Vikan - 28.09.1939, Page 6
6
VIKAN
Nr. 39, 1939
Gordon-Walker rannsóknarstofumar í Bandaríkjunum hafa byggt þessa hringekju, þar sem 50 kýr em mjólkaðar í einu. Mjaltamennimir fara
ekki til kúnna, heldur koma þagr mjólkaðar út úr hringjekjunni eftir eina umferð.
Kýrnar eru
mjólkaðar í „hringekju“.
r
Aheimssýningunni í New York sést allt hugs-
anlegt og óhugsanlegt, einnig nýtízku fjós
með sérstökum mjólkurtaekjum, rotolactor, sem
er niðurstaða 50 ára tilrauna til þess að fram-
leiða mjólk, sem er svo laus við allar bakteríur,
að hún getur komið i staðinn fyrir móðurmjólk-
ina handa ungbörnum. Starfsfólkið verður að
gæta mikils hreinlætis. Kýrnar eru þvegnar
þrisvar sinnum á dag, áður en þær eru settar í
rotolactorinn, sem er nokkurskonar hringekja
með ryðfrium mjaltavélum.
Mjólkin rennur úr rotolactornum beint inn í
hreinsunarvélina og er seld kluklcutíma síðar.
Kýrin er þvegin um leið og hún stígur inn í hringekjuna og þurrkuð með hreinu handklæði. Því
næst er mjólkin rannsökuð áður en mjólkurvélamar eru settar í gang. Fyrir neðan: Kýrskrúð-
fylking heimssýningarinnar.