Vikan


Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 15

Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 15
VIKAN, nr. 23—24, 1944 15 ------------------------Framhaldssaga: —--i Gamla konan á Jalna Eftir MAZO D E L A ROCHE. H s_________________________________________ hún alið börn hans. Hér hafði Filippus dáið, — maður, sem var kominn á sjöunda tug œvi sinn- ar, cn sem hélt fullu þrcki og vegna frísklegs útlits leit ekki út fyrir að vera meir cn fimmtug- ur, það gat hún svarið fyrir. Hann hafði verið borinn inn í forstofuna neðan úr hesthúsinu, þar sem hestur hafði slegið hann. Hún hafði ætt niður tröppurnar sem óð væri. Hann hafði lyft höfðinu og sagt við hana með hinum dimma málrómi sínum: „Sjáðu nú, Aðalheiður, hvað truntan hefir gert við mig.“ Hún hafði séð það og orðið að beita allri sálar- orku sinni til þess að æpa ekki upp yfir sig af skelfingu. Þeir höfðu borið hann inn í litla her- bergið, lagt hann á rúmið, og eftir minna en klukkutíma var enginn lengur, sem hét Filippus hennar, aðeins dauður maður, sem hún faðmaði fa?t að sér í örvæntingarfullri tilraun til að reyna að neyða neista af sinum eigin lifskrafti inn í brjóst hans. Á augnabliki lifði hún þennan atburð aftur nú. Hjarta hennar hætti að slá, meðan hún sá fyrir hugskotssjónuni sínum öll smáatriði hans. En hún skaut minninngunni frá sér eins og hún hafði í mörg ár neytt sjálfa sig til að gera. Hún vildi ekki eyða kröftum sínum i að syrgja. Ilún andvarpaði djúpt, gekk að glugganum og opnaði hann. „Við verðum að fá dálítið meira loft hingað inn,“ sagði hún upphátt. ICvöldloftið var hvorki heitt né svalt; andvarinn lék um kinn hennar eins og einkcnnilega alúðleg ástaratlot. Iienni var aumur munnurinn undan nýju tönn- unum. Ekki eitt einasta skipti síðan hún féUU þær hafði fjölsUylda hennar séð hana tannlausa. En jni var hún ein. Hún lólc þær út úr sér og lagði þær í vatnsglas, sem stóð og beið eftir þeim. Spegilmynd hcnnar í glasinu dró að 'sér athygli hennar. Þetta kröftuga andlit með innföllnum munninum liktist svo lifandi andliti föður hcnn- ar. „Gamli Renny Court," tautaði hún og gretti sig. MiUið víir það þægilcgt að losna við þcssar tonnur! Ilfcnni fannst hún hafa fcngið góða hvíld. Nú langaði hana ckki lengur til þess að fara i nimið. llana langaði mcst til þcss að .Ualla á einhvern son sinn og biðja hann um að sitja hjá sér dálitla stund. En — þctta hafði vcrið erfiður dagur fyrir þá, vcsllngs drengina. NiUulás yrði ergiiegur, ef hann yrði ræstur,. Erncst mundi Lala of mikið, og Filippus mundi að öllum likindum sofna yfir hcnni. Ilún varð því að láta sér nægja að vera ein. Ilun gcUU til páfagauksins, scm sat á rúmgafli hennar með höfuðið undir vængnum. Ilún rétti fram fallcgu, hruUUóttu höndina og strauk hon- um yfir bogið bakið. Ilann titraði litið citt við snertinguna, en reisti samt cUlci höfuðið. Hann gaf frá sér nokkur e'rgileg hljóð. „Veslings, gamli, fuglinn!" sagði hún. „Vcslings, gamli Boney! Hann þarf lika að fd sína hvild." Hún tók treglcga brjóstnæluna úr Ujólnum sín- um og staUU hcnni i rauða, pcrlustungna púðann á snyrtiborðinu. Fingur hennar fóru að fálma við löngu hnapparöðina á kjólnum. Ilún var enn treg að fara að hátta. Fyrir utan glugga hennar óx gamall, hvítur sýringur; hann var alltof nærri, svo að hann lok- aði allt