Vikan - 15.06.1944, Síða 20
20
VIKAN, nr. 23—24, 1944
i urimn ULo!
i n & i iii i &. i u i
Matseöillinn
Rlf jasteik.
3 kg. kjöt. 300 gr. smjör. 3 egg,
eða hveitijafningur. 11/2 teskeið
salt. 1 teskeið pipaiv'400 gr.
steyttar tvibökur.
1 rifjasteik er haft sauða-, svína-
eða kálfskjöt, og er þá notuð lengjan
meðfram hryggnum eða læri. Kjötið
er þvegið með veluppundnum lérefts-
klút. Sé notað læri er kjötið aðskilið
eftir vöðvum; allar himnur og sinar
skomar af. Kjötið er skorið í hæfi-
lega stórar sneiðar, barið lítið eitt,
stráð yfir það pipar og salti, dyfið
í egg eða hveitijafning og velt í
tvíbökumylsnunni. Ef lengjan með-
fram hryggnum er notuð í steikina,
er hryggurinn klofinn eftir endilöngu
og höggvinn í rif jarstykki, og að öðru
leyti sama aðferð höfð og við læri.
Feitin er látin á pönnu og þegar hún
er orðin vel heit, eru stykkin látin á
pönnuna og steikt jafnbrún í 6—8
mínútur við jafnan hita. Borin á borð
með brúnuðum kartöflum og ýmsu
grænmeti.
Brún hvítkálsúpa.
4 lítrar gott kjötsoð. 250 gr.
hvítkál. 3 stórar guirætur. 3
laukar. 65 gr. smjör. 1 teskeið
matarlitur.
Jurtinjar eru þvegnar og afhýddar,
. akornar í mjóar, fínar ræmur. Smjör-
ið er sett í pott og brúnað. Þá eru
jurtirnar látnar í og hrært í, þangað
til þær eru orðnar gulbrúnar. Síðan
er soðinu hellt yfir og súpan soðin
við hægan hita í 15 mínútur. Matar-
litur settur í og salt eftir þörfum.
Rjómarönd í „karamel“-
sósu.
1 líter rjómi. 4 egg. 2 teskeið-
ar af vanilludropum. 100 gr.
sykur. 8 blöð matarlím.
I sósuna: 300 gr. sykur. 1 peli
vatn. 1 peli rjómi.
Matarlímið er látið liggja í bleyti
í 10 mínútur. Eggjarauðunum og
sykrinum er hrært að þéttri froðu.
Mjólkin er soðin og henni hellt í.
Sett í pottinn aftur yfir hitann, mat-
arlimið undið upp og látið saman við.
Þessu er síðan hellt í nokkuð stóra
skál og þegar það er komið að því
að þykkna, þá er stifþeyttum hvít-
unum og rjómanum jafnað varlega
saman við. Sett i skálar eða randa-
mót, sem hefir verið skolað innan
með köldu vatni.
Sósan er búin til þannig, að sykur-
inn er látinn á pönnu, og þegar hann
er runninn og orðinn vel brúnn, er
vatninu hrært saman við og látið
sjóða í tvær til þrjár mínútur. Þá er
þessu helit í skál gegnum sigti og
látið kólna. Þegar sósan er orðin
köld, er einum pela af velþeyttum
rjóma jafnað saman við.
Góð ráð.
Járnpotta, sem eru mjög fitugir
er fcezt að hreinsa með salti og
pappír.
"" \
Uppeldið á heimili pjóðarinnar.
Nýtt tímabil er að hefjast í tilveru
íslenzkú þjóðarinnar. Mikið hefir ver-
ið unnið af hinum mætustu sonum
hennar í baráttunni fyrir að fá aftur
hið langþráða freisi og sjálfsforræði
og langan tima hefir tekið að láta
helgustu vonir Islendinga rætast.
En nú er runninn upp nýr dagur
og nú þarf að ekipa svo verkum á
þeim degi, að mikið og gott starf
verði unnið á öllum sviðum. Þessi nýi
dagur íslenzku þjóðarinnar á að vera
„nóttlaus voraldar veröld“ — og í
þeirri vinnubirtu verður það að vera
markmið þjóðarinnar að ganga ein-
huga og starfsfús til v»rka a heimili
sinu, svo þjooarbúinu vegni vel í
andlegum og veraldlegum efnum.
Það er ekki nóg að hafa fengið
sjálfsforræði á pappímum, það þarf
að ala þjóðina upp eftir kröfum hins
nýja viðhorfs, það þarf að taka til
á þjóðarheimilinu, þrífa þar og bæta
á ýmsgn hátt, prýða og gera á allar
lundir vistlegt, svo að heimilisfólkið
kunni vel við sig heima og beri allt
Geymið gömul handklæði. Það má
oft nota þau til ýmsra hluta. Eins
og t. d. að vefja mislitum klút, sem
hefir verið þveginn, inn í þau til þess
að hann liti ekki frá sér. Lika kraga,
sem á að straua raka o. s, frv.
velferð og gengi heimilisins jafnt
fyrir brjósti.
En það er margt, sem þarf að gera,
svo margt, að ekki veitir af, að hefj-
ast strax handa.
Og fyrst ber að lita til æskunnar.
Þeir voru timarnir hér á landi. að
það þótti hið mcsta hnoss að fá bók
í hönd. Fróðleiksfús börn og ungling-
ar lásu allt, sem hægt var að ná í
og reyndu að hafa eins mikið gagn.
af þeim lestri og framast var únnt.
Það þótti hið mesta keppikefli, að
komast til mennta og margur hæfi-
leikamaðurinn hefir liðið sálarkvalir
vegna ófullnægðrar fróðleiksþrár. —
Fagrir draumar og framtaksvilji
hefir oft orðið að engu, af því að
engin tök hafa verið á að komast í
skóla, engin ráð til þess að geta
lært neitt nema hin hversdagslcgustu
störf. Þá voru mörg heimili mennta-
setur á þeirra tíma mællkvarða og
sáðu þeim fræum, er báru þann gróð-
ur, sem bezt verndaði þjóðerni og sér-
einkenni fólksins, er á Islandi bjó.
Sögurnar okkar og annar þjóðlegur
fróðleikur er sá brunnur, sem mál-
hagir menn hafa ausið af um aldir,
og þess vegna hefir tungan haldið
velli og auðgast, þrátt fyrir hörm-
ungaraðbúnað, sem þjóðin hefir búið
við á ýmsar lundir. Jón Sigurðsson
hlýtur að hafa verið vel nestaður að
heiman. þegar hann hélt út í lönd. til
að verða þar sverð og skjöldur i þjóð-
málabaráttu landa sinna. Þekking
hans á sögu þjóðarinnar og bók-
menntum sköpuðu honum þau vopn,
sem bitu, af því að aldagamall fróð-
leiksþorsti var honum í blóðið borinn.
Snillingur, eins og forsctinn, sem
fæddist 17. júní 1811 á Rafnseyri í
Engar áhyggjur
Engin lyrirhöfn
Ef þér bara hafid alltaf vörur frá oss
hendina.
Sama hvort er heima eða á ferðalagi.
Fiskbollur */i °g Vz dósir.
Hrogn Vi dósir.
Fiskbúðingur Vi og V2 dósir.
Þorskur, roð- og beinlaus x/x og V2 dósír.
Grænar banunir Vi og y2 dósir.
Gaffalbitar
Reykt síldarflök í olíu
Kipper Snaehs
Kaviar
► allt í smádósum.
/
Niðursuðuverksmiðja S. I. F.