Vikan


Vikan - 14.08.1947, Blaðsíða 3

Vikan - 14.08.1947, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 33, 1947 3 Þessi mynd er úr „búðinni." Búðin er miðstöð viðskiptalífsins í þorpinu; þar fá þorpsbúar allar nauðsynjar sínar til fæðis og klæðis og annarra þarfa. Þessi mynd er frá „kránni" í Lacock. Kráin er samkomustaður karlmann- anna í þorpinu. Þar koma þeir saman að loknu dagsverki og skemmta sér við samræður, spil og bjórdrykkju. Lífiö í enskum sveitaþorpum (Sjá mynd á bls. 2). Sveitaþorpin voru um langan aldur hyrning- arsteinninn í ensku þjóðlífi, og enn er það svo að „flestir Englendingar eru sveitamenn í hjarta sínu.“ Kirkjan, kráin og „búðin“ eru þrír megin- þættirnir í lífi þorpsbúa. Englendingar eru kirkjuræknir, og þó að presturinn sé ekki eins valdamikill og hann var, snertir starf hans lif allra þorpsbúa; hann skírir þá, giftir þá og jarðar þá og hefir oft á tíðum forustu í félagslífi þeirra.' En kráin er þó enn stærri þáttur í daglegu lífi þorpsbúa — það er að segja karlmannanna, því að enn er það svo, að ekki er talið viðeigandi að konur venji þangað komur sínar. Á lcvöldin að loknu dagsverki leita karlmennirnir í þorpinu þangað og skeggræða um landsins gagn og nauð- synjar, hver með sína bjórkollu. „Búðin“ er við- skiptamiðstöðin í þorpinu. Þar fá þorpsbúar keyptar allar daglegar nauðsynjar til fæðis og klæðis. Búðin hefir oft verið í eigu sömu fjöl- skyldu kynslóð fram af kynslóð, og lætur hún sér jafnan annt um að sjá fyrir þörfum allra, sem til hennar leita. Kóngur kúrekanna Roy bjargar tveim mannslífum. Kvikmyndaleikarinn Roy Rogers 1. „Ótætis þorparinn þinn!“ hrópar Ted Wallis. „Ég kæri mig ekki um að hafa lúmska þjófa í vinnu hjá mér. Hypjaðu þig burtu áður en Roý vinúr minn fer á stúfana!" Rödd húsbóndans titrar af reiði um leið og hann snýr sér að Hank Samúels, kúreka, sem staðinn hafði verið að því að stela úr skemmunni. 2. Samúels gýtur illilega til hans augunum. „Ég skal ná mér niðri á þér!“ tautar hann um leið og hann læðist burt. Reiðin svall honum í brjósti og um leið og hann geng- ur framhjá nautagirðingunni, nemur hann skyndilega stað- ar; honum hafði dottið í hug ráð til að hefna sín. „Hann hefir gott af því,“ tautar hann um leið og hann opnar hliðið á nautagirðingunni. 3. Á næstu sekúndu ryðjast nautin út úr girð- • ingunni og taka á rás eftir uppþornuðum árfar- vegi. Roy Rogers sér þetta og tekur til fótanna. „Nautin hafa brotizt út!“ hrópar hann, en allt í einu fer svo kaldur skelfingarhrollur um hann. Niðri í árfarveginum kemur hann auga á son húsbóndans! 4. Roy er jafnan viðbragðsfljótur. „Vertu ekki hræddur!" kallar hann. „Stattu kyrr!“ hrópar hann um leið og hann tekur til fótanna í áttina til drengsins. Það er aðeins eitt ráð til bjargar. Nautin nálgast óðfluga og jörðin skelfur undan fótataki þeirra, en Roy tekur undir sig stökk og vegur sig upp i stórt tré. 5. Hann sveiflar sér út á grein, sem slútir yfir árfarveginn, krækir hnésbótunum um greinina og lætur sig hanga með höfuðið niður. Hann sveiflar sér áfram, teygir sig í áttina til drengsins og nær í handleggina á honum. Það brakar i vöðvum hans um leið og hann vegur drenginn upp til sín. (Niðurlag sögunnar kemur í næsta blaðl).

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.