Vikan - 09.11.1939, Blaðsíða 22
22
V I K A N
Nr. 45, 1939
í sýningarglugga Jóns Björnssonar í
Bankastræti hafði Goodtemplarareglan
sýningu á ýmsu, er að gagni mætti koma
til að draga úr áfengisneyzlu meðan bind-
indisvikan stóð yfir. Meðal annarra tal-
andi tákna stóð þar ein og yfirgefin
svartadauðaflaska á palli með 20 mjólkur-
flöskum, en 20 lítrar af mjólk kosta álíka
mikið og ein flaska af svartadauða. Margir
komu á vettvang til að virða þetta fyrir
sér, og ýmsum fannst mikið til um yfir-
sjónir mannanna, en aðrir létu sér fátt
um finnast og voru allskostar ófáanlegir
til að skipta um skoðun og lífsstefnu í
áfengismálunum. T. d. sagði vegfarandi
einn, sem varð litið snögglega á flöskurn-
ar, um leið og hann gekk fram hjá:
— Mjólk! Hver hefir nokkru sinni orðið
fullur af mjólk?
#
Einhverju sinni bar svo til á fiskþerri-
reit í þorpi einu norðanlands, að stúlka leit
upp og spurði:
— Hvað skyldi klukkan vera orðin
margt?
Kona, sem hafði úr, leit þegar á það og
svaraði:
— Hún á eftir fjórða part í fimm.
— Hún á eftir kortér, sagði önnur, sem
líka bar úr og hafði litið á það um leið
og hin. Sú þriðja leit upp á þorpsklukkuna
og mælti:
— Já, hún á eftir fimmtán mínútur í
fimm. Hefur þá ein fiskþurrkunarkonan
upp raust sína og segir gremjulega:
— Ja, aldrei ber klukkum saman!
#
Guðrún Einarsdóttir í Húsavík, ættuð úr
Mývatnssveit og náskyld Benedikt Grön-
dal, var orðheppin og skjót til svara. Hún
unni söng og ljóðum og kunni margt ís-
lenskra kvæða. Einu sinni var Guðrún boð-
in á söngskemmtun í Húsavíkurkirkju af
góðkunningja sínum; var hann einn úr
flokki þeirra, sem syngja áttu í kirkjunni.
Að söngnum loknum kom Guðrún heim til
kunningjans, sem spurði, hvernig henni
hefði geðjazt að söngnum.
— Jú, söngurinn var fallegur, svaraði
Guðrún, — en þið níddust ekki á móð-
urmálinu.
Hafði gömlu konunni fundizt þeir syngja
óþarflega marga útlenda texta.
Guðlaugur Þorsteinsson frá Geiteyjar-
strönd í Mývatnssveit var orðvar maður
og óáreitinn og sóttu þeir ekki gull í greip-
ar hans, er vildu fá hann til að segja frétt-
ir af náunganum.
Einhverju sinni voru spjátrungar nokkr-
ir að tala um^veitunga sína og Guðlaugs
við hann, en Guðlaugur var fáorður að
vanda. Var hann þá til heimilis í Vogum.
Loks spyr einn gárunginn:
— Eru þeir ekki voðalega latir, Voga-
bræður?
— Ekki hafa þeir kvartað um það við
mig, svaraði Guðlaugur, í styttingi, stóð
upp og fór.
*
Jón Þórðarson í Hlíðarhúsum var um
langa hríð einn merkasti formaður í
Reykjavík á síðari hluta 19. aldar. Þá
bjuggu utanbæjarmenn ævinlega hjá for-
manni sínum. Eina vertíð kom í skiprúm
til Jóns Norðlendingur einn, stæðilegur
maður og nokkuð á lofti, eins og títt þótti
um þá. Fyrsta morguninn sem gengið var
til skips, víkur Norðlendingurinn sér að
formanninum og segir:
— Ég ætla að láta þig vita það, Jón,
að ég sit ekki í austurrúminu, til þess að
ausa hlandið úr Sunnlendingunum.
Jón Þórðarson svaraði með mestu hægð:
— Vertu ekki neitt hræddur um það,
góði minn; þar læt ég ekki nema mína
beztu menn.
— Veiztu, hvaða munur er á W. C. og
klæðaskáp ?
— Nei.
— Varaðu þig þá að villast ekki, vinur.
Skák. Bonemonth 1939.
Drottningar-indversk vöm.
Hvítt: S. Landau. Svart: S. Flohr.
1. d2—d4, Rg8—f6; 2. c2—c4, e7—e6; 3.
Rbl—c3, Bf8—b4; 4. e2—e3, 0—0; 5. Bfl
—d3, d7—d5; 6. Rgl—f3, c7—c5; 7. 0—0,
Rb8—c6; 8. a2—a3, Bb4—a5 ? Flohr ætlar
sjáanlega að rugla andstæðinginn með því
að tefla óreglulega og þannig að fá hann úr
farvegi venjulegra byrjana. Betra er: 8.
______, cxd4; 9. aXb4, dxc3; 10. bXc3,
d X c4; 11. Bxc4, D—c7; 12. B—a3, H—
d8. — Bezta áframhaldið og venjulegasta
er þó: 8......., Bb4xc3: — 9. c4xd5!,
e6 X d5; Betra og skemmtilegra áframhald
væri c X d4: 10. d4 X c5, Ba5 x c3; 11. b2 X
c3, Dd8—a5; 12. Ddl—c2, Da5xc5; 13.
a3—a4, Hf8—e8; 14. Bcl—a3, Dc5—a5;
15. Hfl—bl, Da5—c7; 16. c3—c4, d5xc4;
17. Dc2Xc4, Bc8—e6; 18. Dc4—c2, Be6—
d5; 19. Ba3—b2, Dc7—e7; 20. Bb2—a3!
Landau kýs heldur að halda báðum biskup-
unum og sókninni en að leika: 20. Bxf6,
þó hann græði peð. 20. _____, De7—c7;
21. Hbl—b5!, Bd5xf3; 22. g2Xf3, a7—
a6; 23. Hb5—g5, h7—h6; 24. Hg5—g2,
Ha8—c8; 25. Hal—cl, Hc8—d8; 26. Kgl
—hl, Kg8—h8; 27. Hcl—gl, He8—g8;
28. Ba3—b2, Dc7—d6; 29. Bd3—h7!, Rc6
—b4; Auðvitað ekki: 29. ______, Rxh7,
vegna: 30. H X g7! — 30. Dc2—f5, g7—g6;
31. Bh7Xg8, g6 X f5; 32. Hg2—g7, Rf6—
g4; 32. Hg7—g4f Hvítt hefir mjög naum-
an tíma og sér þess vegna ekki einföldustu
vinningsleiðina. 32. H—-h7f! 33. _____,
f7—f6; 34. Hg4—g7, Hd8—d7; 35. Hg7x
d7. Gefið. Óli Valdimarsson.
5. MYNDAGÁTA
Lausn á síðustu mynda-
gátu: Penninn vinnur
meira en margar lið-
sveitir.