Vikan


Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 8

Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 8
8 VIKAN, nr. 23—24, 1944 ardegi Ólafs konungs 3. ágúst, og þá er Margrét drottning fyrsti danski þjóðhöfö- inginn, sem ræður yfir Islandi, og þannig var það í reynd og framkvæmd, hvað sem annars er um sameiningarárið að segja. En nú er ekki svo vel, að aðeins sé um ofangreind tvö ártöl rætt sem upphafsár sambandsins milli þessara tveggja landa, — heldur er alls ekki ótítt að sjá þriðja ártalinu haldið fram í þeirra stað, og geng- ur ef til vill sumum varfærni til að hafa það helzt, þar sem þeir kinoka sér við að gera upp á milli áranna 1380 og 1387. Þetta þriðja úrræði er árið 1397, og er þá komizt svo að orði, að ísland hafi samein- azt Danmörku „með Kalmarsamband- inu“, sem stofnað hafði verið á því ári. En við þá lausn málsins er ýmislegt að athuga. Prá 1380 til 1397 eru full 17 ár, og frá 1387—1397 heill áratugur. Það er óneitanléga óviðfelldið að ár- setja viðburði 10—17 árum eftir, að þeir gerðust. Stundum má þó segja, að eitt- hvað 1 þá átt sé leyfilegt, ef um er að ræða viðburði eða ástæður, sem hafa eitthvað fálmkennt eða yfirborðslegt við sig í fyrstu, eða eru álitnir vera að- eins til bráðabirgða, — en fá síðar ein- hverja þá fullmótun, sem verður upp- haf að sögulegu mikilvægi þeirra og varanleik. En tæplega verður það sagt um fund þann, sem haldinn var í Kalmar árið 1397, að hann hafi haft nokkur slík áhrif á samband Islands og Danmerkur eða yfirleitt á samband Norðurlandanna (Svíþjóð með Finnlandi hafði bætzt í hópinn árið 1389) undir veldissprota Danakonungs, er réttlætti, að það ár sé talið upphafsár þess. Tilefni fundarins í Kalmar var það, að Margrét drottn- ing hafði unnið að því, að ungur frændi hennar, Eiríkur af Pommern, skyldi verða eftirmaður hennar sem konung- ur allra Norðurlanda. Smiðshöggið á það verk vildi hún reka með því að bjóða stórhöfðingjum Dana, Norð- manna og Svía að vera viðstaddir krýningu hans. Fór sú athöfn fram í Kalmar 1397. En frumvarp að sambandslögum fyrir ríkin, sem höfðingjar sömdu þarna, fékk aldrei lagagildi. Margrét drottning stakk því blátt áfram undir stól, enda höfðu að- eins 10 af 17 fundarmönnum sett innsigli sitt á það. Eiginlega er ekkert það minnis- vert um Kalmarsfundinn, sem réttlæti, að samband Norðurlandaríkjanna sé kennt við hann, hvað þá, að það sé talið hef jast með honum. Og sízt af öllu er ástxða til þess í íslandssögu, að gera mikið veður út af þessum fundi, því enginn Islendingur var til hans kvaddur og engu breytti hann um hagi Islendinga til bóta né til hins verra. Og varla getur krýning Eiríks frá Pommern talizt svo merkilegur viðburður, að ártal hennar og jafnvel nafn bæjarins, þar sem hún fór fram, megi með engu móti falla í gleymsku. Fimmtán ár liðu, þangað til hann tók við ríkisstjórn, og reyndist hann sá vandræðagepill, er frá leið, að hann var loks rekinn frá ríkjum. Að þessu öllu athuguðu, virðist árið 1397 ekki þurfa að valda neinum glundroða við- víkjandi upphafi sambands Islands og Danmerkur. Og í sjálfu sér er ekki heldur neitt örðugt að velja um ártölin 1380 og 1387. Tvær ástæður mæla með árinu 1380, önnur er í orði kveðnu, en þó mikilvæg frá miðaldasögulegu sjónarmiði: að Ólafur Hákonarson er Danakonungur, þegar hann erfir Island, — hin er raunveruleg — að Margrét drottning tekur þá í reyndinni við stjórn landsins, og skiptir það mestu máli Fæddur 8. Björn Jónsson. október 1846 í Djúpadal Gufudalssveit. Foreldrar voru: Jón Jónsson bóndi þar og kona hans Sigríður Jónsdóttir bónda í Látrum, Ólafssonar. Varð stúdent í Reykjavík 1869. Stofnaði blaðið Isafold 19. sept. 1874 