Vikan


Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 22

Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 22
22 VTKAN, nr. 23—24, 1944 Fundnar fornleifar í Reykjavík Það varð sögulegra en flesta Reyk- víkinga mun hafa grunað, þegar Steindór Gunnarsson prentsmiðjueigandi lét fara að grafa í grunninn undir og hjá gamla husinu Tjarnargötu nr. 4 í Reykja- vík fyrir nýju stórhýsi, sem hann ætlar að fara að reisa þar fyrir prentsmi^ju sína. Staðurinn var að sönnu merkisstaður, og húsið, sem nú var rifið, var orðið um 110 ára gamalt. Þar hafði Stefán Gunn- lögsson buið 1834—37, þegar hann var Hluti af grunninum í Tjarnargötu 4. Við gröftinn fannst m. a. brot af cldtöng, fiskhnífur, sjálfskeiðingur og brot af glerstaupi, vað- steinn, draglóð af skellihurð, kola, bollasteinar, lýsisteinn, brýni, snældusnúður úr steini o. fl. sýslumaður, þar dó Einar snikkari Helga- son fyrir réttum 100 árum, og hafði þá átt húsið og búið í því í 3 ár; þar ólzt Helgi, sonur hans, upp, sem varð hér síðar barnaskólastjóri og þjóðkunnur maður, og bjó móðir hans, madama Margrét, í hús- inu til dauðadags, 1856. Þá var það kallað Helgesenshús. Er þetta eftir frásögn Jóns byskups Helgasonar í riti hans um Reykja- vík 14 vetra. Enn síðar bjuggu í þessu húsi ýmsir aðrir merkir menn og konur, skamm- an tíma hver. Þótti húsið lengi snotur bú- staður, enda var þá vel um það gengið jafnan. Hér eru nú ekki við höndina hús- vitjanabxkur prestanna, nema frá tíma- bilinu 1868—89, um 20 ár. Á árunum 1869 —76 bjó þar frú Anna Tærgesen, ekkja P. R. Tærgesens kaupmanns, með börnum þeirra, og 1877—78 frk. Christiane Thom- sen, er lengi hafði verið hjá þeim. Árin 1879—80 bjó þar Edv. Siemsen, fyrrv. kaupmaður, og næsta ár ekkja hans, frú Sigríður Siemsen, cn 1882 tengdasonur hennar, Sveinn kaupmaður Guðmundsson frá Búðum, með fjölskyldu sinni. Árið 1884 bió frú Ragnheiður Christjánsson, - ekkja Kristjáns amtmanns, í þessu húsi, og 1886 séra Stcfán Thorarenscn, en 1887 —88 frú Kristíana Jónassen, ekkja Jónas- ar E. Jónassens verzlunarstióra. Og árið 1889 bjó þar ekkjan Solveig Guðlaugs- dóttir, og voru hjá henni móðir hennar, Eftir Matthías Dórðarson pjóðminjavörð háöldruð, og fósturdóttir, Stefanía Guðmundsdóttir, þá 13 ára. En stað- urinn átti sér langa sögu áður en þetta iitla timb-' urhús var reist, því að á þess- um sama stað hafði þegar skömmu eftir miðja 18. öld verið reist eitt af hús- um iðnaðarstofnananna, sem Skúli landfógeti Magn- ússon gekkst fyrir, að komið yrði á fót hér, og jörðin Reykjavík hafði verið gefin í ársbyrjun 1752. Það hús var reist handa beyki stofnananna, var hlaðið úr torfi og grjóti, svo sem flest hús þeirra, dálítill torfbær, og var þar bústaður og vinnu- stofa beykisins. Þegar hús stofnananna voru seld, keypti dönsk kona, madama Christine Bruun, ekkja Sigvardts Bruuns fanga- varðar, bæinn, árið 1791, og fékk hann þá nafnið Brúnsbær. Nokkru eftir aldamótin varð hann aft- ur aðsetursstaður beykis; bjó þar .þá sænskur beyk- ir, er hét Pcter Malm- quist, og kona hans sem var hér Ijósmóðir. Þegar Jörgen Jörgensen kom hingað í fyrra skiptið, í ársbyrjun 1809, sem túlk- ur James Savignacs verzl- unarstjóra, fengu þeir inni hjá Malmquist, og átti Jörgen Jörgensen þar heima, unz hann fór utan aftur í marz sama ár. Kom Malmquist mikið við stjórnarbylting Jörgcn- sens, er hann stóð fyrir, þegar hann kom hingað aftur um sumarið, svo sem kunnugt er af sögu hans. Malmquist fór utan 1812 og kom ekki aftur, en Gamla húsið, Tjarnargata nr. 4, sem sést hér á myndinni, átti sér langa sögu, er f:að var rifið, pegar farið var að grafa fyrir grunni stórhýsisins, sem Steindórsprent ætlar að reisa í sumar á lóðinni. Húsið var um 110 ára gamalt og par höfðu búið margir nafnkennd- ir Reykvíkingar, eins og t. d. Einar snikkari Helgason og sonur hans Helgi barnaskólastjóri. -— Áður var á þessum sama stað eitt af húsum iðnaðarstofnana Skúla Magnússonar. Brúnebær mun hafa staðið um 20 ár eftir það, og þó varla án mikilla endurbóta, eða jafnvel endurbygginga að einhverju lcyti. — Við grunngröftinn nú kom fram mikið að hleðslusteinum, sem scnnilega eru úr honum, grjóti ofan úr holtum og neðan úr f jöru, en ekki sýndu neinar veggjaleif- ar eða annað, að verið hefði á síðari tím- um neitt hús nákvæmlega á þessum sama stað, sem Brúnsbær mun hafa staðið á, en í vesturhorninu í grunninum komu fram allmiklar grjóthleðslur 1—2 m. í jörðu. Hleðslugrjótið, sem ætla má, að verið hafi úr Brúnsbæ, var að sönnu einnig um 1— IV2 m. í jörðu nú, en það kom í Ijós við gröftinn, að þykkt lag af mold, ösku o. fl. Framhald á bls. 28. Eldstó (neðarlega á miðri myndinni) sem fannst, þegar grafið var fyrir grunninum í Tjarnargötu 4. Var botn hennar 111 cm. neðar en Austurstræti, sem er i sömu hæð og yfirborð sjávar í höfninni um stórstraumsflóð. Var stóin grafin ofan í malarlag, ferhyrnd, um 39X46 cm. að stærð að innan og 36 cm. að dýpt, sett saman af 4 hellum og með hellu í botni.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.