Vikan - 24.04.1947, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 17, 1947
9
Fréttamyndir
Unga stúlkan á myndinni hljóp burt frá eiginmanni sínum eftir 48 klukkustunda
hjónaband og krafðist skilnaðar. Hinar myndimar eru af eiginmanninum og móður
stúlkunnar.
Truman forseti á veiðum við Bermudaeyjar.
Þegar einn af fyrstu flugmönnum
heimsins, forvígismaðurinn Orville
Wright, var spurður um flugmál á
75 ára afmæii sínu, sagðist hann nú
hafa mestan áhuga á að friður héld-
ist í heiminum. Pyrir 2 árum er
Wright gamli var 73 ára flaug hann
eitt sinn að gámni sínu Constellation-
flugvél. Þykir honum sem vonlegt er
mikill munur á nútímaflugvélum eða
skrapatólum þeim, er hann flaug
sjálfur skömmu eftir aldamót.
George Wilkinson háttsettur starfs-
maður hjá Scotland Yard átti að
gæta þess að Molotov kæmist örugg-
lega um borð í Queen Elizabeth í
Englandi, en þegar um borð kom
krafðist rússneski ráðherrann þess að
hann færi með sér vestur um haf.
Varð svo að vera og fór Wilkinson
án þess að hafa svo mikið sem aðra
skyrtu með sér en þá, sem hann stóð
í, þar sem honum vannst ekki tími
til að fara aftur í land.
Bamið á myndinni er yngsti farþegi, sem flogið hefir yfir Atlants-
haf og er aðeins 10 vikna gamalt. Faðir þess kom með það, en
móðirin, sem var brezk dó skömmu eftir fæðinguna. Þarna sést
hvar afi og amma er að taka á móti föðumum og baminu í Chicago,.
4
Varaforseti eins stærsta sláturfélagsins í Chicago, R. G. Haynie sést hér
á myndinni útskýra fyrir landbúnaðarráðinu kjötskortinn í landinu. Meðal
annars sagði hann að kjötkaupmenn seldu nú 98% minna en fyrir 5 ámm.
T. h. á myndinni er öldungadeildarþingmaðurinn Elmer Thomas frá
Oklahama.
Thomas E. Dewey (t. v.) fylkisstjóri í New York, sem líkt og Truman
forseti er fylgjandi frjálsum innflutningi Gyðinga til Palestínu, sést hér
á tali við Samuel Hausman áður en þeir lögðu fram áskorun þess efnis
að „nokkur hundruð þúsund" Gyðinga fengi landgöngu i sínu fvrir-
heitna landi."