loft úti, og hún hafði oft hótað því að láta fella hann; en hún hafði samt ekki getað fengið það af sér að gefa fyrirskipun um það. Ilún hafði séð hann vaxa frá því að liann var FofS'lH'l * Sagan gerist á Jalna 1906. ‘ ® * Þar býr Whiteokfjölskyld- an. Gamla frú Whileok er orðin fjörgömul, en er þó hitj ernasta. Filippus sonur hennar tók við jörðinni. llann er tvikvæntur. Álti Margréti og Renny með fyrri konunni. Eden og Piers heita börnin, sem hann á með seinni konunni, Mariu. Nikulás og Ern- est eru bræður Filippusar, ókvæntir. Vera er vinkona Margrélar. sem ætlar að gift- ast Maurice Vaughan á næstunni. Maurice segir Renny frá þvi, að hann muni eignast barn með Elviru Grey, sem býr með frænku sinni i þorpinu. Renny talar við frænkuna, leyndardómsfulla konu, sem lofar að spá fyrir honum. Systir Filippusar og maður hennar koma frá Englandi, ásamt Mala- heide Court. Hann er frændi gömlu frúar- innar, Aðalheiðar, og vinnur tiltni hennar, en er illa þokkaður af öðrum. Rohert Vaug- han finnur barn á tröppunum hjá sér og það kemst upp að Maurice á það. Filippus verður öskureiður og fer heim til hans með bræðrum sinnm. Vaughan-hiónin eru ör- vingluð. Magga, sem hefir líka komizt að þvi, er yfirbuguð af sorg. hún lokar sig inni i herbergi sinu og vill ekki siá noUUum mann. Allt er gert til þess að lokkahanaút, en ekkert dugar. Þcgar hér er komið sögu er komið Uvöld, Aðalheiður er Uomin inn i herbergi sitt og rifjar nú upp fyrir sér ým- islegt, sem þar hefir gerzt. lítill græðlingur, og hún hafði oft vökvað hann með vatnskönnu sinni. Nú gripu þungir, hvitir blómsturvendir hans allt loftið, áður en það komst, inn í herbergið hennar. Á milli blaða hans ga^ hún nú séð tunglskinið í gilinu. SUyndilega greip hana áköf löngun til þess að ganga ein út í myrkrið. Það var langt síðan hún hafði gert það. Alltaf hafði einhver verið til þess að bjóða henni arminn, Nikulás, Ernest eða Filippus. Hún var vist að verða gömul, fyrst allir vöktu svona yfir henrii. Ilún Uærði sig alls ekkert um að láta vaka svona yfir sér. I-Iún vildi ganga út og inn undir sól og stjörnum, alvcg eins og hana.sjálfa lysti. Ilún lyfti löngum, síerkum örm- unum og teygði sig. Hún var þreytt og leið, en þó höfðu atburðir dagsins cinhver örvandi áhrif á Itana. Ilún gat ekki gcngið til hvildar. Hún varð að fá loft. I Iún varð að opna stóru forstofuhurðina mcð miUilli gætni.' En hvað hún opnaðist hljóðlegal Ilérna á Jalna var ekkert lélcgt rusl cins og' var búið til nú á dögum! En nú varð hún að gæta þess, að hún skelltist eUUj. Hún gekk yfir mölina á gangstígnum og yfir á svalt grasið. Ilún gat rétt grillt í tunglið á milli trjánna. Fyrir ftaman barrtrén sróð siifurbirki — það var eins og það Uæmi á móti henrii. Það var cins og öll litlu laufin hefðu gripið tUnglskinið. Hún heyrði árniðinn langt að neðan. Ilún var i þunnum skóm, og hún fann í gegnum skósóla sina, hvernig lifið endurhljómaði úr djúpi jarðarinnar. Það var eins og þeir væru úr cin- tómum tilfinningarnæmum taugum, sem var þrýst við jörðina. Hún sá kanínurnar skjótast snögg- lega á milli trjánna. Ilún geUU að silfurbirkinu og tók fast utan um silkigljáandi stofninn. Hún fann lif þess.eins og æðarslag við lófa sína. Ilún minntist þcss, hvernig Filippus hcnnar, á fimrn ára brúðkaupsdegi þeirra, hafði skorið tvö