Vikan - 31.08.1944, Síða 15
VTKAN, nr. 35, 1944
15
SÖNGSTJÓRI
austan hafs og vestan.
Framhald af bls. 7.
falleg og auðveld í meðferð, svo að al-
menningur gæti spilað þau og lært. Lögin
í Organtónum eru einmitt lögin, sem áttu
erindi til þjóðarinnar. Flóknari og vanda-
samari lög hlutu þá að falla hér í ófrjó-
saman jarðveg, því að almenningur hafði
hvorki tamið smekk sinn til þess að geta
notið slíkra laga, og svo voru þeir næsta
fáir, sem voru færir um að spila slík lög
að nokkru gagni, enda ekki samin fyrir
harmoníum, sem þá var lang algengasta
hljóðfærið. „Organtónar“ hafa því átt
mikinn þátt í því að glæða tónlistarþekk-
ingu þjóðarinnar og svala músíkþorsta
hennar á sínum tíma og jafnframt undir-
búa jarðveginn undir þá músík, sem koma
átti, veigameiri tónlist, og vekja þrána
eftir henni, en hún er þegar orðin sam-
eiginleg eign margra manna hér á landi,
því að eins og kunnugt er, þá rann hér
upp „píanóöld" eftir „harmoníumöldina“.
Brynjólfur hefir ennfremur gefið út ljóð-
lagaheftið „Svanur“, og safn af léttum
forspilum fyrir organista.
— Bróðir Brynjólfs er Þorkell Þorláks-
son fyrrum stjórnarráðsritari. Hann er
söngvinur mikill og listfengur maður, og
get ég hans hér vegna þess, að hann er
höfundur sönglagsins alkunna, „Fýkur
yfir hæðir og frostkaldan mel“, sem birt
er í Organtónum og fyrir löngu er orðið
að nokkurskonar þjóðlagi hér á landi.
Baldur Andrésson.
Skríllur
— Hvemig ferðu eiginlega að því að fá svona
mikla peninga hjá manninum þínum?
— Ég segi bara við hann að ég fari frá honum
heim til mömmu og pabba, og þá lætur hann mig
strax hafa peninga fyrir farinu!
— Þó að þú værir síðasti karlmaðurinn á jarð-
ríki, þá myndi ég ekki giftast þér!1
— Það skil ég vel; þú myndir verða troðin
undir í þrönginni i kringum mig! ! !.
— Nei.nú verð-
ið þér að hætta,
ungfrú! Þetta
er í fimmta
skipti, sem ég
ber yður niður
stigann!
Asbestcement plötur
á þak og veggi.
Skolprör
Masonite
olíusoðið.
Krossviður
vatnsþéttur 8 m.m.
Þakpappi
4 tegundir.
Gúmmíslöngur
V*” og y4”.
Saumur
allar stærðir.
Vatnssalerni
Sendum gegn póstkröfu um allt Iand.
Á. EINARSSON & FUNK
Tryggvagötu 28. Sími 3982.
Kvikmynda-9Vstjörnuríð
Ævisaga Betty Grcble,
með 20 úrvalsmyndum, er að koma út.
Leikaraútgafan
Verðlœkkun á gleri
Höfum fengið nýjar birgðir af ensku og ame-
rísku „Ultra Vitrolate Glass“
Rúðugler
í öllum þykktum og stærðum, skorið niður eftir
máli. — Einnig selt í heilum kistum.
Hamrað gler
Vírgler
Sendum gegn póstkröfu.
Pétur Pétursson
Glerslípun og speglagerð.
Hafnarstræti 7.