Vikan - 31.08.1944, Side 7
7
„Kátir Piltar" um 1905. — Standandi: Pétur Thoroddsen, Pétur Jónsson, Gísli Guðmundsson,
Vigfús Guðbrandsson, Jón Rósenkranz, Pétur Lárusson, Þorkell Þorláksson, Bogi Benediktsson’,
Magnús Magnússon (frá Cambridge), Valdimar Ottesen, Grimúlfur Ólafsson, Sigvaldi S.
Kaldalóns, Jón Kristjánsson. — Sitjandi: Guðmundur Gunnlaugsson, Hendrik Erlendsson,
Brynjólfur Þorláksson söngstjóri, Ingvar Sigurðsson, Sigurður E. Hlíðar.
VIKAN, nr. 35, 1944
SÖNGSTJÓRI
austan hafs og vestan.
Framhald af bls. 3.
Brynjólfur kom heim frá Ameríku árið
1933 og hefir síðan haft á hendi umsjón
með söngkennslu í barnaskólunum; um
tíma stjórnaði hann „Karlakór Alþýðu“,
og að ýmsum fleiri tónlistar- og söng-
menntarmálum hefir hann unnið. N
Annar þáttur í starfi hans er organista-
starfið við Dómkirkjuna í Reykjavík. Frá
því að orgel kom í Dómkirkjuna árið 1840,
hafa verið við hana fimm organistar. Fyrst
Pétur Guðjohnsen (1840—1877), þá Jónas
Helgason (1877—1903), þá Brynjólfur
(1903 til ársloka 1912), próf. Sigfús Ein-
arsson (1912—1939) og síðan Páll Isólfs-
son. f'
Ég hefi alla heyrt ljúka lofsorði á leik
Brynjólfs og söngstjórn, meðan hann
gegndi þessari stöðu. Vandaði hann mikið
til söngsins í kirkjunni og hafði stundum
stóran blandaðan söngflokk. Var almenn
ánægja manna með hann.
Þriðji þátturinn í starfi Brynjólfs var
kennsla hans utan skóla. Mörg hundruð
manna hefir hann kennt söngfræði og
harmoníumspil. Sjálfur get ég borið um
kennslu hanns á þessu sviði, en ég lærði
hjá honum, þegar ég var barn að aldri.
Það voru ekki dauðar kennslustundir.
„Þannig spilar þú lagið. En nú ætla ég að
spila það. Taktu nú eftir!“ Og þá varð
lagið eins og nýtt lag. Maður sá það og
skildi öðru vísi en áður og hlaut að likja
eftir meðferð hans á því. Hann hafði þá
smekkvísi til að bera að velja eingöngu lög
við hæfi hljóðfærisins (harmoníum), og
hann kunni vel að nota eiginleika þess.
Ekki er mér kunnugt um, hvort Bryn-
jólfur hefir frumsamið lög um dagana, en
hafi hann gert það, þá hlýtur hann að
hafa verið vandur við sjálfan sig, því að
ekkert lag hefir birzt eftir hann á prenti.
En hann hefir hins vegar safnað lögum
og búið til prentunar. — Organtónar,
safn af lögum, útsettum fyrir harmoníum,
mörg með textum, hafa náð geysimikilli
útbreiðslu hér á landi og miklum vinsæld-
um. Bókin ber vitni um smekkvísi höfund-
arins og fullan skining hans á því, hvernig
átti að velja lög handa þjóðinni á þeim
tíma, sem saméinuðu það tvennt að vera
Framhald á bls. 15
Söngkórinn, sem söng við móttöku Friðriks áttunda í Reykjavík og á Þingvöllum 1907. Fremsta röð sitjandi: Martin Bartels, Jón Halldórsson, Pétur
Jónsson, Jón Þ. Thoroddssen, Herbert Sigmundsson. Önnur röð: Valdimar Steffensen, Hendrik Erlendsson, Brynjólfur Þorláksson, söngstjóri, Bjami
Hjaltested, Einar Viðar, Pétur Halldórsson. Standandi aftast: Þorsteinn Jónsson, Jón Rósenkranz, Bjarni Snæbjörnsson, Magnús Erlendsson, Jakob
Guðmundsson, Þorsteinn Jónsson, járnsmiður, Benedikt Gröndal Þorvaldsson, Þorkell Þorláksson, Sigurður Þorsteinsson, Viggó Björnsson, Jörgen Þórð-
arson, Símon Þórðarson.