Vikan - 15.06.1944, Side 21
VTKAN, nr. 23—24, 1944
21
Amarfirði, verður ekki til í ófrjóum
■og grýttum jarðvegi, þar sem engin
gróðurskilyrði eru fyrir hendi. Marg-
ar stoðir renna undir snilid hans,
margir ættliðir hafa í rauninni tekið
þátt í að skapa hann og móta, hann
er árangur aldastarfs, menningar,
sem ris hæst í honum. Og þjóðin má
vera ánægð með þann ávöxt. Hann
bar henni glæsilegt vitni. Það sást
ekki á þessum mikia snilling, að íor-
feður hans höfðu búið i „moldarkof-
um“ í „köldu landi“ við „yztu höf"!
Hann var afburðamaður, þrátt fyrir
það, en auðvitað ekki vegna þess.
En nú er öldin önnur, hvað
fræðslumöguleika æskunnar snertir.
Segja má, að bækur séu orðnar al-
menningseign og skólar fleiri en áður
— og með því álíta menn ef til vill,
að allt sé fengið, menntunargrund-
völlur þjóðarinnar sé öruggur, snill-
ingar geti fæðst og vaxið upp á hverri
þúfu.
Nú geta börnin fengið bækur, nú
geta unglingar yfirleitt komizt í
skóla, nú ættu að vera mörg tæki-
færi fyrir heilbrigðan og þróttmik-
inn æskulýð, sem hefir hug og bjart-
sýni til að koma sér áfram. En þess
verður vel að gæta að búa svo um
hnútana í beitingu fræðslumálanna í
landinu, að skólarnir svari kröfum
hins nýja tíma. Það er vafamál, að
mönnum sé það yfirleitt ljóst, hve
geysi-ábyrgðarmikið starf kennar-
anna er. Skólarnir eru orðnir
annað heimili mikils fjölda mörg
ár ævi þeirra. Brýn nauðsyn er
þess vegna á því, að menntastofnanir
séu svo úr garði gerðar, bæði hvað
snertir aðbúnað allan og kennaralið,
að nemendurnir kunni við sig á því
heimili, séu fúsir til að fara þangað
og dvelji þar ekki einungis vegna
þess, að foreldrar eða aðrir hafa
sagt þeim að fara í skóla. Kennslan
má heldur ekki vera svo þurr og
smámunaleg, að hún drepi aila
löngun manna til lesturs; þeir verði
þeirri stund fegnastir, þegar þeir
þurfa ekki að líta I bók. Þá eru
orðnar litlar framfarir frá þeim
tímum, þegar það var mesta keþpi-
kefli að ná í bók og hver þóttist
sæll, sem fékk að fara i skóla. Búa
verður svo að kennarastéttinni, að í
hana veljist gáfaðir hæfileikamenn,
sem þykir sómi að því að vera taldir
nýtir menn sem uppalendur þjóðar-
innar, og engin hætta sé á því, að
þeir flýi starfssvið sitt vegna slæms
aðbúnaðar á allan hátt. Við höfum
átt og eigum marga góða kennara,
en kraftar þeirra haia ekki komið að
fullum notum vegna þess, hve að-
staða þeirra hefir verið ill á ýmsan
hátt.
Æskulýðsfélögin, t. d. skátana þarf
að styrkja til öflugrar starfsemi
meðal unga fólksins. Ferðir um land-
ið í heilbrigðum félagsskap undir
stjórn hæfra manna er emn bezti
skólinn, sem hægt er að veita ung-
lingunum. Það er varla vanzalaust,
að sævarþjóð, eins og við islending-
ar erum, skuli ekki eiga fjölda af
sjóskátasveitum. Það er mikið verk-
efni fyrir höndum að bæta úr'þessu.
Þegar þess er gætt, hve óskaplega
mikið börn og unglingar sækja
kvikmyndahúsin — þótt reyndar sé
ákaflega oft auglýst, að myndirnar
séu bannaðar börnum — þá má
hverjum manni vera það l-jóst, að á
þessu sviði er bráðra og mikilla að-
gerða þörf. Fyrst og fremst þarf að
leggja sérstaka rækt við að fá
hingað góðar fræðslumyndir og heil-
brigðar skemmtimyndir fyrir böm
og unglinga. 1 öðru lagi er mikil
nauðsyn á því, að valdir menn, undir
forustu þar til -hæfra kennara, verði
látnir taka islenzkar kvikmyndir við
hæfi barna og unglinga, myndir. sem
hægt er að sýna í sem flestum
skólum og samkomuhúsum landsins.
Margt fleira mætti til nefna, ef
rætt væri lengur um þessi mál, en
hér skal nú staðar numið að sinni.
Húsráð
Keynið að hreinsa marmara með
salti; eða blandið jafnmiklu af víti-
steinsdufti saman við saltið og nógu
af vatni þar til það er eins og
þykk leðja. Þvoið marmarann með
þessu, lofið því að vera á dálitla
stund, hreinsið svo með saltvatni.
Þurrkuð rauðber
(Cranberries)
eru bragðgóð til sultugerð-
ar, í kökur, búðinga, súpúr
o. fl.
Forskriftir á íslenzku
fylgja í hverjum pakka.
Góð ráð.
Dökkt tré er bezt að hreinsa með
steinolíu og á eftir með þurrum,
mjúkum klút.
Rakur og óhreinn kjallari er hrein
Paradis fyrir myglu, allskonar vefi
og skorkvikindi, og bakteríur þrífast
þar allra bezt! Fúkkalykt í húsinu
stafar venjulega frá óhreinum kjall-
ara. Til þess að ráða bót á því, skal
kjallarinn ætíð vera loftgóður og
hreinn eins og sérhver annar staður í
húsinu, hvort sem hann er notaður
undir grænmeti, kartöflur, brenni eða
annað.
Málningarbletti á gleri er hægt að
ná burt með heitu ediki.
Hreinsið spegla með mjúkum klút,
sem hefir verið undinn upp úr köldu
tei.
Skrítlur.
„Þessi alfræðiorðabók segir yður
allt, sem þér þurfið að vita,“ sagði
sölumaðurinn.
„Þarf hennar ekki við — konan
min segir mér það allt og meira til.“
Hann: „Þú mátt ekki kenna mér
um forfeður mina.“
Hún: „Nei, ég kenni þeim um þig.“
Tízkumynd
Á efri myndinni sést ákaflega
skemmtileg peysa, sem er hneppt
niður að framan og með ermar, sem
ná rétt fram fyrir olnboga. Á neðri
myndinni er svart pils, úr þunnu
efni; pilsinu er hneppt að framan
með einum hnappi.
S
HEUTHCUt
4 oz., 10 oz., 5 libs., 10 Ibs. j
! •
■
Z •
m
| 3
■ •
■ t
a
a
•
a
S ■
Heildsölubirgðir:
Z m
m m
\ Guðmundur Ólafsson & Co. h.f. I
■ a
B ■
Austurstræti 14. — Sími 5904.
■ ■
■
a
a
] :