Vikan


Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 48

Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 48
48 VTKAN, nr. 23—24, 1944 IsLENDINGAR! Alla tíð, allt frá morgni sögu vorrar, höfum vér fram- ar öðru unnað frelsi. Þegar frjálsræði hinna fornu og frægu feðra vorra var ógnað í heimalandi þeirra, brugðu þeir búi, hleyptu skipum úr nausti, héldu þeim á haf út og leituðu óþekktra stranda, nýrrar fósturjarðar. Langt í norðri, í svölum sævi, fundu þeir land, frjálst og ósnortið land, Island. Þar tóku þeir sér bólfestu, helguðu sér landið og helguðu það frelsinu. Síðan er Island föðurland vort, og æ síðan hefir frelsisástin ólgað oss í æðum. Af þeim nærfellt 11 öldum, sem vér höfum byggt þetta land, eru fjórar hinar fyrstu blómaskeiðið í sögu vorri til þessa. Þá var lýðveldi stofnað, hið elzta í heimi, þá voru bó'kmenntaafrek unnin, hin mestu í heimi. Þá var Island frjálst. En óhlutvandir menn vörpuðu fjöreggi þjóðar vorrar, frelsinu, fyrir borð. 1 hálfa sjöundu öld urðum vér að lúta erlendu drottinvaldi og þola hungur, klæðleysi og kulda af völdum þess. Þessar aldir eru skuggaskeið sög- unnar, en jafnframt tími hetjuskapar og baráttu. Svo birti aftur til. Hugsjón frelsisins, sem aldrei þvarr oss í brjósti, seiddi fram nýjan dag. 1 fjórðung aldar höfum vér búið við sjálfstjórn, þó ekki án tengsla við erlent ríki. Þessi fáu ár hafa verið stórfelldur sigur- og framfaratími, fullveldisrétti vorum til staðfestingar. Og nú er svo komið, að þessi réttur vor verður sögu- leg staðreynd. Síðasti fjöturinn er felldur. Aftur er stofn- að lýðveldi á Islandi. Islendingar! Varðveitum frelsi vort og njótum þess. Kyndill frelsisástarinnar, vors, hclgasta arfs, má aldrei fölskvast, því að hann á einnig að vera arfur óborinna kynslóða, er lýsi þeim um öll ókomin „Islands þúsund ár“. o uci pncnn n mci CTcn u c U. UKLUHOUII U IIICLOI eu n.r. STEINDÓRSPRENT H.F.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.