Vikan - 24.10.1940, Side 11
VIKAN, nr. 43, 1940
nrii, a
jg Framhaldssaga eftir
Hubbard strauk skcggið hugsandi.
„Auðvitað," sagði hann, „ef stúlkan vill það.“
„Henni er það áreiðanlega þvert um geð,“ sagði
Hermann hreinskilnislega. „Hún álítur þig vera
fifl.“ Hubbard varð öskurauður í framan. „En hún
er ung og þú hefir ekki haft neitt tækifæri til að
hafa áhrif á hana.“
„Hvenær á —sagði Hubbard nokkuð þótta-
lega.
„Heyrðu mig!“ sagði hinn skipandi röddu. „Ég
ætla að biðja þig um, að grípa ekki fram í fyrir
mér. Samkvæmt erfðaskrá föður míns, faila fimm
milljónir dollara í hlut þess manns, sem kvænist
henni. Þetta vita engir nema hún sjálf, ég og
lögfræðingurinn. Það er um helmingur af pening-
um þeim, sem hún á að fá eftir föður minn. Ég
vil, að þú kvænist henni og gangir inn á að borga
mér á brúðkaupsdaginn sjö hundruð og fimmtíu
þúsund pund.
„Það er naumast!" sagði Hubbard.
„Pærðu ekki einn fjórða úr milljón?" Hermann
hleypti brúnum.
„Ég er heldur ekki neinn betlari, Zeberlieff!“
sagði Hubbard „fagri“, og hafði runnið í skap.
„Enginn betlari,“ samþykkti Hermann. „Þú ert
stórt nafn í samkvæmislífinu — vertu bara ekki
að gripa fram í fyrir mér,“ sagði hann, er Hub-
bard ætlaði að standa upp af stólnum. „Ég tala
hreinskilnislega, af því að það er nauðsynlegt,
eins og á stendur. Við skulum ekki vera í nein-
um feluleik. Þú ert ekki vel á vegi staddur. Ég
hefi komið þér inn í félagið, af því að ég bjóst
við að geta haft gagn af þér, fyrr eða síðar. Þú
ert þekktur víðs vegar sem misheppnaður pen-
ingaveiðari, og fari nú illa fyrir þér enn einu sinni,
endar það með því, að þú kvænist konunni, sem
leigir þér, til þess að þú getir borgað skuldir
þínar á auðveldan hátt.“
Martin Hubbard skipti ört litum meðan Her-
mann lét dæluna ganga á þennan óskammfeilna
hátt. Því að það þungbærasta af öllu var það, að
allt, sem Hermann hafði sagt, var satt, jafnvel
út í yztu æsar. Þetta um konuna, sem hann leigði
hjá, var líka rétt. Hún var millistéttarkona og
hafði upp á síðkastið ekki dregið neina dul á,
hvað hún vildi. En þótt hann væri bálreiður, svo
reiður sem aðeins fríðir og hégómlegir menn geta
orðið, þegar þeir eru auðmýktir eftirminnilega,
þá var hann samt svo skynsamur að viðurkenna
með sjálfum sér, að hálf milljón punda væri meiri
auðæfi en hann hafði jafnvel dreymt um.
„Þú ert ljóti Gyðingurinn!" sagði hann hlæjandi
og Zeberlieff hló líka.
„Sannleikurinn er sá, að það er ekki dropi af
Gyðingablóði í æðum mínum,“ sagði hann. „Ég
hefi oft óskað þess, að það væri. Ég geng út frá
því sem gefnu, að þú sért til í þetta.“
„En ef hún vill mig ekki?“
„Ég skal sjá um það,“ sagði Hermann.
Hann þagnaði allt í einu. King Kerry gekk í
áttina til þeirra, rétt á undan stúlkunni, sem hann
var með. Zeberlieff gat ekki enn séð framan í
hana, því að King Kerry skyggði á hana.
„En ef—,“ sagði Martin Hubbard, því.að honum
óx þetta í augum, en Hermann hlustaði ekki á
hann. Hermann vildi fyrir alla muni sjá andlit
stúlkunnar, sem sagt var, að Kerry hefði valið
úr fjöldanum, til þess að hjálpa honum við að
margfalda milljónirnar.
