Vikan


Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 32

Vikan - 15.06.1944, Blaðsíða 32
32 VTKAN, nr. 23—24, 1944 Pósturinn J7 Kæra Vika! Viltu nú hjálpa mér. Mig langar svo til þess að verða „Ladylike". Hvemig væri a5 þú sendir mér pistil um það, svona það algengasta. „Ladylike“. Svar: Það er mjög mikill misskiln- ingur hjá þér, ef þú álitur að hægt sé a5 verða það sem kallaS er „lady- like“, þa5 er að mestu leyti áskap- a3ur eiginleiki, eða hlotnast af góðu og heilbrigðu uppeldi. Þokki og falleg framkoma er það sem felst í orðinu „ladylike“. | Kæra Vika min! Cg þakka þér fyrir allan þann fróðleik og skemmtun sem þú hefir veitt mér, og langar nú til að biðja þig að leysa úr þessum spumingum fyrir mig eins fljótt og mögulegt er. Mig langar til að verða loftskeyta- maður, en veit ekki hvort ég get^að. Spumingamar eru þessar: 1. Getur maður með alþýðuskólamenntun fengið inntöku i loftskeytaskólann ? 2. Er nokkuð aldurstakmark ? (ég er 20 ára). 3. Er skólinn orðinn full- skipaður fyrir komandi vetur ? — 4. Hverjum á að senda inntökubeiðni um skólavist? Siggi. Svör: Loftskeytaskólinn er ekki reglulegur skóli, heldur aðeins nám- skeið, sem haldin eru á 3ja til 5 ára fresti. Skilyrði fyrir upptöku eru þessi: 1. Gagnfræðapróf er áskilið. 2. Aldurstakmarkið er 17 ára. 3. Sam- kvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk hjá forráðamönnum skólans, eru litl- ar líkur til þess, að námskeið verði verði haldið á komandi vetri; annars er ekki fullskipað á næsta námskeið. 4. Inntökubeiðnir skal senda Póst- og Simamálastjóminni, Keykjavík. Kæra Vika! Cg hefi tekið eftir þvi hversu greið- lega þú svarar öllum spumingum, sem fyrir þig eru lagðar, iangar mig því a5 biðja þig um nokkrar upp- lýsingar. Er nokkur kostur á að kom- ast á flugskóla erlcndis meðan á stríðinu stendur, ef svo væri hva5 mundi það kosta mikið. Þarf próf í elnhverri sérgrein, er nokkuð aldurs- takmark, og á hvaða hátt er auð- veldast að koma sér í samband við slíkan skóla. Vinsamlegast. Kik. Svar: Blaðið snéri sér til Agnars E. Kofoed-Hansen, lögreglustjóra, scm jafnframt er flugmálaráðunaut- ur ríkisins, og lét hann góðfúslega í té eftirfarandi upplýsingar: Islendlngar hafa á undanfömum mánuðum farið til flugnáms í Banda- rikjum Norður-Ameríku og Canada. Á þessum slóðum hafa verið mennt- aðir 5 ísl. flugmenn frá stríðsbyrjun. Kostnaður 12—20 þúsund krónur. Aldur frá 19—20 ára og framundir þritugt. Gagnfræðapróf eða tilsvar- andi menntun æskileg. Skólar, sem vitað er með vissu, a5 eru opnir: 1 Canada: Jóhannessons Flying Ser- vice, Winnipeg, Canada. 1 U. S. A.: Spartan School of Aeronauties, Tulsa, Oklahoma o. fl. Kæra Vika! Þú getur víst ekki sagt mér hvem- ig ég á að losna við bólurnar, sem koma alltaf á andlitið á mér ? Ég yrði þér ákaflega þakklátur, ef þú leystir úr þessu fyrir mig. Strákur. Svar: Fyrsta skilyrðið til þess að þú losnir við bólurnar, strákur minn, er, að þú sért ekkert að koma við þær sjálfur. Leitaðu læknis, og hann mun annaðhvort láta þig hafa eitthvað ágætt smyrsl til a5 bera á bólurnar, eða hann vísar þér til sérfræðings, sem hefir einhver ráð með að ná af þér bólunum. Annars skaltu ekki örvænta, þvi að þessar bólur eldast sennilega af þér, nema þær séu þvi illkynjaðri. En úr því getur læknirinn skorið. Vika min! Vilt þú gjöra svo vel og segja mér hvar ég get fengið keypta bók, sem heitir: „Drottningin í Algeirsborg og önnur kvæði.