann tímdi ekki að veita þeim. Hann bjó með Hér er ein af hinum frægu Venisíu-myndum Tumers. Þegar fram í sótti, kærði hann sig ekkert um, að myndirnar táknuðu nokkuð sérstakt.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.