Vikan - 31.08.1944, Page 10
10
VTKAN, nr. 35, 1944
unmn in
n b i m i l ■ v
Skapari kvenfatatízku
Matseðillinn
Hænsnasteik.
Hænsnasteik.
2 hanar, ungir, 100 gr. smjör,
2—3 pelar vatn, % matsk. salt,
ofurlítill matarlitur.
Hænsnin eru reytt, sviðin með
spritti, innyflin tekin innan úr,
hænsnin þvegin vel, bundin upp með
bómullargami, þurrkuð með hreinu
stykki, brúnuð á pönnu, látin I pott
með heitu vatni ásamt salti og
matarlit, soðin hægt í iy2 tíma þá
tekin upp og haldið heitum. Soðið
síað og sósan búin til á venjulegan
hátt, látið i hana salt og matarlitur
eftir smekk. Hænsnin eru klippt i
hæfilega stór stykki, sósan og brún-
aðar eða soðnar kartöflur bornar
með.
Jarðaberja-ís.
50 gr. sykur. % 1. rjómi. % 1-
jarðarberjasaft. 75 gr. brytjað
súkkulaði.
Rjóminn er þeyttur vel. Þá er
saft, sykri og súkkulaði blandað var-
lega saman við; látið í ísmót og fryst
í 4—5 klukkutíma, annað hvort í
kæliskáp, eða þá á eftirfarandi hátt:
Mulinn klaki er látinn í botninn á
bala eða öðru hentugu íláti, og nokkr-
,um hnefum af grófu salti stráð yfir.
Þá eru mótin sett í balann með
mokkru millibili. Því næst er látið í
balann og kringum mótin eitt lag af
in. Ávaxtahlaup.
1. Bláberjahlaup.
Bláber 1750 gr., vatn 500 gr.,
sykur 1400 gr., PECTINAL
1 pakki.
Berin eru vandlega marin og sett
í pott ásamt vatninu yfir eld í 20
mínútur. Safinn er síaður og 1100
gr. af honum blönduð með pectinal-
inu og hlaupið búið til.
klaka og annað af salti. (Klaka
mun auðvélt að fá í frystihúsum).
Eftir 2 tima frystingu eru mótin
tekin upp úr og öllu hellt úr balan-
um, en síðan eru mótin látin aftur
niður í balann eins og fyrr er lýst.
Þegar ísinn er tekinn úr mótunum, er
það gert á þann hátt, að mótin eru
skoluð að utan með köldu vatni,
lokið tekið af, og hnífur látinn leika
í kringum ísinn. Síðan er hvolt úr
mótunum á föt. ísinn er borinn á
borð með ískökum; skreyttur með
þeyttum rjóma, skrautsykri og jafn-
vel jarðarberjum.
Tízkumynd.
Þetta dragtarsnið er nú mjög í
tízku. Jakkinn er kragalaus og blúss-
an fellur þétt upp við hálsinn. Axlim-
ar sýnast breiðari vegna þver-
saumana á jakkanum. Pilsið er slétt.
Bruno Stehle er amerískur tízku-
teiknari af svissneskum ættum. Hann
teiknar búninga eingöngu fyrir þær
konur, sem hann telur til fyrirmynd-
ar; en það eru velklæddar starfs-
konur.
Þessi samfestingur er úr ljósu
„shantung", á vösunum eru gylltir
hnappar; beltið er einnig gyllt.
„Tízkan verður að hafa sinn til-
gang,“ segir hann, og honum hefir
tekizt sú list að einbeita sér ein-
göngu við aðalatriðin.
Bruno er fæddur í Basel í Sviss.
Foreldrar hans búa þar enn. Hann
lærði að teikna og mála í Múnchen
og segir, að hann beiti þekkingu
sinni á málaralistinni við tízkuteikn-
ingar sinar. „En ég tek líka tillit
til efnanna sem ég vinn úr,“ segir
hann, „tízkuteiknari verður að hafa
þekkingu á réttri meðferð fataefna."
Þegar Bruno kom til Bandaríkj-
anna, hafði hann litla reynslu í teikn-
ingu tízkufyrirmynda, en í mörg ár
hefir hann numið þá list hjá helztu
tízkuteiknurum í New York. Hann
segir, að hann eigi ungfrú Hattie
Carnegie, sem hann starfar . með
núna, mikið að þakka það, hve vel
honum hefir tekizt.
Bmno, sem raunverulega hlaut
frægð sína fyrir tizkufyrirmyndir úr
ullarefnum, hefir tilfinningu hins
sanna listamanns fyrir litum. Mörg
ullarefni eru lituð sérstaklega til
þess að fullnægja hinum kröfuharða
smekk hans. Um kjól eða kápu segir
hann: „Þetta verður að vera hent-
ugt," en með þvi á hann við, að
fötin verða að vera saumuð með
ýtmstu nákvæmni og sniðið með ná-
kvæmri þekkingu á líkamsbyggingu
konunnar.
Köflóttur samkvæmislcjóll. Bruno
hefir mikið dálæti á köflóttum efnum.
Þessi kjóll er úr hvítu og brún-
köflóttu silki efni. Á pilsið eru saum-
aðar tvær rósir úr „palíettum." Beltið
er slétt með spennu. Yfir axlimar
em aðeins mjóir hlýrar.
Husmœður! Saltutíminn er kominn!
Tryggið yður góðan árangur af fyrirhöfn yðar. Varð-
veitið vetrarforðann fyrir skemmdmn. Það gerið þér bezt
með þvi að nota
BETAMON, óbrigðult rotvamarefni.
BENSONAT, bensoesúrt natrón.
PECTINAL, Sultuhleypir.
VlNEDIK, gerjað úr ávörtum.
VANTULETÖFLUR.
VlNSÝKU.
FLÖSKULAKK f plötum.
ALLT FRA CHEMIAh/f
FiBst í ðDmn matvöruverrlnnum.
aniuiniM 4«m nwoi uiuimi
Atllr Tlta *ð
GEKBEB’S
Barnamjöl
hefir reynst bezta og
bætiefnaríkaata fæða,
aem hingað hefir flutzt
fnt 1
Verzlun
Theódór Siemsen
Siml 4204.
NB. Sendl flt nm land ppi
ptetkrilo. —