Vikan


Vikan - 09.11.1939, Blaðsíða 4

Vikan - 09.11.1939, Blaðsíða 4
4 VIK A N Nr. 45, 1939 Njáluhöfundar á Austurlandi. Á þessu lítil- ræði hefir hr. Johnson ekki varað sig. Hefði honum þó verið vorkunarlaust að vita það, að sömu rannsóknarreglur verða að gilda um matið á staðþekkingu Njáluhöfundar í Rangár- og Múlaþingi. Hr. Johnson hneykslast mjög á því, að ég telji það vera ,,ritvillu“, er í Njáluhand- ritum stendur um för Flosa frá Krossa- vík, að hann hafi farið „norður til Vopna- fjarðar". Ég ætla nú samt að leyfa mér að halda fast við þá skoðun. Af ferðasögu Flosa má sjá, svo ekki verður um villzt, að Njáluhöfundur veit fyllstu skil á því, að Krossavík er í Vopnafirði. Hvernig mætti hann þá hafa komizt svo að orði, að Flosi færi frá Krossavík norður til Vopnafjarðar? Auk þess stendur með skýrum stöfum í einhverju bezta hand- ritinu af Njálssögu hinn rétti leshátt- ur: „Þaðan fór Flosi norðan úr Vopnafirði". Hefir það sýnilega villt Johnson, að þau eru fleiri handritin, sem hafa rangfærsl- una. Færi óneitanlega betur á því, að þeir, sem fást við fræðistörf gættu þess, að vitnisburður heimildar verður eigi meira virði, þótt hann sé margsinnis endurritað- ur. — Skal svo látið útrætt um „röksemda- færslu“ hr. Johnsons. Hingað til hefir fræðimönnum komið mæta vel saman um það, að staðþekking Njáluhöfundar á Austurlandi sé ágæt og langt um öruggari en sunnan lands. Útfrá þeirri forsendu dró hinn ágæti vísindamaður dr. Guðbrandur Vigfússon þá ályktun, að Njáluhöfundur hefði búið á Austurlandi. Sigurður forn- fræðingur Vigfússon hefir einnig náið at- hugað staðháttalýsinguna í ferðasögu Flosa og komizt að þeirri niðurstöðu, að hún væri „öll rétt, að því er séð verður og vel og skilmerkilega frá sagt“. Hr. John- son getur þessara ummæla í grein sinni og lætur sér ekki fyrir brjósti brenna að slá því föstu: ,,að Sigurður hafi ekkert at- hugað það, hvernig átti að ferðast milli byggðarlaga og bæja svo eðlilegt væri“. Ennfremur segir hann, að Sigurður eigi „sýnilega við það, að höfuðdrættir leiðar- innar eru réttir, — Fljótsdalur—Njarðvík —Vopnafjörður—Fljótsdalur.“ Sigurður tekur það þó skýrt fram, að hann eigi við ferðalýsinguna í heild sinni, þar eð hann segir, að hún sé „öll rétt“. Má af þessum vafningum hr. Johnsons ráða, að honum finnist það vanta á hjá Sigurði, að hann geti sér til um ýmsar aðstæður við för Flosa, sem ekkert verður vitað um og gagnrýni síðan ferðasöguna á þeim grund- velh. Frásögn Njáluhöfundar gefur enga átyllu til þeirrar skoðunar, að Flosi ferðist öðruvísi um Múlaþing en „eðlilegt væri.“ Einmitt á þetta atriði leggur Sigurður fornfræðingur áherzlu í umsögn sinni. Að sjálfsögðu var honum það ljóst, svo sem ðllum öðrum sæmilega vitibornum mönn- um, að fleira getur ráðið vegavali á ferða- lagi en skemmsta leiðin milli viðkomu- staða. 111111111111111111111111111 iimi imiinitiiiKnuiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiimmiiuiiimiiiiiiiiiiuiiiiii'^ Stefán Jónsson: Sá uppsker ei stundum, sem erjaði og sáði, — á akrinum verður oft tjón. — Sú sorgarfregn heim til mín nýlega náði, að nú sé hann látinn, hann Jón. Hann Jón bar ei hátt þess, sem lofar og lofar og liðstyrk í þjóðmálum fékk, en virðingatröppurnar ofar og ofar hjá ýmsum flokkum hann gekk. Hann Jón greiddi vel sínar skuldir og skatta, og var skínandi fríður í sjón. Menn þrifu með lotningu húfur og hatta af höfði, er sáu þeir Jón. Hans andlit var slétt og í öllu hans fasi var eitthvað svo höfðingleg ró, að menn töldu öruggt, sem anda í glasi, það eðli, er með honum bjó. En smá-skratti sat þó um sál hans í leyni, í sátt við hans yfirborð glæst, og hjarta Jóns gerði að húsi úr steini, svo hjartað var upp frá því læst. Þótt grönnunum dyldist — það daglega skeði með dulúð hann sálina fann. Á einveru stundunum glöð mjög í geði hún gekk og til fundar við hann. I lokuðu hjartanu hólpin þau sátu og hófu þar tröllslegan dans. Þau slógu upp veizlu og illkvittin átu þar æru hvers samferðamanns. Og svo þegar lífið við líkamann @kildi, og lokið var störfunum hér, með sálinni smá-skrattinn sítryggur fylgdi og sagði: „Þú kemur með mér.“ Án forms og án efnis um loftið þau liðu og leyndust því mannanna sjón. Og glottandi kistunni klofvega riðu í kórnum, er grafinn var Jón. Og smá-skrattinn sagði: — I einingu andans við átt höfum samleið um skeið og þess vegna sanngjarnt mér finnst að til fjandans eg fylgi þér beinustu leið. Já, víst er það mörgum, sem varð á að þoka af veginum rétta — til tjóns. En sjá, það var angi af sjálfbirgingshroka, er settist í hjartað hans Jóns. 'u laiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinifi ll■llllll■lllll■■lll ii iiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiii«iiiiii*iliaiiiiiiiitilliiiiiiiiiiiitiiiiilltiiiiiiiiiiiiiiiiv'»* i ■ i ■ ■ ■■ ■ ■ i ii ■ ■ ■ ■ ■ ■ i ■ ■ iii ■ ■ i ■ ■ ■ i ■ ■ ■ ■ ■ ■ i ■ ■ ■ ■ i ■ ■ i ■ i ■ 111 ■ 1111 iiiiimiiMiiiiriiiiinmimiiiiiiiiimiiimiiiiMiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiminiiiiiiiimiiimiiiMiiiiiiiiimmiiiiiiiiimiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiii

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.