EDQAR WALLACE
Það, sem skeð hefir liingað til í sögunni.
King Kerry er dularfullur, amerískur
milljónamæringur, sem dagblöð Lundúna
segja að ætli að kaupa London. A bak við
hann stendur auðhringur, sem kallar sig
„L". Kerry hefir þegar keypt verzlunina
Tack & Brighten, þar sem Elsie Marion
vinnur, og ráðið hana til sín sem einkarit-
ara. — L-hringurinn hefir feikna miklar
ráðagerðir á prjónunum í sambandi við
lóðakaupin i London. En hann á sina and-
stæðinga og á meðal þeirra eru Hermann
Zeberlieff og fyrverandi forstjóri Tack &
Brigthen, Leete. Bray, sem ætlar að verða
húsameistari, er vinur og nábúi Elsiear.
Kerry trúir Elsie fyrir því, að hann hati
Zeberlieff af því að hann hafi hagað sér
svívirðilega gagnvart konu. Vera, hálfsystir
Zeberlieffs, býr hjá honum, af þvi að faðir
þeirra setti það skilyrði i erfðaskránni, að
þau byggju saman í fimm ár og nú eru að-
eins nokkrir dagar eftir af þeim tíma. Vera
óttast bróður sinn. Bray kemur til að sækja
Veru, og aka þau til skólans, þar sem hún
úthlutar verðlaunum. Bray, sem er einn
nemendanna, fær verðlaun. Hjá Zeberlieff
eru fjórir menn til miðdegisverðar. Vera
vill ekki koma niður til þeirra, en Zeber-
lieff fer þá upp til hennar og ætlar að ráða
hana af dögum. Það tekst þó ekki. véra
brýtur rúðu í búðarglugga Kings, til þess
að láta setja sig í fangelsi. Elsie hefir keypt
„Evening Herald" fyrir King. Zeberlieff
vill gifta systur sína Hubbard „fagra“, til
þess að klófesta þannig auðæfi hennar.
Þau voru næstum komin að borðinu þeirra,
þegar Hermann Zeberlieff sá í fyrsta skipti andlit
Elsie Marion.
Hann þaut upp af stólnum eins og byssubrennd-
ur. Hann var náfölur í andliti, svitinn spratt á
enni hans og hann reiddi titrandi hnefann gegn
Elsie, sem var steini lostin af undrun.
„Þér — þér!“ hvæsti hann og féll í yfirlið á
gólfið.
17. KAPlTULI.
Ösin í Oxford Street.
„Til almennings:
Hér með tilkynnist, að ég hefi keypt verzlun-
ina Tack & Brighten. Ég hefi í hyggju að reka
hana eftir nýjustu tízku undir nafninu „Kerry
Magasin". Ég hefi fjórfaldað vörubirgðirnar og
stækkað verzlunina og meðal annars bætt við
sérstakri kvennadeild og barnadeild.
„Kerry Magasin" hefir á boðstólum allt handa
öllum.
Verzluninni hefir verið gerbreytt; nýr, glæsi-
legur og vistlegur tesalur og hvíldarsalur á ann-
ari hæð og lyftur við alla innganga.
Til þess að f jölga viðskiptavinum verzlunarinn-
ar, seljast allar vörur fyrir hálfvirði, nákvæm-
lega helminginn af því, sem þér borgið fyrir sömu
vörur i öðrum búðum i Oxford Street.
En þetta er ekki það eina!
Afgreiðsla viðskiptavinanna er í þrennu lagi.
Búðin er opin dag og nótt — þó ekki á sunnu-
dögum. Allar vörur verða merktar því verði, sem
þær eru seldar í öðrum verzlunum og eftirfarandi
afsláttur verður síðan gefinn:
Viðskiptavinir, sem koma á milli klukkan 10
og 20 fá vörumar fyrir hálfvirði. Frá klukkan
20 til 23 gefum við 55% afslátt, frá klukkan 23
til 1 60% og frá klukkan 1 til klukkan 8 65%. Frá
11
kiukkan 8 til klukkan 10 er búðinni lokað svo
að hægt sé að þvo hana og loftræsa.