hjörtu, sem voru gegnumrekin af ör, í þetta tré. Firigur hennar leituðu að örinu eftir þetta sár og struku því blíðlega. Hún dró andann þungt — eftir öll þessi ár fékk hún ennþá hjartslátt, þegar hún hugsaði til þess. Eftir öll þessi ár! Hún sá þéttan skuggann af rimlaskúri, sem hafði verið byggður yfir gamlan brunn, sem var nú sjaldan notaður, þó að vatnið væri ágætt. Og hressandi kallt. Það vissi hún. — Hún vildi fá sér sopa af þvi, hérna — ein i nóttinni. Hún vildi finna kalda járndæluna við hönd sína. Skúrinn stóð við litinn runna, þar sem hvítir jasminblómhnappar voru farnir að koma í ljós. Það var rakt inni í skúrnum, og hún sá litinn silfurgljáandi köngulóarvef. Á mosavaxinni hillú slóð glerkrukka full af vatni, til þess að komá dælunni í gang með. Hún greip um hana með báð- um höndum og hellti í opið að ofan. Svo fór hún að hreyfa dæluna upp og niður; hún gaf frá sér urgandi hljóð, en á næsta augnabliki sprautaðist tært vatnið út úr henni. Aðalheiður var orðin blaut á fótunum, áður en hún hafði tíma til að forða sér. Hún fyllti ryðguðu tinkrúsina og drakk í löng- um teygum. Iskalt vatnið hressti hana. „Ha! Þetta var gott!" sagði hún, setti frá séri krúsina og þurrkaði sér með hendinni um hökuna,' þar sem hin stuttu, kröftugu hár höfðu blotnað. Nálægt dælunni sá hún býsveim, sem var eins stór og karlmannshattur, ljós kúla, heimur mikils annrikis. „Ef nú Eden rækist á hann . . .“ muldraði hún; „Ég verð að segja garðyrkjumanninum frá því.1' En henni leið illa, þegar hún hugsaði til þess, að allar litlu býflugurnar yrðu reyktar út. „Þettá er nú þeirra heimur,“ hugsaði hún. „Kúpan er þeim eins mikils virði eins og Jalna okkur . . ; Þær geyma hunang til elli sinnar . . . vetrar þeirra . . . Við skulum láta Eden gæta síri sjáilf- ur . . . ég segi þeim ekki frá því.“ ' Hún leit upp á dimrna múra hússins og kom auga á Möggu, sem hallaði sér út yfir glugga- karminn, ljós og björt í tunglskininu. Þessi jitla þrjózkufulla stelpa . . . . Magga hafði horft á hana, en nú dró hún sig til baka inn í myrkrið.’ Aðalheiður gekk yfir grasflötinn og nam staðar undir glugga hennar. „Komdu hingað út,“ kallaði hún. „Svo skulum við ganga dálitið saman." „Nei, anima. Ég get það eltki." j „Ég skal segja þér dálitið frá piltum, senj ég þekkti, ef þú vilt koma niður." „Mig langar ekkert að vita meira." „Úl'f! Þú veizt ekkert." y.Mig langar ekki að vita neitt." j „Þú getur ekki dvalið það, sem eftir er ævinnar í þessu herbergi." „Ég vi 1 dvelja þær nætur, sem ég á ei'tir að lifa, hérna!" . , ; ; r-‘ú' Amma hcnnar hló jstuttlega. „I?á vorkenni ég þér, stúlka mín." Ilúri sneri sét- við brosandi, gekk í kringum húsið og út um litla pilviðarhliðið að bröttu brekkunni fyrir ofan gili^5>en þaðan gat hún litið niður á ána. Ýmist blikaði hún í tunglsljósinu, eða hvarf í sefinu og mýndaði hringi utan um stóran stcin, sem hafði oltið niður að ofan; ýmist streymdi hún áfram af svo miklum hraða að hún virtist ælla að ljúka öllum bugönnum í einu, eða þá rann hún letilega eins og hún gleddist yfir sefivöxnum farvegi sínum. Hún vildi óska þess, að hún gæti gengið niður að vatninu, cn hún þorði það ekki af ótta við að, hún kæmist ekki upp brekkuna aftur. Það væri svo auðmýltjandi að neyðast til að dvelja þar um‘

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.