í Reykjavík og var ritstjóri þess til 1909. Varð ráðherra 31. marz 1909. D. 24. nóv. 1912 í Reykja- vík. Þingmaður Strandamanna 1879; þingmaður Barð- strendinga 1909—1912. frá nútímasjónarmiði. Með henni hefst sú langa röð Danakonunga yfir Islandi, sem lýkur með Kristjáni 10. Við skiljum í góðu. Sá viðburður í lífi þjóðar, að hún segir slitið sambandi við aðra þjóð, sem hún hefir átt yfir sér um langan aldur, gerist sjaldan hávaðalaust. Þess munu fleiri drmi, að slíkum viðburðum séu samfara átök og æsingar, — og oft styrjaldir. En hér, — og það með þjóð, sem oft hefir þurft lítið til að æsa sig upp og hefir þótt tómlát um flest, sem hún getur ekki gert sér að æsingamáli, — hefir 564 ára sambandi við Dani verið slitið svo æsinga- laust, svo hljóðlega og illindalaust, sem framast má verða. Með hliðsjón af þeim baráttuaðferðum, sem algengt hefir verið, að stjórnmála- flokkar beittu hér, þegar mikið hefir þótt við liggja, hefði það ekki þurft að koma neinum á óvart, þótt tónninn í garð Dana í ræðu og riti hefði verið í kaldara lagi, að minnsta kosti síðasta sprettinn fyrir atkvæðagreiðsluna. Eins og ýmsir áhuga- manna vorra um opinber m'ál hafa átt það til að sveigja óþyrmilega að mannorði þeirra landa sinna, erstaðiðhafaáöndverð- um meiði við þá um einhver deilumál dags- ins, — gat það hugsazt, að mörgum fynd- ist nú réttur tími til að ryf ja upp synda- registur yfirráða- og sambandsþjóðarinn- ar til þess að brýna menn til öflugra fylgis við hin endanlegu sambandsslit. Sannarlega er enginn hörgull á dæmum úr sögu þjóðarinnar, sem gátu verið tilvalin áróðursefni í slíkum tilgangi. Bessastaðavaldið og verzlunareinok- unin, — framkvæmd siðaskiptanna, Stóridómur, erfðahyllingin í Kópavogi, galdrabrennurnar, — og fjöldi dæma um harkalega hegðun manna, sem gegndu hér embættum í náð og umboði danskra stjórnarvalda, — gat allt kom- ið í góðar þarfir, ef út á slíka braut hefði verið lagt. En ekkert slíkt var gert, svo orð sé á hafandi. Það var eins og þegjandi samþykkt, að þessi aðferð væri ekki samboðin því málefni, sem leiða átti til lykta. Skáldsaga, sem kom út á síð- asta ári og bregður upp átakanlegum myndum af meðferð Dana á Islending- um, þegar rammast kvað að einveldinu og áþjáninni, virðist blátt áfram ekki fá notið sannmælis sem listaverk hjá ekki allfáum, af því að hún er um þetta efni og gefin út nokkrum mánuðum áður en sambandsslitunum var ætlað að fara fram. Og þátttakan í atkvæðagreiðsl- unni og úrslit hennar hafa sýnt, að þjóðin þurfti engin æsandi lyf til þess að halda sér vakandi í þessu máli. Og það hafa naumast verið margir, sem fóru á kjörstað þessa daga brynjaðir hefndarhug til Dana fyrir fornan viður- gerning þeirra við Islendinga eða með hugann fullan af réttlátri reiði ætt- feðra sinna í garð Biðriks frá Minden, Kristjáns skrifara, Tómasar Nikulás- sonar, Þorleifs Kortssonar, Múllers amt- manns eða Trampe greifa. Hitt má víst fullyrða, að hjá flestum hafi heldur verið hreint og beint jákvæðar hvatir að verki, fyrst og fremst sannfær- ing þeirra um réttmæti og þörf þessarar athafnar, byggð á skynsamlegum forsend- um, en jafnframt sá ylur, sem flestir Is- lendingar finna um hjartaræturnar, er þeim verður hugsað til frelsis- og fullveldis- baráttu genginna kynslóða hin síðustu hundrað ár. Sunnlendingar drápu Diðrik frá Mind- en, Norðlendingar gerðu Kristjáni skrif- ara sömu skil. Tvö orð, höfð eftir Brynjólfi biskupi um Tómas Nikulásson fógeta, er hann spurði lát hans, eru þó ef til vill enn kröftugri hefnd á þann óhappamann fyrir þjóðarinnar hönd, en þótt hann hefði verið myrtur. Biskup taldi drukknun Tóm-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.