Vikan


Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 30

Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 30
30 VIKAN, nr. 23—24, 1944 Fegurð, afl og framtak. Gullfoss. I gljúfrunum ofan til í Hvítá/ er einhver fegursti og glæsilegasti foss landsins, Gullfoss. Varla er hægt að hugsa sér fegurri sýn en að koma að Gullfossi í sólskini og líta úðann stiga upp úr gljúfrunum í öllum regnbogans litum. Þessi mynd er tekin neðan úr gljúfrunum og sjást báðir fossamir og úðinn upp af þeim. Að húsabaki á Akureyri. Akureyringar hafa mikið gert að því að prýða bæ sinn trjá- gróðri. Er gaman að ganga þar um skrúðgarðana í góðu veðri og anda að sér hinum dásamlega skógarilmi. Aflstöðin við Ljósafoss. Virkjun vatnsfalia hef- ir á undanfömum áram verið eitt mesta áhuga- mál Islend'.nga, og mikið hefir verið framkvæmt á því sviði. Eitt stærsta sporið, sem stigið hefir verið hingað til, er virkj- un Ljósafoss í Sogi. — Ljósafossvirkjunin sér Reykvíkingum og Hafn- firðingum fyrir raforku. Mynd'n sýnir stíflugarð- inn o'K vélahúsin við Ljósafoss. Fast þeir sóttu sjóinn —. Bátaútvegurinn hefir alltaf verið þýðingarmikil grein í atvinnulífi voru. Mikill hluti þjóðarinnar á aíkomu sína undir því, að vel veiðist og fast sé sóttur sjór úr hinum fjölmörgu verstöðvum. — Myndin sýnir vélbáta frá Keflavík. hilskipafloti Reykjavíkur um aldamótin.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.