Vikan


Vikan - 24.10.1940, Blaðsíða 13

Vikan - 24.10.1940, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 43, 1940 13 Beaverbrook lávarður hefir lengi verið talsmaður þess, að loftfloti Stóra-Bretlands yrði aukinn til hins ítrasta. Hann er fæddur í Kanada, en er útgefandi tveggja enskra dagblaða. I sumar var hann gerður að ráðherra og hefir með flugvélaframleiðsluna að gera. Þýzkir tundurskeytabátar, sem sagt er að Þjóijverjar hafi safnað saman við Ermarsund í þúsundatali með innrás í England fyrir augum. Bátar þessir eru mjög hraðskreiðir. Afvopnun hersins í Luxemburg fór ógn friðsamlega fram eins og þessi mynd sýnir. Hún er af þýzkum hermanni (til hægri) og lög- regluþjóni í Luxemburg, sem hann hefir afvopnað. Gyðja prentfrelsisins á heimsýningunni í New York 1940. í bak- sýn eru tákn sýningarinnar, hnötturinn og þrístrendingurinn, og minnismerki fyrsta forseta Bandaríkjanna, George Washington. Þessi mynd er af ,,America“, stærsta skipi ameríska verzlunarflot- ans. Það er 723 feta langt og mesta farþegaskip, sem byggt hefir verið í Bandaríkjunum. Píslarvættir styrjaldarinnar. Þessi mynd er af belgiskri móður á göngu með þrjú böm í niðurskotnu borgarhverfi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.