Dæmi: Vara merkt 10 shillings:
Frá klukkan 10 til klukkan 20 er verðið hjá
okkur 5 shillings.
Frá klukkan 20 til 23 er verðið hjá okkur 4
sh. 6d.
Frá klukkan 23 til 1 er verðið hjá okkur 4
shillings.
Frá klukkan 1 til klukkan 8 er verðið hjá okk-
ur 3 sh. 6d.
Fólkið, sem afgreiðir yður hefir betri laun og
styttri vinnutíma en í nokkurri annarri verzlun i
London. Allt er merkt með greinilegum tölum.
Veljið vörur yðar í sýnishornadeildinni — og
þær verða afhentar yður í hvíldarsalnum.
Þetta verður aðeins auglýst þrisvar. Upp frá
því verður verzlunin svo þekkt, að hún mælir
með sér sjálf.
Virðingarfyllst
King Kerry.“
„P. S. — Á næstu tólf mánuðum gef ég við-
skiptavinum minum 300,000 pund. Hverjum er
frjálst að taka sinn hluta. Það er engin hætta á,
að birgðir mínar þrjóti. Ég hefi samning við
heildverzlanir þær, sem ég skipti við fyrir af-
hendingu á vörum að upphæð £600,000 á því hálfa
ári, sem lýkur þanh 23. desember og að upp-
hæð £800,000 fyrir næsta hálfa ár.“
Auglýsingin var birt á miðvikudegi og var heil
síða í öllum dagblöðum Lundúnaborgar. Mánu-
daginn næsta á undan kom fyrsta tilkynningin
um þetta á auglýsingaspjöldum, sem dreift var
um alla heimsborgina. Hún var stuttorð og gagn-
orð:
Kerry Magasin
Oxford Street W 989—997.
Heiðraða frú —
Allar þær vörur, sem til sýnis eru í vefnaðar-
vöru- og kvennadeildinni í Oxford Street eru til
sölu fyrir hálfvirði eða minna frá og með næsta
mánudegi.
Nánara í miðvikudagsblöðunum.
King Kerry.
Það var ekki hægt að þverfóta fyrir þessurn
auglýsingaspjöldum. Þau lýstu með stórum stöf-
um langar leiðir á öllum neðanjarðarjárnbraut-
um. Þau voru hengd upp á járnbrautarstöðvum
og á auða múi-veggi. Utdráttur úr tilkynningunni
var prentaður aftan á sporvagnsmiða, og strák-
ar i þúsundatali dreifðu út fregnmiðum með
henni. Hún flaug fyrir á renniborða Ijósaauglýs-
inganna og Ijómaði á öllum tjöldum kvikmynda-
húsanna, leikhúsunum og fjölleikahúsum stór-
borgarinnar. Enginn af íbúum heimsborgarinnar
gat komizt hjá því að sjá þessa auglýsingu aftur
og aftur, svo að segja við hvert fótmál. King
Kerry þekkti mátt auglýsinganna og hvað það
hafði mikla þýðingu áð endurtaka hlutinn nógu
oft.
Tveim dög-um seinna kom auglýsingin í blöð-
unum og klukkan ellefu fyrir hádegi var saman-
kominn sá stærsti hópur, sem nokkurn tíma hafði
sézt fyrir framan búðardyr í London. Fólkið
byrjaði að safnast saman klukkan sjö urn morg-
uninn. Klukkan níu varð lögreglan að skerast í
leikinn til að raða niður hópnum. Ferföld manna-
röð teygði sig frá Kerry Magasin allt til New
Oxford Street eða um fjórðung enskrar mílu á
lengd.
Enginn efaðist um, að gæði varanna væru þau
sömu og lofað hafði verið. Enginn spurði um
ástæðuna fyrir þessari undarlegu útsölu, en skoð-
anir voru mjög skiptar um það, hve lengi hún
mundi standa.
Dymar voru opnaðar klukkan ellefu og fyrir-
komulag Kerrys reyndist prýðilega. Undir eins
og viðskiptavinimir höfðu lokið kaupum sínum,
fóru þeir út um nýju dyrnar á bakhlið hússins.
Þeir komust að raun um, að framvegis yrðu þeir
að ákveða fyrirfram hvað þeir ætluðu að kaupa,