Vikan - 11.07.1940, Qupperneq 2
2
VIKAN, nr. 28, 1940
Vitid þér það?
1. Hvaða ár var fyrsta þingið hald-
ið í núverandi Alþingishúsi ?
2. Hvað heitir stærsta vatn í Ev-
rópu?
3. Hvenær varð Hitler ríkiskanzlari
Þýzkalands ?
4. Hvaða mál er talað á Haiti?
5. Hvenær fékk Reykjavík kaup-
staðarréttindi ?
6. Hvaða drottning var hálshöggv-
in eftir 20 ára fangelsisvist ?
7. Hvaða alþjóðaréttur viðurkenndi
árið 1933, að Grænland væri
dönsk nýlenda?
8. Hvenær dó Skúli landfógeti
Magnússon?
9. Hvaða Hollendingur var konung-
ur í Englandi?
10. Hvað heitir höllin, sem franski
forsetinn hefir búið í?
Sjá svör á bls. 15.
Á átjándu öldinni, þegar hárgreiðsla
kvenfólksins var svo fyrirferðarmikil, fyllt
með púðri, olíum og allskonar skrauti, að
hún var ekki framkvæmd nema aðra eða
þriðju hverja viku, mátti lesa í einu dag-
blaði Lundúnaborgar eftirfarandi klausu:
„Hin mörgu sorglegu taugaáföll, sem
komið hafa fyrir upp á síðkastið, af því
að mýs hafa fundist í hári kvenfólksins,
hafa leitt til þess, að félag hinna fögru
lista hefir heitið þeim manni verðlaunum,
sem getur búið til faliegastar músagildr-
ur til notkunar í rúminu.“ Vinnandinn varð
herra Moses Martingo, sem bjó til silfur-
músagildru, sem seld var fyrir 3 guineur.
Eitt af skemmtiatriðunum á hinum
fræga baðstað Miami í Flórida, eru ferða-
lög með „Glass Bottom Boats“ — bátum
með glerbotni. Siglt er út að einhverju
kóralrifinu þar í grenndinni. í gegnum
glerbotninn geta gestimir svo horft á hið
margbreytilega og litauðuga dýralíf hafs-
ins. Annað skemmtiatriði eru hákarlaveið-
ar úr körfunni á stýranlegum loftbelg.
Þegar hákarlinn bítur á, hækkar loftbelg-
urinn ört, svo að hann dregst fljótt upp
úr sjónum og dinglar í lausu lofti.
Liggur vegurinn þangað?
„Liggur vegurinn þangað?“ heitir skáld-
saga, sem nýkomin er út, eftir Ólaf Jóhann
Sigurðsson. Er þetta f jórða bók þessa 21
árs gamla rithöfundar. Fyrsta bókin hans
birtist, þegar hann var 16 ára. Voru það
barnasögur, sem hann nefndi „Við Álfta-
vatn“. Fékk hún ágætar viðtökur og hefir
komið út í tveim útgáfum. Næsta bók „Um
sumarkvöld", líka barnasögur, kom út áður
en höfundurinn varð fullra 17 ára. Ári
síðar lét hann frá sér fara fyrstu löngu
skáldsöguna „Skuggamir af bænum“. 1
fjögur ár hefir svo enginn bók birzt eftir
hann, þangað til nú. En í blöðum og tíma-
ritum hefir komið eftir Ólaf mikið af kvæð-
um og smásögum.
| Efni blaðsins, m. a.: |
= Rúmenía er þýðingarmikill aðilji í |
refskák alþjóðastjórnmálanna. I
\ „í djúpum stórborgarinnar.“
Eftir Irving Stone. í
I Ferðir yfir Sprengisand.
Eftir Ásgeir Ásmundsson.
Í Perlumar ... I
Smásaga eftir Michael David.
i Erum við Islendingar af Benjamíns- I
i ættkvísl? §
i Eftir séra Guðmund Einarsson. ]
] Maðurinn, sem keypti London,
1 framhaldssaga.
Eftir Edgar Wallace.
| Sigga litla og Óli og Addi í Afríku. ]
í Skrítlusíða. — Heimilið. — Kross- |
i gáta — o. fl.
tllllllllllllllllllllIIISIBIlliiiiiliillllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllIIIIIIIIIIIIIII
Golfspilari nokkyr að nafni Sutton, vann
um daginn 5 pund og 6 golfkylfur í fallegu
leðurhylki í veðmáli. Einn kunningi hans
hafði veðjað við hann, að hann gæti
ekki slegið golfkúlu frá suðurenda Tower
Bridge eftir götum Lundúnaborgar til
Whites Club í St. James Street í minna en
2000 höggum. Sutton sló það í 142 högg-
um, og ef kunningi hans hefir haldið, að
lögreglan mundi grípa í taumana og banna
þetta, þá skjátlaðist honum, því að Sutton
þurfti aðeins að segja við lögregluþjón-
ana: „Þetta er veðmál,“ og þá leyfðu þeir
honum að halda áfram.
Vi k a n
HEIMILISBLAÐ
Ritstjóri: Kirkjustræti 4. Pósthólf 365.
Afgreiðsla og innheimta: Austurstræti 17.
Sími 5004. Pósthólf 166.
Verð: kr. 1,75 á mánuði, 0,45 í lausasölu.
Steindórsprent h.f.
Orðsending frá skömtunarskrifstofu ríkisins:
Að gefnu tilefni vill skömtunarskrifstofan vekja athygli almenn-
ings á því, að á þessu ári verður ekki veitt nein úthlutun á sykri
til sultugerðar, til viðbótar þeim 2 kg. handa hverjum manni, sem
nú er verið að úthluta. Þeir, sem hugsa sér að nota sykur við
hagnýtingu berja síðar í sumar, verða því að geyma til þess sykur
frá þessari aukaúthlutun.
Rabarbara má geyma í vatni, á tilluktum flöskum í langan tíma,
svo óþarfi er að eyða miklum sykri nú til að bjarga honum frá
skemmdum.
Skömtunarskrilstofa ríkisins.
tJTGEFANDI: VIKAN H.F., REYKJAVlK. — Ritstjóri: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4. Pósthólf 365. — Ábyrgðarmaður:
Steindór Gunnarsson. — Framkvæmdarstjóri: Engilbert Hafberg, Austurstræti 17. Sími 5004. Pósthólf 166.