“ Byrjunin á bókinni er svona: Æ, þungt er að liggja hér lengi veik, og líta nú dauðann nær. Og horfa á hann Hamlet gráta er um háls minn hann örmum slær. Með fyrirfram þökk við spurningu minni. „Ein sem hefir yndi af ljóðum." Svar: Þessi bók er nú ófáanleg, nema ef vera kynni hjá fombóka- sölum. Kæra Vika! Getur þú gefið mér upplýsingar um eftirfarandi: 1. Er kennslubók í esperanto fáanleg hér á landi nú sem stendur? 2. Hvað tekur langan tíma a5 læra dýralæknisfræði ? (Og ef þið gætuð með góðu móti gefið mér ein- hverjar nánari upplýsingar þar að lútandi). Kær kveðja. Kári. Svar: 1. Kennslubók í Esperanto eftir Þórberg Þórðarson er til í 4 heftum og mun fást í flestum bóka- verzlunum. 2. Eftir þeim upplýsing- um, sem við höfum getað aflað okk- ur um þetta mál, horfir þannig við: 1 Danmörku og Þýzkalandi er dýra- læknisnám um fimm og hálft ár. Stúdsntsmcnntun er skilyrði fyrir inntöku í dýralæknaskóla. Náminu er ákaflega likt hagað og í hinni venjulegu læknisfræði, skiptist í fyrri og siðari hluta. í fyrri hlutan- um eru yfirleitt sömu greinar og í læknisfræði, þ. e. efnafræði, líffæra- fræði, lifeðlisfræði og líffræði. Auk þess bætist við jurtafræði. Verklega náminu er aðallega hagað eins og hér segir: Jafnframt og eftir bóklega námið stunda stúdentar verklegt nám á spitölum. Skiptist það aðallega í tvennt, smádýralækningar og athug- anir og stórgripalækningar og athug- anir á burðarstofnunum og rann- sóknarstofum. — 1 siðari hlutanum kemur ýmislegt sérnám, lyfjafræði o. fl. Um námsskilyrði í Eandaríkj- unum höfum við. ekki getað aflað okkur neinna tæmandi upplýsinga, en þau munu vera ákaflega svipuð og á Norðurlöndum og í Þýzkalandi. — Bezti skólinn var álitinn vera í Hannover í Norður-Þýzkalandi, cn ágætir skólar munu einnig vera bæði í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Við háskólann í Os!o var einnig að rísa upp dýralæknadeild fyrir stríð. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII1III1IIII1IIIIIIIIIIIIIIIII1II1IIIIIII11III1IIIII1IIIIIIIIII1IIII1IIIIIII11I1IIIII*| ■ ■ ■ ■ ■ ■ B ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ! Bernh. Petersen ■ ■ ■ ■ ■ REYKJAVllX m * ■ • * Símmiefm: Beurlíiardlo. [ ■ ■ Síinar 1570 (tvær línur). KATUPIR: S> ■ ■ Allar teguedir af Lýsi, ■ Harðfiski og hrognum. ■ ■ Sömule'ðis tómar tunnur. f « ■' ■ B' ■- ■ / ■• ■ ' , ■ SELUR: ■ • : Kol og salt, i : Eikarföt, { B' ■ ' Stáltunnur og Síldartunnur. » ■' ■• ■ ■■ ■> / ■ ■> ■' ■ ■ » ■ ■ imiHiimuiiimnitiiMmmuiiimmiinmMimimtmimimiiiimiitimnmuiiuimú Utvarpsauglýsingar berast með hraða rafmagnsins og mœtti hins I fandi orðs t>l sífjölgandi hlustenda um land allt. Ríkisútvarpið.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.